Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 94
3. október 2009 LAUGARDAGUR
Gamansketsar Steinda Jr.
sem sýndir voru á Skjáein-
um í sumar gerðu piltinn að
einum vinsælasta grínista
landsins á mjög skömmum
tíma. Fréttablaðið yfir-
heyrði þennan dreng sem
er stoltur af því að búa í
Mosfellsbæ.
Hægt er að finna fjölda myndbrota
með Steinda, sem réttu nafni heitir
Steinþór Steinþórsson, á vefsíðunni
Youtube.com, þar á meðal er gam-
alt myndskeið frá árinu 1999 þar
sem Steindi gerir sofandi móður
sinni ljótan grikk. Aðspurður seg-
ist hann hafa tekið upp gamanefni
frá því að hann var smá gutti. „Ég
hef verið að taka upp sketsa frá
því að ég man eftir mér og mynd-
bandið með mömmu var það fyrsta
sem ég gerði. Ég hafði keypt mér
nýja myndavél fyrr um daginn sem
þurfti að hlaða í marga klukkutíma
og þegar hún var fullhlaðin ákvað
ég að vekja mömmu með þessum
hætti. Ég skráði myndina í stutt-
myndakeppni Skjáseins og Hins
hússins sama ár og hún var valin
„Frumlegasta myndin“ og var
send ásamt hinum sigurmyndun-
um á einhverja kvikmyndahátíð í
Berlin. Ég veit samt ekkert hvað
varð um hana.“
Byrjar daginn á bjór
Steindi vinnur nú að nýju efni
ásamt Ágústi Bent, sem klippti og
framleiddi gamanþættina fyrir
Mónitor, fyrir nýjan þátt sem
sýndur verður á Skjáeinum í jan-
úar á næsta ári. Þátturinn hefur
hlotið nafnið Steindinn okkar og
verður að sögn Steinda ferskur og
hárbeittur. „Þegar við Ágúst Bent
unnum að þáttunum fyrir Mónitor
töluðum við um að reyna að kom-
ast að með okkar eigin þátt. Þetta
verður ferskur og beittur þátt-
ur með skemmtilegum karakter-
um og tónlistaratriðum,“ útskýrir
Steindi sem er að eigin sögn algjör-
lega takt- og laglaus.
Tökur á þáttunum hefjast 17.
október og að sögn Steinda hefur
gengið vel að semja handritið að
þáttunum. „Þetta er búið að vera
algjört letilíf sem við höfum lifað.
Við byrjum daginn yfirleitt á því
að sturta í okkur nokkrum bjór-
um til að liðka okkur og svo keðju-
reykir maður ofan í það. Við sitjum
svo og köstum á milli okkar hug-
myndum að efni allan daginn. Það
er nokkur pressa sem fylgir þessu
því við verðum að skrifa ákveð-
ið marga sketsa á dag til að eiga
nógu mikið efni fyrir þáttinn. Við
komum með kannski þrjátíu nýjar
hugmyndir á dag, en mikið af því
er ónothæft kjaftæði.“
Kyntákn með bumbu
Aðspurður segist Steindi ekki
finna fyrir auknum vinsældum
sínum og vill ekki kannast við
það að vera orðinn frægur. „Mér
finnst ég ekkert vera frægur. Það
er helst að maður verði var við að
unglingar horfi á mann úti á götu
eða að drukkið fólk komi og spjalli
við mann. En ég hef bara gaman
af því.“
Auk þess að vera orðinn þekkt
andlit hélt fyrrverandi ritstjóri
tímaritsins Mónitors því eitt sinn
fram að Steindi væri kyntákn
sinnar kynslóðar. Spurður út í þau
ummæli segist Steindi algjörlega
ósammála. „Ef það að vera kyn-
tákn þýðir að vera lágvaxinn með
úfið hár og bumbu, þá já, þá er ég
mikið kyntákn.“
Vinsældir Steinda urðu til þess
að stofnaður var hópur á sam-
skiptavefnum Fésbók þar sem
óskað var eftir því að Steindi yrði
fenginn í hóp þeirra leikara sem
fara með hlutverk í áramótaskaupi
Sjónvarpsins. „Mér fannst mjög
gaman að heyra af þessu enda er
þetta mikið hrós.“ Inntur eftir því
hvort hann muni taka að sér hlut-
verk standi það til boða segir hann
það fara eftir ýmsu. „Ef handritið
er gott þá mundi ég að sjálfsögðu
gera það, en ég mundi ekki taka
að mér að leika hvað sem er. Ég
mundi til dæmis ekki leika Davíð
Oddsson og vera með krullur eða
eitthvað álíka ógeðslegt.“
Keyrir um á druslu
Talið berst frá Davíð Oddssyni
að efnahagsástandinu og segist
Steindi hafa sloppið ágætlega frá
bankahruninu. Hann ekur um á
gömlum bíl og keypti sér íbúð í
Mosfellsbæ á hagstæðum lánum.
