Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 80
44 3. október 2009 LAUGARDAGUR
Ertu orðinn það sem þú ætlaðir að
verða þegar þú yrðir stór?
Ármann: „Já, nokkurn veginn. Er
hins vegar orðinn talsvert stærri
en ég ætlaði.“
Guðmundur: „Nei, er ekkert orð-
inn stór.“
Andi birtist og veitir þér þrjár
óskir. Hvað biður þú um?
Ármann: „Tékkneskan Budweiser,
Kalda og einhverja spennandi nýja
tegund “
Guðmundur: „Geislasverð, lítið not-
aða, vel með farna og sparneytna
tímavél og hrund sem er afkvæmi
hrúts og hunds og býr yfir forystu-
hæfileikum hundsins og hreinlæti
hrútsins.“
Hver er mest framandi staðurinn
sem þú hefur komið til?
Ármann: „Heimavistarskóli fyrir
blind börn í Lipetsk í Rússlandi.“
Guðmundur: „Raoul-eyja sem er
nyrst Kermadec-eyja.“
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð?
Ármann: „Ja, ef ég mæli það í
hversu oft ég hef séð ástæðu til að
horfa á ákveðna mynd þá er það
sennilega Monty Python and the
Holy Grail.“
Guðmundur: „Óðal feðranna.“
Besta bók sem þú hefur lesið?
Ármann: „Góði dátinn Svejk.“
Guðmundur: „Góði dátinn Svejk.“
Hverjum er kreppan á Íslandi að
kenna?
Ármann: „Hinum.“
Guðmundur: „D og B.“
Eftirminnilegasta tímabil lífs
þíns og af hverju?
Ármann: „Hálfvitatímabilið vegna
þess að það er svo stutt síðan það
byrjaði.“
Guðmundur: „Veturinn 2001 þegar
ég sigldi milli Tonga og Nýja-
Sjálands, því það var ógeðslega
gaman.“
Hvaða Íslendingur er gáfaðast-
ur?
Ármann: „Eggert Hilmarsson ber
af í kómískri greind, sem er sú eina
sem skiptir máli.“
Guðmundur: „Rögnvaldur.“
Hver er ljótasti hálfvitinn?
Ármann: „Fer eftir dagsformi og
jafnvel tíma dags. Sumir eru til
dæmis hreinn viðbjóður á morgn-
ana en geisla af fegurð þegar líður
á daginn.“
Guðmundur: „Ég.“
Hvert er versta starf sem þú
hefur gegnt?
Ármann: „Að skafa eldgamla steypu
af enn eldri spýtum í grenjandi
rigningu.“
Guðmundur: „Rótari fyrir
Hostile.“
Hvar er fallegast á Íslandi?
Ármann: „Í Landmannalaugum til
dæmis. Já, og Ásbyrgi. Svo er mjög
fallegt í Mývatnssveit. Og svo fram-
vegis.“
Guðmundur: „Í Kverkfjöllum.“
Hvað gerist að loknu þessu jarð-
lífi?
Ármann: „Þeir sem hafa hagað sér
skikkanlega geta skroppið á tón-
leika með Tom Waits þegar þá lystir
en þeir sem hafa verið drullusokk-
ar þurfa að hlusta á lög með Doobie
Brothers spiluð á panflautu þar til
blæðir úr eyrunum á þeim. “
Guðmundur: „Ormapartí.“
Hver er leiðin út úr kreppunni?
Ármann: „Upp á við, síðan beint í
austur.“
Guðmundur: „Að eyða ekki pening-
um sem maður á ekki.“
Góði dátinn Svejk er besta bókin
ÞETTA ERU NÚ LJÓTU HÁLFVITARNIR Ármann Guðmundsson býst við að illmennum verði refsað með Doobie Brothers í helvíti en
Guðmundi Svafarssyni (þessum með ofurhökutoppinn) finnst norskur matur verstur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Ármann Guð-
mundsson.
GÆLUNAFN: Öööö... Ármann.
AFMÆLISDAGUR OG MEÐ
HVERJUM DEILIR ÞÚ AFMÆLIS-
DEGINUM: 25. október – Dollu
frænku, Pablo Picasso og
Glenn Tipton, gítarleikara Judas
Priest.
