Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 86
50 3. október 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af…
góðum kvikmyndum þótt
hátíðir séu að baki: Kvik-
myndasafnið sýnir í dag kl. 16
Rauðu eyðimörkina (1965)
með Monique Vitti og Richard
Harris. Leikstjóri Antonioni. Í
MíR-salnum á Hverfisgötu 105
er á dagskrá á morgun kl. 15
rússneska kvikmyndin „4” frá
2005.
kl. 17.
Írski píanósnillingurinn John
O´Conor heldur tónleika í TÍBRÁ
í Salnum, í dag og hefjast þeir kl.
17. Tónleikarnir marka upphaf
Írskrar menningarhátíðar í Saln-
um og eru jafnframt einn athyglis-
verðasti viðburður í tónleikaröð-
inni TÍBRÁ á þessu starfsári.
Í tilefni af sýningu á Kjarvalsstöðum sem helguð er
op-listinni, verður þingað um hreyfinguna á morg-
un: Sálfræðingurinn Árni Kristjánsson, listfræðing-
urinn Þóra Þórisdóttir og listamaðurinn JBK Ransu
eru framsögumenn á málþingi sem hefst kl. 15. Á
sýningunni Blik eru verk op-listamannsins Eyborg-
ar Guðmundsdóttur (1924 -1977) í forgrunni. Aðrir
listamenn, sem eiga verk á sýningunni, eru Arnar
Herbertsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hreinn
Friðfinnsson, Hörður Ágústsson, JBK Ransu, Jón
Gunnar Árnason og Ólafur Elíasson. Þóra fjallar
um Eyborgu, verk hennar og feril í samhengi við
strauma og stefnur í listheiminum.
Árni Kristjánsson, dósent við sálfræðideild
Háskóla Íslands, ræðir um skynjun, skynvillur og
myndlist. Árni hefur stundað rannsóknir á virkni
sjónkerfisins, meðal annars því hvernig við beinum
athygli okkar að ólíkum hlutum innan sjónsviðsins
og hvað stjórnar því hverju við veitum athygli.
JBK Ransu myndlistarmaður hefur um árabil
beint sjónum sínum markvisst að 20. aldar lista-
stefnum á borð við Op-listina og popplistina. Hann
flytur erindi undir yfirskriftinni „Op í endurgerð“
þar sem hann nálgast Op ekki sem vísindi heldur
sem tælandi útlit og aðgengilegt myndmál.
Þingað um Op á morgun
MYNDLIST Verk eftir Eyborgu Guðmundsdóttur.
MYND LISTASAFN REYKJAVÍKUR
Íslenski flautukórinn heldur tón-
leika á 15:15 tónleikaröðinni í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn 11. okt-
óber. Þetta eru jafnframt fyrstu
tónleikar raðarinnar á þessu
starfsári. Á tónleikunum mun
flautukórinn flytja verk eftir Þur-
íði Jónsdóttur, Þorkel Sigurbjörns-
son, Giancarlo Scarvaglieri, Maríu
Cederborg og nýjan einleikskons-
ert, LUX, eftir Huga Guðmunds-
son. Einleikari á tónleikunum
verður Melkorka Ólafsdóttir.
Tónleikarnir í Norræna húsinu
koma í kjölfarið á tónleikum sem
flautukórnum var boðið að halda
á alþjóðlegri ráðstefnu The Nation-
al Flute Association í New York í
ágúst síðastliðnum, en ráðstefnan
er sú stærsta sinnar tegundar og
áætlað að um 2.500 flautuleikarar
hvaðanæva úr heiminum hafi sótt
ráðstefnuna. Tónleikum Íslenska
flautukórsins var afar vel tekið
og vöktu mikla athygli ráðstefnu-
gesta. Hefur kórnum þegar verið
boðið að koma fram á næstu ráð-
stefnu NFA sem og á flautuleikara-
hátíð í Belgíu.
Íslenski flautukórinn var stofn-
aður árið 2003 og hefur þegar
skapað sér gott orð. Hópurinn er
skipaður 20 flautuleikurum sem
allir taka virkan þátt í íslensku
tónlistarlífi og flestir hlotið fram-
haldsmenntun í flautuleik frá
erlendum tónlistarháskólum.
