Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 76
40 3. október 2009 LAUGARDAGUR
Á
sólríku september miðdegi
ganga þrír nautabanar inn
á leikvanginn í bænum
Baza í Andalúsíu á Spáni
við lúðraþyt og trommu-
slátt. Á eftir þeim koma sex
aðstoðar menn, tveir lensuknapar, þar næst
þrír örvasveinar og loks dráttarmenn með
tvo hesta. Það er spenna í loftinu sem magn-
ast svo til muna þegar þetta skrautklædda
lið hefur komið sér bak við skjólveggi og
nautahliðið opnast.
Nautið berst við blindan hest
Kliður fer um áheyrendur þegar naut sem
vegur tæplega hálft tonn kemur á harða-
hlaupum inn í hringinn. Aðstoðarmennirnir
fikra sig inn í hringinn og byrja að flagga
skikkjum sínum. Ekki líður á löngu áður en
nautið kemur askvaðandi og rekur hornin
í skikkjuna meðan aðstoðarmaðurinn
hreyfir hana eftir kúnstarinnar reglum.
„Olé“ hrópar fólkið í hvert sinn sem nautið
rekur hornin í skikkjuna sem í sama mund
er horfin nautinu. Eftir að aðstoðarmenn-
irnir hafa leikið listir sínar í nokkra stund
koma tveir lensuknapar vopnaðir löngum
spjótum. Hestar þeirra eru brynjaðir og
með bundið fyrir augu. Aðstoðarmaður
beinir athygli nautsins að öðrum knapanum
og boli leggur til atlögu við folann. Blaða-
maður er nokkuð órólegur við þetta atriði
því síðast þegar hann sá nautaat nokkrum
dögum áður náði nautið að hrinda hestinum
niður. Til allrar hamingju náðu aðstoðar-
mennirnir að ginna nautið frá liggjandi
hestinum áður en það gat rekið hornin í kvið
hestsins en brynjan nær ekki undir hann
allan. Blasir því ber kviðurinn við þegar
hann liggur. Lensuknapinn komst líka í
skjól en fólki var verulega brugðið.
En í Baza gengur þetta atriði að óskum og
riddarinn rekur spjótið í hnakka nautsins
meðan það er með hornin á brynjuklæddum
hestinum.
Vopnaðir tveimur krókörvum
Því næst stígur örvasveinninn inn í hring-
inn, vopnaður tveimur löngum krókörvum.
Þegar hann hefur náð að fanga athygli
nautsins hleypur hann beint á móti því en
þegar boli dregur höfuðið niður til að reka
hornin í kappann leitar sá skrautbúni lags
og rekur örvarnar í hnakka skepnunnar. Því
næst verður hann að hlaupa eins og fætur
toga bak við skjólvegg. Þar kastar hann
mæðinni en ekki of lengi því leikur þessi
skal endurtekinn.
Hetjan stígur í hringinn
Loks kemur fyrsti nautabaninn og baðar
höndum til áhorfenda og hneigir sig í átt
til forsetans sem er í heiðursstúkunni. For-
setaembætti þetta fær venjulega einhver
sem er háttsettur í viðkomandi bæjar félagi
en hann verður einnig að vera vel að sér í
bransanum því það er í hans verkahring að
meta frammistöðu nautabananna að verki
loknu.
Því næst leikur nauta-
baninn listir sínar með rauðu skikkjuna
sína og sverðið sem hann notar til að halda
skikkjunni útbreiddri. Með tækni sinni og
lipurð verður hann að sýna forsetanum sem
og áhorfendum fram á að hann hafi nautið á
valdi sínu. Það leggur til atlögu þegar hann
vill og það stendur kyrrt þegar honum sýn-
ist svo. Þegar best lætur getur nautabaninn
leikið sér að nautinu en síðan snúið við því
baki í fullvissu um að það muni ekki leggja
í hann þó að fáeinir metrar skilji að. Til að
auka enn á spennuna leggst nautabaninn
á hnén og flaggar rauðu skikkjunni fyrir
aftan bak. Nautið stendur þá aðgerðalaust
og veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið en
nautabaninn fagnar líkt og öll hætta sé liðin
hjá. Í raun þyrfti þó ekki nema smá hreyf-
ingu frá bola til að breyta fagnandi hetju í
fórnarlamb.
Meðan á leikum þessum stendur leikur
lúðrasveitin hina þjóðlegu pasodoble-tónlist
en þegar tónlistinni lýkur skyndilega með
djúpum tón frá bassatrommu mikilli má
lýðnum ljóst vera að komið er að hápunkti
nautaatsins.
Þá tekur nautabaninn sér stöðu örfáum
metrum fyrir framan nautið og heldur
skikkjunni niðri svo að nautið veiti ekki
sverðinu sem hann heldur á lofti athygli.
