Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 60
3. OKTÓBER 2009 LAUGARDAGUR10 ● bleika slaufan
Sölufélag garðyrkjumanna styrk-
ir verkefnið Bleiku slaufuna nú í
ár en einnig hefur félagið styrkt
verkefnið Karlmenn og krabba-
mein. „Við erum mjög stolt af því
að geta styrkt þetta verkefni,“
segir Kristín Linda Sveinsdóttir,
markaðsstjóri hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna. „Rannsóknir hafa
sýnt fram á að neysla grænmet-
is virðist veita vörn gegn krabba-
meini og þar eiga stóran þátt efni
eins og E-vítamín, karót-
enóíð og lýkopen. Mik-
ilvægt er að fá þessi
efni úr matnum en
ekki sem fæðu-
bótarefni.“
Auglýs-
ingar Sölu-
félags garð-
yrkjumanna
hafa undanfar-
in ár undirstrik-
að hollustu grænmetisins í
bland við skemmtilegan fróðleik
en Kristín segir að íslenska græn-
metið sé betra en það erlenda fyrir
margra hluta sakir. „Gæðin eru
einstök því við búum í litlu landi
þar sem stutt er út á akrana og í
gróðurhúsin og ekki langar flutn-
ingsleiðir að baki. Einnig fær
grænmetið hér á landi að vaxa á
sínum eðlilega hraða og hægar
en gerist víðast hvar erlendis en
þannig eru hollusta og bragðgæði
þess íslenska mun betri.“
Sölufélag garðyrkjumanna held-
ur úti heimasíðunni islenskt.is þar
sem finna má ýmsar upplýsingar
um ræktun grænmetis, uppskrift-
ir, fróðlegar greinar, meðhöndlun
grænmetis og fleira. „Við opnuðum
nýlega síðu á Facebook undir nafn-
inu íslenskt.is í ágúst og eigum nú
yfir 2.500 vini en gagnvirknin er
mjög góð á síðunni þar sem neyt-
endur geta tekið þátt í umræðunni
og komið hugmyndum áleiðis.“
- jma
Kristín Linda Sveinsdóttir hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna segir að
Facebook-síða félagsins hafi slegið í
gegn. Einnig heldur Sölufélagið úti
heimasíðunni www.islenskt.is.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Íslenskt grænmeti
stoltur styrktaraðili
Sveinbjörn Kristjánsson,
doktor í heilbrigðisvísindum
og verkefnisstjóri fræðslumála
hjá Lýðheilsustöð, segir að
hægt sé að lifa eftir nokkrum
grunnreglum og minnka
þannig líkurnar töluvert á að fá
krabbamein.
„Með því að reykja ekki, hvort sem
er með því að byrja aldrei eða með
því að hætta að reykja, minnka lík-
urnar á að fá krabbamein, meðal
annars í lungum, koki, nýru, brisi
og ristli. Í hinum vestræna heimi
er um þriðjungur allra krabba-
meina tengdur reykingum og níu-
tíu prósent lungnakrabbameina.“
Að nota munntóbak getur einnig
aukið líkurnar á að fá krabbamein,
svo sem í brisi.
Offita er einnig á þessum lista
og hefur verið tengd auknum
líkum á ýmsum krabbameinum.
Að halda sér í kjörþyngd með því
að borða holla fæðu og hreyfa sig
reglulega getur minnkað líkurnar
á að fá krabbamein í ristli, legi og
brjósti svo eitthvað sé nefnt. „Dag-
leg hreyfing er mikilvæg fyrir
heilsu og vellíðan og það að hreyfa
sig rösklega hálftíma á dag getur
komið í veg fyrir ýmsar tegundir
krabbameina.“
Þá erum við komin að mataræð-
inu en mikilvægt er að borða ávexti
og grænmeti. Undanfarin ár hefur
fólki verið ráðlagt að borða „fimm
á dag“, af ávöxtum og grænmeti,
en þau matvæli innihalda efni sem
vinna gegn krabbameini. „Hér
getum við Íslendingar tekið okkur
á því kannanir hafa sýnt að við
neytum minna en helmings af þeim
ráðlagða dagskammti. Mikil neysla
á rauðu kjöti og unnum kjötvörum
eykur líkurnar á krabbameinum í
ristli og blöðruhálskirtli.“
Neysla áfengis gleymist að sögn
Sveinbjarnar oft sem veigamikill
þáttur en fólk sem reykir pakka á
dag og misnotar áfengi stóreykur
líkurnar á að greinast með ýmiss
konar krabbamein, svo sem í koki,
barka og vélinda. Neysla áfengis
ein og sér eykur líkur á fá krabba-
mein og því meira sem drukkið er,
þeim mun meiri er áhættan.
Að lokum nefnir Sveinbjörn
krabbamein sem væri að mestu
leyti hægt að koma í veg fyrir
með réttum lífsstíl en það er húð-
krabbamein. „Það er sérstaklega
mikilvægt að vernda börnin. Börn
og unglingar eru viðkvæm fyrir
útfjólubláum geislum, hvort sem
er frá sólinni eða ljósabekkjum,
og því er áríðandi að setja átján
ára aldurstakmark á notkun ljósa-
bekkja. Einnig þurfum við Íslend-
ingar, sem ekki erum vanir mikilli
sól, að fara varlega þar sem okkur
er oft hættara við að brenna. Gott
er að forðast sólina milli klukkan
ellefu og þrjú á daginn og vernda
húðina með fötum eða sólaráburði
með sólvarnarstuðli yfir fimmt-
án. Allt til að koma í veg fyrir að
brenna í sólinni.“ - jma
Lifnaðarhættir geta kom-
ið í veg fyrir krabbamein
Unnin kjötvara, áfengi, sígarettur og
ljósabekkir eru meðal þess sem fólk
skyldi forðast, að sögn dr. Sveinbjörns
Kristjánssonar, verkefnisstjóra hjá Lýð-
heilsustöð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir sól og er unnið að því að sett verði aldurstakmark á notkun ljósabekkja.