FULLT NAFN: Guðmundur
Svafarsson.
GÆLUNAFN: das gums.
AFMÆLISDAGUR OG MEÐ
HVERJUM DEILIR ÞÚ AFMÆL-
ISDEGINUM: 9. júlí – Richard
Roundtree, Bon Scott og Gísla í
Sororicide.
■ Á uppleið
Núðlur. Þetta er ódýr,
oft hollur og oftast
yndislegur matur. Nú
er líka að koma nýtt og
spennandi Núðluhús á
Skólavörðustíginn.
Ynja.net Loksins vitur-
legt efni fyrir smekk-
legar konur sem er
laust við kynlífsráðgjöf,
fréttir af appelsínuhúð
stjarnanna og endalausu snyrtivöruplöggi.
Soðnar paprikur. Síðast
voru það skinkur, nú eru
það soðnar paprikur.
Þetta eru í hnotskurn
stúlkur sem sækjast
eftir því að vera
smá flippaðar og
artí, mála sig ekkert,
ganga í flatbotna skóm
við skræpóttar leggings
og eru oftar en ekki með
einhver leiðindi. Hvað
nafngiftina varðar hlýtur það
eitthvað að tengjast því bragði
sem fæst með því að sjóða papr-
iku í vatni.
Þemapartí. Jú, þemapartí
virðast vera þema hausts-
ins – vampírur, sixtís,
tventís, ástandið, goth og
jafnvel fetish. Hleypir stuði í
mannskapinn.
■ Á niðurleið
Að segja of mikið.
Einu sinni þótti það
plebbalegt að tala
opinskátt um peninga
en nú verður að fara
að setja bann á að tjá
öllum vinum sínum
á Facebook ef maður
fer í megrun eða er í
líkamsræktarátaki eða
með hor út af ógeðs-
legu kvefi. Þurfum
við virkilega að vita
þetta?
Hjólreiðar. Nú er
slyddan komin í bæinn
og spurning hvort
hjólagarparnir leggi
hjólunum og setjist
við stýrið á ný.
Að nota orðið bara sem
áhersluorð. Það færist í aukana að fólk segi
hluti eins og „Þetta var BARA gaman“ eða „Þú ert
BARA flott í þessu“.
Fólk að grenja á Skjáeinum. Fyrst voru það fyrirsætur
með grátköst í America‘s Next Top Model, nú eru það
konur á miðjum aldri að gráta
yfir brostnum hjónaböndum
og litlu sjálfstrausti í Amer-
ica‘s Next MILF Model
(heitir þátturinn það
ekki annars?).
MÆLISTIKAN
BLESSAR GUÐ ÍSLAND?
verktaka- og ráðgjafamarkaðurinn í sögulegri lægð
Nú þegar ár er liðið frá
því að efnahagskreppan
hófst er nauðsynlegt að
líta um öxl, skoða hvað
fór úrskeiðis en ekki síður
taka stöðuna eins og hún
er í dag og hvað tekur við
næstu misseri og ár.
DAGSKRÁ
14.00
Þorvaldur S. Þorvaldsson,
formaður NBD á Íslandi
setur fundinn
14.10
Stefán Thors,
skipulagsstjóri ríkisins:
Aðgengi og notkun grunn-
upplýsinga við skipulagsgerð
14.40
Magnús Sædal Svavarsson,
byggingarfulltrúi í Reykjavík:
Ekki að benda á mig,
ég var ...........
Fundarstjóri verður Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent í stjórnun og
leiðtogafræðum við Háskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis en vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið nbd@nbd.is
15.10
Kaffi
15.30
Sverrir Bollason,
umhverfisverkfræðingur hjá VSÓ:
Staðið á byggingavaktinni
16.00
Þórólfur Geir Matthíasson,
prófessor í hagfræði við
Háskóla Íslands:
Kanarífuglar, hegrar, bólur
og hrun
Umræður
NBD
Norrænn byggingardagur býður til opins fundar
í Norræna húsinu þriðjudaginn 6. október kl. 14.00–17.00