Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 62

Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 62
 3. OKTÓBER 2009 LAUGARDAGUR12 ● bleika slaufan Bleika slaufan er til sölu við af- greiðslukassa í öllum verslunum Nóatúns. Sala slaufunnar hófst 1. október, en hún kostar þúsund krónur og er seld án álagningar. „Við höfum jafnframt beint þeim tilmælum til starfsfólks okkar að það veki athygli viðskiptavina á átakinu,“ segir Bjarni Friðrik Jó- hannesson, rekstrarstjóri Nóa- túns. Nóatún hefur lagt Krabba- meinsfélaginu lið undanfarin ár sem söluaðili Bleiku slaufunnar auk annarra verkefna á vegum Krabbameinsfélagsins. En af hverju var tekin sú ákvörðun að styðja Bleiku slauf- una? „Við þekkjum vafalítið öll einhvern sem hefur þurft að tak- ast á við þennan erfiða sjúkdóm og því snertir þetta okkur öll,“ segir Bjarni og hvetur alla viðskiptavini Nóatúns til að leggja átaksverkefni Krabbameinsfélagsins lið. - sg Vilja vekja at- hygli á átakinu „Við munum ávallt leggja átaksverk- efnum Krabbameinsfélagsins lið,“ segir Bjarni Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fyrirtækið Margt smátt hefur séð um framleiðslu, innflutning og dreifingu Bleiku slaufunnar fyrir Krabbameinsfélagið síðast- liðin þrjú ár, og er mikill handa- gangur í öskjunni þegar október- mánuður nálgast. „Það hefur verið brjálað að gera. Í fyrra kláraðist lagerinn á áttunda degi en í lok fyrsta söludags núna voru einungis 6.000 slaufur eftir á lager,“ segir Fjóla Sigurð- ardóttir, dreifing- arstjóri Bleiku slaufunnar hjá Mörgu smáu. „Það fóru því 39.000 slauf- ur út hjá okkur fyrsta daginn. Ef marka má lager- stöðuna má ætla að vandi Krabbameins- félagsins sé helst sá að ekki fái allir slaufu sem vilja.“ Dreifingin hefur því farið afar vel af stað, en nú er það undir almenningi komið að tryggja sér eintak áður en allt selst upp hjá söluaðilum. Rýkur út eins og heitar lummur Pósturinn selur Bleiku slaufuna á um fjörutíu pósthúsum um allt land. „Við höfum um árabil átt gott samstarf við Krabbameinsfé- lag Íslands og teljum mjög þarft að styðja hið mikilsverða starf þess eins og frekast er kostur. Sala slaufunnar fellur vel að starfinu á okkar afgreiðslustöðum og því er sjálfsagt að verða þar að liði,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Póstsins. „Átakið tengist okkur einnig að því leyti að Pósturinn er mjög fjöl- mennur vinnustaður og þar sem okkur er annt um okkar fólk leggj- um við mikla áherslu á heilsuefl- ingu af ýmsu tagi. Heilsupósturinn er mannbótaverkefni, sem starfs- mönnum hefur staðið til boða í um fimm ára skeið með góðum árangri, en það styður starfsfólk í sjálfseflingu bæði á líkama og sál. Stuðningur við þetta verk- efni Krabbameinsfélagsins fellur því vel að stefnumiðum Póstsins,“ segir hann. Pósturinn dreifir bleiku slauf- unni nú í fyrsta sinn. Fyrirtækið studdi hins vegar Krabba- meinsfélagið vel í átakinu Karl- menn og krabba- mein í vor. Bleika slaufan verður til sölu á um 40 afgreiðslustöð- um Póstsins um allt land. Dreifir Bleiku slaufunni í fyrsta sinn Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík - Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 4 74 48 1 0/ 09 er alþjóðlegt merki átaks til að vekja athygli á brjóstakrabbameini. Þú færð Bleiku slaufuna í verslunum Lyfju. Þannig leggurðu baráttunni gegn þessum sjúkdómi ómetanlegt lið. bleika slaufan Bleika slaufan er hönnuð af Sif Jakobs gullsmiði og kostar 1.000 krónur.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.