- pbb
Íslenski flautukórinn
Í nýútkomnu fjárlagafrum-
varpi er gerð grein fyrir
fyrirhuguðum lækkunum
á framlagi skattborgara
og fyrirtækja til reksturs
menningarlífsins í landinu.
Ljóst er að fjármálaráðuneyt-
ið er að slá skýlisgarð um nán-
ast óbreyttan rekstur allra helstu
stofnana ríkisins þótt víða sé
þrengt að rekstrarkostnaði, bæði
í verkefnum og eins í mannahaldi.
Lækkunin hjá mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytinu nemur tæp-
lega 8 prósentum að raungildi.
Forgangsröðun
Í greinargerð með frumvarp-
inu segir: „Þótt markmiðin hafi
verið sett miðað við veltu eru þau
útfærð eftir forgangsröð og áhersl-
um ráðuneytisins sem getur falið
í sér mismikla skerðingu á fjár-
veitingum eins og fram kemur í
umfjöllun um einstakar stofnan-
ir og verkefni. Gert er ráð fyrir
auknum útgjaldaskuldbindingum
í rekstri sem nema 1.263 m.kr. Þar
munar mestu um 630 m.kr. aukið
framlag til Ríkisútvarpsins, 488
m.kr. framlag til að koma á móts
við kostnað af umtalsverðri nem-
endafjölgun í framhaldsskólum og
háskólum og 75 m.kr. tímabundið
framlag vegna þátttöku í bóka-
kaupstefnu [Bókamessuna í Frank-
furt] Þá hækka rekstrargjöld um
2.945 m.kr. við það að framlag til
Ríkisútvarpsins er fært á milli
gjaldategunda, af tilfærslum yfir
á rekstur.“
Nú bíta hnífar
Harkalegust er lækkun á framlagi
til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
en framlagið er lækkað um 206
milljónir og verður á næsta ári 463
milljónir króna rúmar. Er nánar
fjallað um Kvikmyndamiðstöð á
síðu 62.
Styrkur Íslenska dansflokks-
ins lækkar um 7,3 m.kr. á næsta
ári og um leið möguleikar hans til
að sækja tekjur erlendis sem hafa
numið háum fjárhæðum. Er grund-
völlur hans skekinn. Þjóðleikhús
lækkar og fær í reksturinn 698,3
milljónir.
RÚV ohf.
Gert er ráð fyrir að fjárveiting til
Ríkisútvarpsins ohf. hækki um 273
m.kr. frá fjárlögum yfirstandandi
árs. Skýrist það af tvennu: Ann-
ars vegar er lagt til að fjárveiting
hækki um 630 m.kr. með hliðsjón
af áætluðum tekjum af útvarps-
gjaldi. Hins vegar er lagt til að
framlag til fyrirtækisins lækki
um 357 m.kr. frá fjárlögum til að
mæta markmiðum ríkisstjórnar-
innar um lækkun ríkisútgjalda.
Framlög til Ríkisútvarpsins verða
því samtals 3.218 m.kr.
Skorið er niður hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands um 39,1 m.kr.
en henni er tryggt fjármagn sem
nemur 625 milljónum.
Ýmsir liðir
Gjaldaliðurinn 982 – Listir – lækk-
ar um 93,2 m.kr. frá fjárlögum yfir-
standandi árs: þar undir eru liðir
eins og Heiðurslaun listamanna,
Listahátíð í Reykjavík, Bókasafns-
sjóður höfunda, Bókmenntasjóður,
Starfsemi atvinnuleikhópa, Tón-
listarsjóður, Barnamenningarsjóð-
ur, Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar, átakið Tónlist fyrir
alla og Íslenska óperan sem miss-
ir 35,1 m.kr. af rekstrarstyrk sem
verður um 140 milljónir.
Sjálfstæðir leikhópar
Þá er lagt til að framlag til starf-
semi leikhópa lækki um 14,5 m.kr.
af tveimur tilefnum: Niðurfellingu
á tímabundinni 3 m.kr. fjárveit-
ingu til Draumasmiðjunnar sem
veitt var í fjárlögum 2009 og 11,5
m.kr. lækkun til að mæta mark-
miðum ríkisstjórnarinnar í ríkis-
fjármálum. Hér kemur í bakið á
öllum áhugaleikhópum í landinu
að Draumasmiðjan fékk þrjár mill-
ur til að halda leiklistarhátíð dauf-
dumbra á þessu ári.
