Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 92
56 3. október 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Söngskóli Maríu Bjarkar fagnaði
fimmtán ára afmæli á fimmtudag-
inn en þar hafa margar af fremstu
söngkonum landsins stigið sín
fyrstu skref í átt til frægðar og
frama.
Söngskólinn hefur um árabil haft marga af
fremstu söngvurum landsins sem kennara
og nægir þar að nefna Regínu Ósk, Heru
Björk og Emilíu úr Nylon-flokknum gamla.
Eflaust er þó á engan hallað þegar fullyrt
er að stjarna skólans sé um þessar mundir
Jóhanna Guðrún, silfurstjarnan frá Eur-
ovision-keppninni í Moskvu. Jóhanna er
nánast alin upp innan veggja Söngskólans
og var uppgötvuð þar af skólastjóranum,
Maríu sjálfri.
Óhætt er að fullyrða að allir geta fund-
ið nokkuð við sitt hæfi hjá Söngskólanum
því boðið er upp á námskeið fyrir krakka
niður í þriggja ára aldur. Þá hafa geisla-
diskar söngskólans, Söngvaborg, slegið í
gegn hjá smáfólkinu, sem þykir fátt jafn
skemmtilegt og að dilla sér við skemmti-
legar útfærslur af barnalögum. Fjöldi vina
og velunnara skólans mætti að sjálfsögðu í
afmæli sem var haldið í húsakynnum skól-
ans við Fákafen 11. - fgg
GLÆSILEGT AFMÆLI MARÍU
MARÍA OG KÆRASTINN Skötuhjúin Örn Sævar Hilmarsson og María skört-
uðu sínu fegursta í afmæli Söngskólans og voru augljóslega ánægð með
veisluna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STEDARAR Í STUÐI Sara Dís Hjaltested
og Árni Kjærnested kíktu við í Söngskóla
Maríu Bjarkar.
KENNARAR SKÓLANS Guð-
björg og Sesselía eru meðal
kennara skólans og voru að
sjálfsögðu í miklu stuði.
GAMAN SAMAN Þær Lísa, Alma Rut og Gunnhild-
ur létu sig ekki vanta í Fákafenið.
Samkvæmt nýjustu fréttum vest-
anhafs fór ofurdólgurinn Russell
Brand með hina fagursköpuðu
Katy Perry í ferðalag til Taílands
á dögunum.
Engum sögum fer af því hvað
gekk á í ferðinni, en
Brand er þekktur
kvennabósi
með gríðar-
lega langan
lista af ást-
konum.
Hvorki
Brand né
Perry hafa
staðfest
sögusagn-
irnar, en sú
síðarnefnda
þykir hafa
komið upp um
sig þegar hún
skrifaði eftir-
farandi skila-
boð á Twitt-
er-síðu sína:
„Eftir viku-
dvöl í Taílandi
er ég tilbú-
in að horfast í
augu við lífið
aftur. Er í
einkakennslu
um Morrissey,
Oscar Wilde og
Peter Sellers... Innblásin!“ Russell
Brand er mikill aðdáandi þessa
þriggja manna og hefur án efa
kennt Perry sitthvað um líf þeirra
og listir.
Upphaf sambandsins má rekja
til MTV-myndbandaverðlaunanna
sem fóru fram á dögunum. Þau
náðu vel saman í partíi eftir hátíð-
ina og eiga að hafa kysst hvort
annað – á munninn! - afb
Russell Brand bætir
Katy Perry á listann
KVENNABÓSI Russell
Brand kann lagið á
dömunum.
SKUTLA Katy Perry
er fögur eins og
morgunsólin í
Bláfjöllum.
Nýjasta mynd Micahels
Moore, Capitalism: A Love
Story (Auðvald: Ástarsaga),
fær afar mis-
jafna dóma
í Bandaríkj-
unum þar
sem hún var
nýlega frum-
sýnd. Rolling
Stone segir:
„Þessi mynd
gæti breytt
lífi þínu.
Ég grét af
hlátri.“ En
Salon segir:
„Þetta er
sannarlega ástarsaga, en hún
fjallar minnst um galla auð-
valdsins og því meira um
dálæti Michaels á sinni eigin
röddu og því sem honum
finnst vera sín eigin greind.“
Myndin verður frumsýnd á
Íslandi 23. október í Háskóla-
bíói.
Auðvaldið fær
misjafna dóma
UMDEILDUR
Kvikmyndagerðar-
maðurinn Michael
Moore.
Spjallþáttastjórnandinn David
Letterman kom áhorfendum
sínum í opna skjöldu nýverið þegar
hann viðurkenndi, í beinni útsend-
ingu, að hann hefði átt í kynferð-
islegu sambandi við fjölmargar
samstarfskonur sínar á undan-
förnum árum. Letterman, sem
giftist sambýliskonu sinni, Reginu
Lasoko, í mars, gerði þetta þó ekki
að gamni sínu því hann upplýsti
einnig að starfsmaður CBS, sjón-
varpsstöðvarinnar sem Letterman
er á mála hjá, hefði reynt að kúga fé
út úr honum. Sá sagðist hafa sönnun-
argögn fyrir því að Letterman hefði
stundað þetta ósiðsamlega athæfi og
ætlaði að skrifa bæði kvikmynda-
handrit og bók um þetta kynsvall
Lettermans. Þáttastjórnandinn leit-
aði í kjölfarið til saksóknara í New
York og var kynlífskúgarinn í kjöl-
farið handtekinn.
Myndband með ræðu Lettermans
hefur farið sem eldur í sinu á netinu
og þetta þykir ein stærsta frétt-
in í Bandaríkjunum um þessar
mundir. Illu heilli fyrir Letter-
man var Chicago ekki valin til
að hýsa Ólympíuleikana 2016 en
það hefði getað beint kastljós-
inu í aðrar áttir. Myndbandið
þykir ekki síst skondið í ljósi
þess að áhorfendur skella upp úr
á mjög vandræðalegum stöðum
en þagna um leið og þeim verður
ljóst að Letterman hélt framhjá
konunni sinni.
SKRÝTIÐ MÁL
David Letterman
viðurkenndi í
beinni útsend-
ingu að hann
hefði átt í
kynferðislegu
sambandi við
fjölmargar konur
á sjónvarpsstöð-
inni CBS.
> DULNEFNI SPEARS
Í nýrri ævisögu söngkonunnar Britn-
ey Spears kemur fram að hún eigi
sér fjöldan allan af dulnefnum sem
hún notar þegar hún dvelur á hót-
elum. Má þar nefna nöfn á borð við
Ms. Alotta Warmheart og Mrs. Abra
Cadabra.
VERTU KLÁR FYRIR
VETURINN Í ECCO
GORE-TEX SKÓM
75942 56037
Snowboarder
Track Uno Track Uno
72992 53994
Winter QueenSnowride
KRINGLAN
SMÁRALIND
Snowride
Snowboarder
Letterman viðurkennir framhjáhald