Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 95
LAUGARDAGUR 3. október 2009 59
Ný plata með Fabúlu, In Your Skin, kemur út
í lok október. „Platan var tekin upp niðri við
höfn í Hafnarfirði í hljóðveri Rafnsbræðra,
Error, við vængjaþyt og fiskiilm,“ segir Mar-
grét Kristín Sigurðardóttir, Fabúla. „Platan
dvelur meira við léttu hliðar lífsins frekar en
þær angurværu eins og síðasta platan, Dusk,
gerði. Dusk var blá, en þessi rauðari.“
Plötuna tileinkar Margrét foreldrum sínum,
þeim Jóhönnu G Möller og Sigurði Pálssyni.
„Það er eitt lag til hvors þeirra á plötunni. „Ból
mitt“ heitir mömmu-lag og hefst inni í henni –
en bólið hefur enn merkingu, því hjá henni er
eilífur griðastaður. Ég ólst upp vestast í vest-
urbænum með móa, tjarnir, fjöru, torfæruhóla
og öskuhauga sem leiksvæði. Dagarnir voru
samfellt ævintýri og heima beið mamma bros-
andi með faðminn útbreiddan. Lagið er óður til
hennar fyrir að vera þessi vermandi eldur, en
eira samt svo lengi á sama stað.“
Margrét segir „pabba-lagið“ heita „í gegn-
um glerið“ – „Við pabbi sáumst fyrst í gegnum
gler. Mamma fékk blóðtappa í kjölfarið á fæð-
ingunni, svo við mæðgurnar þurftum að vera
nokkrar vikur á sjúkrahúsi. Í þá daga fengu
feðurnir ekki að snerta börnin sín á fæðingar-
deildinni, aðeins að horfa á þau í gegnum gler.
„Í gegnum glerið“ fann ég fyrir hlýrri nær-
veru hins dökkhærða manns og fann að hjarta
mitt var gróðursett í hjarta hans.“
Næstkomandi þriðjudag heldur Fabúla „for-
útgáfutónleika“ á Rósenberg og hefjast þeir
klukkan 21. Með henni leika Birkir Rafn Gísla-
son á gítar, en hann vann nýju plötuna með
Margréti, Jökull Jörgensen á bassa, Scott
McLemore á trommur, Margrét Árnadóttir
á selló og Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu.
Fyrsta lagið af plötunni, „Monster“, má nú
heyra á myspace.com/fabulaband.
- drg
Samkvæmt tímaritinu The Vibe
hagaði rapparinn Kanye West sér
eins og díva baksviðs á góðgerða-
tónleikum í Hollywood. Sagan
segir að þegar Kanye sá aðra
gesti samkomunnar narta í kjúkl-
ingabita hafi hann misst stjórn á
skapi sínu og heimtað bita handa
sjálfum sér. „Af hverju var mér
ekki boðinn kjúklingur? Á ég
að koma fram án þess að þiggja
neitt að launum, allir aðrir eru
að borða, af hverju er ég ekki að
borða?“ á hann að hafa öskrað á
einn þjóninn. Rapparinn fékk í
kjölfarið kjúklingabit-
ann sinn og því fékk
sagan farsælan endi.
Vill kjúkling
Rivers Cuomo og félagar í hljóm-
sveitinni Weezer fá hjálp frá
hinum fagurskreytta Lil‘ Wayne
á nýjustu plötu sinni, Raditude,
sem kemur út í enda október.
Wayne og Weezer koma saman
fram í laginu Can‘t Stop Party-
ing, en búast má við að uppátæk-
ið falli í grýttan jarðveg aðdá-
enda Weezer. Þá er óvíst hvernig
aðdáendur Lil‘ Wayne taka frétt-
unum, en hann hefur undanfar-
ið unnið að plötunni Rebirth sem
á að marka fyrstu skref hans í
rokkbransanum.
„Það var mikil þrekraun fyrir
mig að taka slípuðu hugmynd-
irnar hans og láta þær virka með
rokkinu okkar,“ segir Cuomo.
„Margir rapparar hefðu slegið
þessu upp í kæruleysi, en hann
gaf laginu tóninn sem ég var að
leita að.“
Þetta er ekki eina óhefðbundna
leiðin sem Weezer fer á plöt-
unni, en hljómsveitin mun flytja
blöndu af MGMT-slagaranum
Kids og Lady Gaga-smellinum
Poker Face.
Weezer leitar
til Lil‘ Wayne
WEEZER Kallarnir koma sífellt á óvart.
DÍVA
Rapp-
arinn er
þekktur
fyrir
skap
sitt.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Á ÞRIÐJUDAGINN Margrét Kristín
Sigurðardóttir, Fabúla, með trommu á bakinu.
MYND/BÖRGE WIGUM
Rauðari Fabúla á nýrri plötu
Tónlistarmaðurinn Guðmund-
ur Vignir Karlsson hefur verið
að grúska í tónlist undir nafninu
Kippi Kanin-
us um nokk-
urra ára skeið.
Fyrir fjór-
um árum gaf
hann út plötuna
Happens Sec-
retly sem fékk
ágætis viðtökur.
Í vikunni dúkk-
aði upp dómur
um plötuna á vef Clashmusic.
Gagnrýnandinn, David Rens-
haw, fer nokkuð fögrum orðum
um plötu Kippa. Hann segir tón-
listina áhugaverða raftónlist sem
krefjist þess að hlustað sé vel á
hana. Platan fær 7 í einkunn af 10
mögulegum.
Kippi fær sjöu
KIPPI KANINUS
Ego Dekor - Bæjarlind 12
S: 544 4420 - www.egodekor.is
Opið mán-fös: 10.00-18.00
Opið um helgina: lau: 10.00-16.00 - sun: 13.00-16.00
FULL BÚÐ AF FALLEGUM HÚSGÖGNUM
ROMEO leðurtungusófi
Stærð: 285X165
Fáanlegur í svörtu leðri
Verð: 289.000,-
DIVANY
einnig fáanlegt í svörtu háglans
Skenkur 240cm
Verð: 199.000,-
Borðstofuborð 200x100 og 140x140
Verð: 118.000,-
Spegill 140x90
Verð: 32.000,-
COMO
Stækkanleg borðstofuborð í hnotu
160(248)x100
Verð: 159.000,-
200(288)x110
Verð: 179.000,-
Vegghengdur skenkur 182cm
Verð: 108.000,-
AIR tungusófi
2 mynstraðir púðar fylgja
Stærð: 297x155cm
Verð áður: 238.000,-
Verð nú: 166.600,-
GRANDO tungusófi
Stærð: 230x157cm
Færanleg tunga
Verð áður: 168.000,-
Verð nú: 134.400,-
-20%-25%
SABINE Leðurstóll
Einning fáanlegur í brúnu
og svörtu leðri
Verð: 16.800,-
SARINA stóll
Einnig fáanlegur í hvítu
Verð: 14.800,-
VISION
leðursófasett
Fáanlegt í svörtu og
hvítu leðri
3ja sæta
Verð: 169.000,-
Stóll
Verð: 85.000,-