„Ég slapp nokkuð vel. Ég tók
engin myntkörfulán og keyri um
á heimsins mestu druslu sem ég
þarf reglulega að ýta í gang og er
alltaf að bila.“ Spurður út í IceSa-
ve-samninginn og afsögn Ögmund-
ar Jónassonar segist Steindi lítið
velta sér upp úr pólitík. „Ég veit
ekki með þessa pólitík í dag, mér
finnst hún vera algjört djók. Þetta
er allt saman bara algjört djók.“
Spurður út í framtíðaráform sín
segir Steindi að þau séu enn óráð-
in. „Ég veit ekki nákvæmlega hvað
ég tek mér fyrir hendur í framtíð-
inni, en ég ætla alveg örugglega
ekki í lögfræði.
Skemmtilegast þykir mér að
skrifa og leiklistin höfðar einnig til
mín. Það gæti vel verið að maður
leggi hana fyrir sig í framtíðinni,“
segir Steindi. „Þegar tökum á
Steindanum okkar er lokið langar
mig líka að prófa að skrifa uppi-
stand og fara á smá flakk með það.
En ég er kominn til að vera, það er
alveg víst. Þjóðin er ekkert að fara
að losna við mig. Þetta er bara rétt
að byrja.“
sara@frettabladid.is
Þjóðin losnar ekki við mig
KOMINN TIL AÐ VERA Von er á nýjum gamanþáttum með Steinda Jr. í byrjun næsta
árs. Hann segir að íslenska þjóðin losni ekki við hann á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Hann mætti ekki en ég bind vonir við
að hann komi í desember. Hann var
líka svo stuttan tíma hérna,“ segir
Friðrik Weisshappel, eigandi Laun-
dromat í Kaupmannahöfn. Hann
tók sig til, keypti heilsíðuauglýs-
ingu í danska stórblaðinu Politik-
en og bauð Barack Obama, forseta
Bandaríkjanna, í hamborgara. Til
þess að boðskortið færi nú örugglega
ekki framhjá Obama voru auglýsinga-
spjöld hengd upp um alla borg en allt
kom fyrir ekki, Obama hafði ekki tíma
til að koma með konu sinni og fá sér ham-
borgara. Obama kom til Danmerkur í gær til
að leggja sitt á vogarskálarnar í baráttunni
um Ólympíuleikana 2016 en heimaborg hans,
Chicago, var ein þeirra sem kom til greina.
Obama mátti sín lítils því Rio de Janeiro var
valin. Friðrik segir Kaupmannahöfn hafa
farið á annan endann í bókstaflegum skiln-
ingi, götum hafi verið lokað, flugvöllum líka
og bein útsending var frá öllum fimm tímun-
um sem Obama dvaldist í Kaupmannahöfn á
stærstu sjónvarpsstöðvum landsins.
Friðrik segist hafa fengið gríðarlega góð
viðbrögð við þessu uppátæki sínu en fjall-
að hefur verið um boðskortið á nokkrum
erlendum vefsíðum sem og í öðrum dönsk-
um fjölmiðlum. Athafnamaðurinn hyggst
þó ekki ætla að bjóða upp á Barack-borgara
í kjölfarið. „Nei, mér finnst það alltof aug-
lýsingalegt, það er líka búið að gera það ein-
hvers staðar.“ - fgg
Obama kom ekki til Frikka
VAKTI MIKLA ATHYGLI Boðskort
Friðriks til Barack Obama vakti
töluverða athygli en veitinga-
húsamaðurinn bindur vonir við
að forsetinn komi í desem-
ber.