Æðir hann svo á móti nautinu og hreyfir
skikkjuna svo að nautið stangi í hana en á
meðan rekur hann sverðið í hnakka skepn-
unnar og ef vel tekst til nær það alla leið í
hjartað. Þá er aðeins stundarkorn uns naut-
ið gefur upp öndina.
Lýkur viðureign haltur og kvalinn
Nautabanarnir þrír sem léku listir sínar í
Baza voru þeir Alejandro Amaya, Cayeta-
no Ribera Ordoñed og Daniel Luque. Hver
og einn felldi tvö naut. Sá síðastnefndi lék
sér svo listavel að fyrsta nautinu að for-
setinn ákvað að hann skyldi fá hala fórnar-
lambsins og bæði eyru fyrir en það er mesti
heiður sem nautabana hlotnast að viður-
eign lokinni. En enginn verður óbarinn
biskup og Luque fékk að finna fyrir horn-
unum þótt ekki hafi hann hlotið teljanleg
meiðsl af. Cayetano var einnig vippað niður
þegar hann ætlaði að stinga skepnuna með
sverði sínu og þar sem hann lá fékk hann
horn í vinstri fótinn. Stoltið bauð
ekki upp á annað en að ljúka verk-
inu þótt kvalinn væri og haltur. Áhorfend-
ur fögnuðu ákaft að atinu loknu og veifuðu
hvítum klút líkt og óðir væru. Þessir hvítu
klútar sem komnir eru á loft eru áskorun
til forsetans um að veita nautabananum að
minnsta kosti nautseyrað fyrir frammi-
stöðuna. Það gekk eftir, öllum til mikillar
ánægju. Cayetano þessi er sonur hins mikla
nautabana Francisco Rivera Paquirri sem
lést fyrir 25 árum í nautaatinu skelfilega í
Pozoblanco. (Sjá hliðardálk).
Bæði Cayetano og Luque var fagnað vel
að leik leiknum en Amaya hvarf af vett-
vangi með voveiflegum hætti.
Hetjan fellur
Amaya hefur leikið nautið grátt og það er
orðið úrvinda. Þá kemur djúpi tónninn frá
bassatrommunni og nautabaninn tekur upp
sverðið. Bregður hann því á loft en heldur
skikkjunni niðri við fætur sér. Nautið gapir
á skikkjuna en Amaya tekur miðið á hnakka
nautsins. Loks hleypur hann á móti naut-
inu en það dregur hausinn niður til að ná
krafti í höggið sem það ætlar þessu rauða
fyrirbæri sem búið er að espa það frá því
að stigið var í hringinn. Sverðið fer á bóla-
kaf í nautið en engu að síður nær skepnan
að reka annað hornið utan í nautabanann.
Hann fellur til jarðar og þar kemur horn-
ótti andstæðingurinn og rekur hornið í læri
kappans. Það fer um áhorfendur, sem flest-
ir vita að náðar höggið sem Paquirri fékk á
sínum tíma var einmitt í lærið. Aðstoðar-
menn ná að ginna nautið í burtu frá særð-
um nautabananum, sem síðar er fluttur í
hendingskasti á sjúkrastofu sem er undir
áhorfendapöllunum. Andar taki síðar leggst
nautið niður og drepst. Dráttarsveinar koma
þá með hesta tvo sem draga það af velli.
Amaya slasaðist ekki alvarlega en svona
getur nautaati lyktað; aðalleikendur hverfa
báðir blóðugir af vettvangi. Ófáir áhorfend-
ur grípa þá í vínbelginn og fá sér vænan
sopa því ekki veitir af smá hressingu áður
en næsti nautabani leggur líf sitt að veði.
Eins og
skepnan deyr
Fyrir suma er nautaat list sem er bundin menningu Spánverja
órjúfanlegum böndum. Fyrir aðra er þetta villimannsleg
athöfn sem fullnægir lægri hvötum mannsins. Hvað sem því
líður fór Jón Sigurður Eyjólfsson á leikvanginn og sá bæði naut
og nautabana lúta í duftið.
LEIKIÐ MEÐAN LUKKAN ENDIST Amaya leikur listir sínar á leikvanginum í Baza. Honum entist þó
ekki gæfan til að fara fagnandi af leikvangi líkt og félagar hans tveir. MYNDIR/JÓN SIGURÐUR
KRÓKÖRVARNAR Á LOFTI Nautið býr sig undir að
reka hornin í þann skrautklædda en fær í sama
mund örvarnar í hnakkann.
NÁÐARSTUNGAN Cayetano rekur sverðið í horn-
óttan andstæðing sinn álíka þeim sem lagði föður
hans að velli fyrir 25 árum.
Hinn 26. september 1984 var nautaat háð í bænum Pozoblanco í Andalúsíu. Þar lék listir sínar
Francisco Rivera Paquirri, faðir Cayetanos sem atti kappi í Baza þar sem blaðamaður var mættur.