Hvorki Lókal, Alþjóðlega leik-
listarhátíðin í Reykjavík, artFart,
leiklistarhátíð grasrótarhópa ungs
listafólks né Act Alone, einleikja-
hátíð á Ísafirði njóta styrkja á fjár-
lögum.
Aftur er í frumvarpinu gert ráð
fyrir að Hafnarfjarðarleikhúsið
haldi 17 milljóna kr. styrk til 2012
en þríhliðasamningur þess við
Hafnarfjarðarbæ rennur út nú
um áramót og verður samkvæmt
fjárlagafrumvarpi endurnýjaður
en lækkar um 3 milljónir.
Þá er tillaga um 3,5 m.kr. lækk-
un á starfi Bandalags íslenskra
leikfélaga. Framlagið hefur verið
ætlað til að styrkja rekstur skrif-
stofu bandalagsins og ætti eftir
lækkun að standa undir einu
starfi.
Til umhugsunar
Ekki er í forsendum fjárlagafrum-
varpsins sjáanlegt að starfsmenn
menntamálaráðuneytis hafi lagt
í að brjóta upp og endurskipu-
leggja hið flókna og margstofna
kerfi styrkveitinga í landinu, en
ætla mætti að fyrirvari hafi verið
nægur til að fara í skipulega upp-
stokkun á kerfinu, safnafjöldan-
um, hinum margbreytilegu verk-
efnasjóðum. Til þess þyrfti meiri
krafta til skipulegrar hagræðing-
ar innan ráðuneytisins og um leið
rask á því starfsmannahaldi sem
vaxið hefur við jaðar ráðuneytis-
ins.
Ekki er hér fjallað um breyting-
ar á fjárframlögum til safnanna
en ljóst er að sýningarhald þeirra
skerðist verulega og fækka verður
starfsmönnum. Þeirri ágjöf væri
aðeins mætt með frekari samein-
ingu hinna dreifðu safna og sam-
vinnu milli landshluta.
pbb@frettabladid.is
Menningin öll í uppnámi
MENNING Niðurskurður og bágari gengisstaða munu setja svip sinn á starfsemi Sinfóníunnar síðasta starfsár hennar í Háskóla-
bíói en 2011 flytur hún í Tónlistarhúsið. MYND FRÉTTABLAÐIÐ /GVA
2009
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa ı Netfang: gerduberg@reykjavik.is
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is
Gallerý fiskur í Gerðubergi
Ljúffengur heitur matur í hádeginu alla virka daga,
hlaðborð, súpa og salat. www.galleryfiskur.is
Sögur án orða
Ljósmyndasýning Ólafar Erlu Einarsdóttur
Hún rís úr sumarsænum
Málverkasýning Steinunnar Einarsdóttur
Laugardaginn 3. október kl. 14-15
Út í kött! Dansleikhús fyrir börn
Lýðveldisleikhúsið – www.this.is/great
Aðgangseyrir: Kr. 1.500
Sunnudaginn 4. október kl. 14-15
Tóney í Gerðubergi - fjölskylduskemmtun
Tónlist, dans og leiklist. Meðal gesta eru nemendur
Fellaskóla, listdansnemar og hljómsveitin
Agent Fresco
7. október kl. 20 / Ókeypis aðgangur!
Handverkskaffi - Henna húðskreytilist
Darren Foreman kynnir Henna fyrir gestum og
málar jafnvel sýnishorn á þá sem þess óska.
Kynningin er hluti af verkefninu Húmor og Amor
á vegum menningarstofnana Reykjavíkurborgar.
5. - 26. október / fjögur mánudagskvöld kl. 20
Líf og list: 100 ára vegferð
Karitasar Jónsdóttur
Bókmenntanámskeið um verk Kristínar Marju
Baldursdóttur. Kennari: Sigfríður Gunnlaugsdóttir.
Skráning stendur yfir!
gerduberg@reykjavik.is, s. 575 7700.
Í fréttum var þetta helst...
Sýning Halldórs Baldurssonar
Vissir þú... að í Gerðubergi er
frábær aðstaða fyrir veislur, fundi,
ráðstefnur og námskeið?
Nýtt
heitur reitur í
Gerðubergi