Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 58

Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 58
 3. OKTÓBER 2009 LAUGARDAGUR8 ● bleika slaufan „Starfið felst í liðkandi og styrkj- andi æfingum ásamt teygjum og slökun á mánudögum og miðviku- dögum,“ segir Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari, sem stjórnar leik- fimi tvisvar í viku í leikfimisal og sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði. Lovísa hefur sérhæft sig í þjálfun kvenna sem farið hafa í skurðað- gerð vegna brjóstakrabbameins. Hún segir konum sem undirgeng- ist hafi aðgerðir ráðlagt að hefja æfingar eftir að þær hafi jafnað sig. „Það á sérstaklega við þegar mikið hefur verið fjarlægt af eitl- um í holhönd. Þá þarf að styrkja svæðið sem búið er að krukka í,“ útskýrir Lovísa og lýsir leikfim- inni fyrir blaðamanni. „Konun- um eru kenndar einfaldar og létt- ar æfingar, bæði í leikfimissal og í sundi. Þeim hefur liðið sérstak- lega vel í vatninu enda tekur það ekki eins mikið á að æfa í því.“ Hún bætir við að mikill árangur hafi náðst af starfinu. „Tvímæla- laust. Við höfum komið mörgum aftur af stað.“ Samhjálp kvenna, samtök til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabbamein, stendur á bak við leikfimina en hugmynd- ina á Lovísa, sem hefur kennt hana í tuttugu ár. „Ég var íþróttakennari á Hrafn- istu þannig að það var auðvelt fyrir mig að fá aðstöðu fyrir hóp- inn,“ rifjar hún upp og bætir við að innan hópsins séu konur sem hafi verið með frá upphafi. „Þær eldri hafa miðlað af reynslu sinni til hinna. Þannig læra þær hver af annarri, auk þess sem mikil sam- kennd hefur myndast innan hóps- ins. Um daginn gerðum við okkur til dæmis glaðan dag þegar tuttugu ára afmælið bar að garði, þannig að þetta er líka mjög gaman.“ En hvert er best að snúa sér til að fá nánari upplýsingar um starfssemina? „Til mín í síma 693 9563,“ segir Lovísa og bætir við að fyrirspurnir megi líka senda á samhjalp@krabb.is. - rve Lyfjafyrirtækið Roche hef- ur látið framleiða bleika stressbolta til styrktar bleiku slaufunni, árvekniátaki gegn brjóstakrabbameini. Boltarnir eru mjúkir að utan en harðir að innan og á þeim stend- ur: Brjóstakrabbamein sést ekki en það finnst. Fyrirtækið fór af stað með sams konar átak í Portúgal í fyrra og mæltist það mjög vel fyrir. „Markmið okkar er að hvetja konur til þess að mæta í brjósta- krabba- meinsleit. Það er dýr- mætt tæki- færi, en sýnt hefur verið fram á tuttugu prósenta lækkun á dánar- tíðni kvenna fjörutíu ára og eldri sem fara í slíka leit miðað við þær sem gera það ekki,“ segir Valdís Beck, markaðsfulltrúi Roche á íslandi. Hún segir lyfjameðferð gegn brjóstakrabbameini hafa þróast mikið síðastliðin ár, en uppgötv- ist meinið of seint geti besta með- ferð sem völ sé á ekki bjargað lífi sjúklingsins. „Hins vegar getur aukin þekking á sjúkdómnum orðið til þess að hann uppgötvist tímanlega. Þess vegna styður Roche árvekniátakið og hefur gert síðastliðin fimm ár.“ Lífshorfur kvenna sem grein- ast með brjóstakrabbamein á Ís- landi hafa batnað mikið frá því að brjóstakrabbameinsleit hófst árið 1987. Þó hefur það valdið vonbrigð- um að einungis 62 prósents mæt- ing er í leitina, sem er mun lægra hlutfall en víða annars staðar á Norðurlöndum. „Það er því mik- ilvægt að minna á leitina og við viljum leggja okkar af mörkum,“ segir Valdís. Þær konur sem mæta í brjósta- krabbameinsleit hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands í okt- óber fá boltana í hendur, auk þess sem þeim verður dreift til áskrif- enda Vikunnar. - ve Lovísa hefur kennt leikfimina í tuttugu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vatnaleikfimi þykir henta vel þar sem sumar konurnar eru þróttlitlar eftir aðgerðir og lyfjameðferðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Mikill árangur hlotist Valdís segir að jafnvel þó að mikil þróun hafi orðið á sviði lyfjameðferðar þá þurfi að uppgötva sjúkdóminn tímanlega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Mjúkir að utan, harðir að innan● FRÆGAR KONUR Ein af hverjum 10 konum hér á landi fær brjóstakrabbamein, og fer sjúkdómurinn ekki í manngreinarálit. Fjöl- margar þekktar konur hafa greinst með krabbamein í brjóstum, en hér er listi yfir nokkrar sem hafa nýtt frægð sína til að leggja baráttunni gegn krabbameini lið. Kylie Minogue var aðeins 37 ára þegar hún greindist með brjóstakrabbamein árið 2005. Greining hennar vakti mikla athygli og hefur hún talað hreinskilningslega, og opnað umræðu um baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Sopranos leikkonan Edie Falco greindist með brjóstakrabbamein árið 2003 þegar hún var fertug. Hún hefur notað frægð sína til að styðja við Stand Up To Canc- er herferðina, sem vekur athygli á auknum líkum á sýkingu á meðan á krabbameinsmeðferð stendur. Cynthia Nixon, sem er best þekkt sem rauðhærði lögfræðing- urinn Miranda í Sex and the City, greindist með krabbamein árið 2006. Hún hefur barist ötullega gegn brjóstakrabba- meini og er sendiherra fyrir Susan G. Komen stofnunina í Bandaríkjunum. Olivia Newton John hefur löng- um barist fyrir umhverfinu og réttindum dýra, en frá því hún greindist með brjóstakrabba- mein árið 1992 hefur hún einn- ig unnið að árvekni um brjósta- krabbamein. Þar á meðal hefur hún gefið út plötu þar sem allur ágóði fór til styrktar rannsókna á brjóstakrabbameini. REYKINGAR GETA VALDIÐ GETULEYSI Fáðu hjálp við að hætta á reyklaus.is eða í síma 800 60 30 Reykingar flýta fyrir öldrun húðarinnar Ef þú hættir að reykja dregur það úr líkum á banvænum hjarta- og lungna- sjúkdómum Reykingar á meðgöngu skaða fóstur Verndaðu börnin – láttu þau ekki anda að sér tóbaksreyk Fáðu hjálp við að hætta að reykja: sími 800 60 30 Reykingar drepa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.