Einnig José Cubero Sánchez, kallaður El Yiyo, og Vicente Ruiz, kallaður El Soro. Þetta var síðasta
nautaat tímabilsins en upphafið að mestu sorgarsögu nautaatsins. Vilja sumir meina að bölvun
hafi fylgt þessu nautaati því örlög þessara þriggja fræknu nautabana urðu hræðileg.
Paquirri var þá kominn af besta skeiði en gat státað af farsælli ferli en nokkur annar. Þegar
hann er að hefja leik við seinna nautið sem þá var alveg óþreytt naut rekur skepnan hornið í læri
hans, tekur kappann á loft og vingsar honum til og frá þar sem hann er fastur með lærið í öðru
horninu. Loks þegar hann fellur til jarðar er hann borinn í læknisstofuna sem var á leikvanginum.
Tekin var ákvörðun um að flytja hann á spítala í borginni Cordóba þar sem hann var búinn að
missa svo mikið blóð að lífið lá við. Paquirri hafði hins vegar gefið upp öndina þegar þangað var
komið.
Ellefu mánuðum síðar er El Yiyo að veita nautinu náðarstunguna með sverði sínu. Stungan
heppnast en áður en nautið drepst rekur það hornin í nautabanann, tekur hann niður en stangar
hann svo í hjartastað. Hann lætur lífið nær samstundis.
El Soro lék árið 1994 áhættuatriði mikið við óþreytt naut. Þá beið hann skepnunnar á
hnjánum og ætlaði því að hlaupa með hornin í skikkjuna sem hann vingsaði við hlið sér. Í þetta
sinn fór það svo að nautið hljóp yfir El Soro. Hann hefur verið farlama síðan og var í síðasta
mánuði í einum uppskurðinum enn vegna þessa.
Ekki hefur bölvunin einungis tekið í örlagatauma nautabananna þriggja. Sá sem átti nautin
sem felld voru í þessu nautaati, Juan Luis Banadrés, var nefnilega myrtur árið 1988.
Á auglýsingaspjöldum um nautaat eru skráð nöfn nautabananna þriggja og þess sem leggur
til nautin. Á auglýsingaspjaldinu frá nautaatinu í Pozoblanco eru nöfn fjögurra manna. Þrír hafa
horfið með voveiflegum hætti og einn liggur enn á sjúkrahúsi. Sagt er að bölvun hvíli yfir þessu
auglýsingaspjaldi.
BÖLVUN POZOBLANCO
Andstæðingum nautaatsins hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu árin. Árið 2003 var stofnaður
stjórnmálaflokkur (PACMA) sem hefur það efst á stefnuskrá sinni að banna nautaat á gjörvöllum
Spáni. Sjálfsstjórnarhéruð víða um Spán hafa lýst yfir andstöðu sinni við þessa leika. Þar á meðal
eru Astúrías, Baskahérað, Kanaríeyjar, Galisía og Katalónía.
„Pyntingar eru hvorki list né íþróttir” er kjörorð þeirra sem blása á þá röksemdafærslu að
nautaat sé órjúfanlegt spænskri menningu. PACMA segir Spán vera olnbogabarn í alþjóðasam-
félaginu með því að vanvirða dýraverndarlög með skipulögðum hætti. Sýning sem hefur það að
markmiði að pynta dýr og drepa getur ekki viðgengist í nútímaþjóðfélagi, segja þeir.
Dagblaðið El Mundo gerði skoðanakönnun árið 2007 og samkvæmt henni voru 58 prósent
Spánverja mótfallin því að banna nautaat en 33 prósent vildu láta banna það skilyrðislaust. Níu
prósent aðspurðra létu ekki uppi skoðun sína.
Þeir sem eru hlynntir nautaati hafa svarað andstæðingum sínum á þá lund að nautið lifi betra
lífi en flestar skepnur áður en að lokadegi kemur. Gengur það um haga lungann úr árinu og étur
kjörfæði, að þeirra sögn. Enn fremur segja þeir að ef nautaatið yrði bannað myndi spænska
nautið deyja út. Dýrt sé að rækta það og engin leið væri fyrir ræktendur að standa undir þeim
kostnaði ef ekki væri fyrir nautaatið. Miklir fjármunir eru þar í húfi því um fjórar milljónir kaupa
sér miða til að sjá hvernig skepnan deyr.
HEIMILDIR: WWW.PACMA.ES
WWW.ELPAIS.COM/ARTICULO/SOCIEDAD/ANTITAURINOS/GANAN/PRIMERA/BATALLA/ELPEPISOC/20080202ELPEPISOC_1/TES
WWW.ANTITAUROMAQUIA.ES
ANDSTAÐA VIÐ NAUTAAT