NORDICPHOTOS/GETTY
GRUNNREGLURNAR
Reykja ekki
Hreyfa sig reglulega
Borða grænmeti og ávexti dag-
lega
Neyta áfengis í hófi
Forðast að brenna í sólinni og
fara ekki í ljós, þá sérstaklega
börn yngri en 18 ára
Árlega koma á fjórða tug þúsunda kvenna í
skoðun á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Vísinda- og Leitarsvið Krabbameinsfélagsins
eru í samstarfi við Háskóla Íslands um rann-
sóknir og kennslu í heilbrigðisvísindum.
Krabbameinsfélagið hefur frá 1954 rekið
Krabbameinsskrá sem geymir allar tiltækar
upplýsingar um krabbamein á öllu landinu og
er ein fárra slíkra skráa í heiminum sem taka til
heillar þjóðar.
Brjóstakrabbamein er önnur algengasta dánarorsök
kvenna milli 20 og 59 ára.
Velflest æxli sem greinast í brjósti eru góðkynja.
Líkur á brjóstakrabbameini aukast með aldrinum.
Þótt flestir þekki helstu atriði
næringarfræði vill það oft fara
fyrir ofan garð og neðan að útbúa
hollan mat. Þá getur verið gott að
þekkja bækur sem leiðbeina fólki
um heilsusamlega en einfalda mat-
reiðslu. Meðal slíkra bóka er þriðja
matreiðslubókin í bókaflokkinum
Af bestu lyst sem gefin var út í
fyrra í samvinnu við Hjartavernd,
Krabbameinsfélagið, Lýðheilsustöð
og Vöku-Helgafell og bókin Bragð
í baráttunni sem væntanleg er hjá
Forlaginu nú í haust.
Nanna Rögnvaldardóttir, mat-
gæðingur og ritstjóri hjá For-
laginu, útbjó uppskriftirnar í fyrr-
nefndu bókinni og segir hún að við
gerð hennar hafi hún haft í huga
að maturinn ætti að vera við hæfi
sem flestra, heilsusamlegur og eld-
aður á heilsusamlegan hátt. Hverri
uppskrift fylgdu því upplýsingar
um næringargildi réttarins, meðal
annars um hitaeiningar, fitumagn
og magn mettaðrar fitu. „Ég lærði
sjálf mikið af því að vinna þessa
bók,“ segir Nanna og bendir á að
sjálf hafi hún ekki áttað sig á því
hve mikið muni um að setja eina
skeið af pestói út í sósur en ekki
tvær, auk fleiri atriða sem gott sé
að hafa í huga við matargerð.
Krabbameinsfélagið Fram-
för átti síðan hugmyndin að því
að gefa út bókina Bragð í barátt-
unni. Það er þýðing á kanadískri
bók sem heitir Cooking with Foods
that Fight Cancer og skiptist hún
í tvennt. Fyrri hlutinn er umfjöll-
un um hvernig krabbamein mynd-
ast og hvað hægt er að gera til að
sporna við því. Því næst er fjallað
um alls kyns hráefni í mat, krydd
og fleira, innihald þeirra og eigin-
leika og hvort þau geti komið að
gagni til að fyrirbyggja krabba-
mein. Seinni hlutinn er svo upp-
skriftir að alls kyns spennandi
réttum sem mælt er með. - kdk
Brögð í baráttunni
Nanna Rögnvaldardóttir útbjó bók sem
auðveldar fólki að ná tökum á heilsu-
samlegri eldamennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Laxasneiðar á stökku káli
fyrir 4
1 laxaflak, 600 g
1 kg (6 b.) hvítkál, skorið í strimla
3 msk. ólífuolía
1 msk. kumminfræ
salt og nýmalaður pipar
175 ml (¾ b.) tómatmauk (puré)
1 hvítlauksrif, fínsaxað
Snöggsjóðið kálið í eina mínútu. Setjið
í sigti og látið kalt vatn renna á það til
að stöðva suðuna. Látið renna vel af
því. Hitið ólífuolíuna á pönnu. Steikið
kálið við háan hita með kumminfræj-
unum í 1–2 mínútur. Bragðbætið með
salti og pipar. Skerið laxinn í fjögur jafn-
stór stykki. Saltið og piprið og gufu-
sjóðið síðan þar til laxinn er eldaður í
gegn. Hitið tómatmaukið og bætið hvít-
lauknum út í það. Hitið fjóra diska og
mótið hreiður úr steiktu káli á miðju
hvers þeirra. Setjið laxbita þar ofan á og
tómatmauk yfir.
VISSIR ÞÚ AÐ ...
Filippseyska: Lasong Rosas
Franska: Ruban Rose
Ítalska: Nastro Rosa
Katalónska: Cinta rosa
Þýska: Rosa Schleife
Hollenska: Roze Lint
Danska: Lyserøde Sløjfe
Finnska: Roosa Nauha
Ungverska: Rózsaszín szalag
Norska: Rosa Sløyfe
Litháíska: Rožinis kaspinas
Rúmenska: Panglica Roz
Slóvakíska: Ružová stužka
Sænska: Rosa Bandet
Tyrkneska: Pembe Kurdele
(þýðingarnar teknar af wikipedia.org)
Bleika slaufan á
ýmsum tungum