Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 96
60 3. október 2009 LAUGARDAGUR
Hin svokölluðu IG-nóbelsverðlaun
voru nýlega veitt þeim sem skar-
að hafa fram úr í bjánaskap. Tíma-
rit Harvard-háskólans veitir verð-
launin stuttu fyrir hin eiginlegu
Nóbelsverðlaun.
Verðlaun eru veitt í tíu flokkum
og fengu föllnu íslensku bankarn-
ir þrír auk Seðlabankans verðlaun
í hagfræði fyrir að sýna fram á að
hægt sé að breyta smábönkum í
stórbanka, og öfugt – og fyrir að
sýna fram á að hægt sé að gera
svipað við hagkerfi heillar þjóðar.
Enginn frá Íslandi var viðstaddur
til að taka við háðungarverðlaun-
unum, en flestir hinna létu sjá sig.
Þar á meðal voru menn frá háskól-
anum í Bern sem fengu „friðar-
verðlaun“ fyrir að sýna fram á að
áhrifameira er að slá fólk í haus-
inn með fullri flösku en tómri,
þrír Ameríkanar sem fengu „lýð-
heilsuverðlaun“ fyrir að finna upp
brjóstahaldara sem auðveldlega
má breyta í gasgrímu og Englend-
ingar sem fengu verðlaun í flokki
dýralækninga fyrir að sýna fram á
að kýr sem bera nöfn mjólka meira
en nafnlausar kýr.
Íslenskir banka-
menn fá verðlaun
Í GÓÐUM HÓPI Enginn bankamannanna lét sjá við verðlaunaafhendinguna.
Tónlist ★★★
Sehr Gut Cocktail
DJ Musician
Góður en fábreyttur kokkteill
Sehr Gut Cocktail er önnur plata DJ Musician í fullri
lengd, en sú fyrri, My Friend Is a Record Player, kom
landsmönnum í stuð fyrir fimm árum. Í millitíðinni
kom svo smáskífan frábæra Klinsi sem skartaði
bráðfallegri mynd af Jürgen Klinsmann á framhlið
umslags.
Tónlist DJ Musician er gamaldags partíteknó – ein-
falt og melódískt. Áhrifa gætir frá þýsku teknófrum-
herjunum í Kraftwerk og stemningin og hljómurinn eru líka í anda níunda
áratugarins. Platan hefst á snilldarlaginu „Techno Liebe“ og svo tekur hver
pumpandi stuðsmellurinn við af öðrum. Það er húmor í tónlistinni sjálfri og
líka laganöfnunum. „Rave Sehr Gut“, „I Love Happy Hour“ og „Kristin Tanzt“
eru ágæt dæmi. Lögin eru misgóð, en platan endar eins og hún byrjar á
hápunkti – laginu „I Put My Hand Up In the Air“ en í því nýtur DJ Musician
liðsinnis Foxy Princess.
Á heildina litið er Sehr Gut Cocktail hin besta skemmtun, en tónlistin er
samt full einhæf fyrir plötu í fullri lengd. Þetta hefði verið fullkomin fimm
laga EP.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Frekar einhæf en full af pumpandi partístuði.
Jólin og jólaplötuflóðið
nálgast. Þótt margar stór-
kanónur eins og Bjöggi
og Hjálmar hafi nú þegar
gefið út sína diska er von
á mörgum athyglisverðum
útgáfum á næstu vikum og
mánuðum.
Á „hrunadaginn“ mikla, 6. októb-
er, gerast þau stórtíðindi að Egó
mætir með nýja plötu, sem heitir
einfaldlega 6. október. Lagið sem
hóf endurkomu Egósins, „Kannski
varð bylting vorið 2009“, er ekki á
plötunni, ekki frekar en Þjóðhátíð-
arlagið. Öll hin nýju Ególögin eru
hins vegar á sínum stað, auk fleiri
nýrra, samtals tólf lög. „Mjög sterk
plata“ er orðið á götunni.
Friðrik Ómar og Jógvan eru
saman skráðir fyrir plötunni Vina-
lög. Þar eru tíu vel þekkt íslensk
lög sem Jógvan syngur á færeysku
og tíu vel þekkt færeysk lög sem
Friðrik Ómar syngur á íslensku.
Þessi plata kemur út 12. október
eins og önnur sólóplata Hafdísar
Huld, Synchronised Swimmers.
Seinna í mánuðinum kemur ný
plata með Ellen Kristjánsdóttur,
Draumey. Pétur Ben stýrði upp-
tökum á plötunni. Helgi Björns
kemur með plötuna Kampavín, en
þar syngur hann lítt þekkta amer-
íska R&B-slagara við íslenska
texta. Tregagás heitir ný plata
með Ragnheiði Gröndal, sem er
sjálfstætt framhald þjóðlagaplötu
Röggu frá 2006.
Í nóvember er von á nýrri sóló-
plötu frá Stefáni Hilmarssyni,
sem nefnist Rökkur (söngvar um
ástina og lífið), og fyrsta sólóplata
Jóhanns G. Jóhannssonar í lang-
an tíma kemur einnig í nóvember
og heitir Á langri leið. Þá er ný
Strumpa-plata væntanleg, þar sem
bláu krílin syngja nýja íslenska
slagara eins og „Bahama“ og „Þú
komst við hjartað í mér“.
Fullt af rokki
Verið er að fínpússa nýjustu plötu
stórsveitarinnar Hjaltalín í þess-
um töluðum orðum. Platan er enn
nafnlaus en ætti að koma út um
miðjan nóvember. Þriðja plata
Morðingjanna heitir Flóttinn
mikli og á að koma út 10. nóvem-
ber. Rokksveitin Me, the Slumb-
ering Napoleon kemur með plötu
í fullri lengd um svipað leyti. Hún
á að heita The Bloody Core of It
All og eitt lagið heitir því áhuga-
verða nafni „I Wanna Know Things
About Stuff“. Þriðja plata Kimono
mun detta inn fyrir jól og heitir
„Easy Music for Difficult People“.
Seabear er nánast tilbúin með nýja
plötu sem kemur þó ekki fyrr en
eftir jól, en náfrændi Seabear, Sin
Fang Bous, kemur að öllum líkind-
um með nýja plötu. Platan „Found
Songs“ sem Ólafur Arnalds gerði
á einni viku kemur út fyrir jól en
Ólöf Arnalds bíður með sína plötu
fram á næsta ár. Þá er Snorri
Helgason úr Sprengjuhöllinni nán-
ast tilbúinn með sína fyrstu plötu,
en fyrsta lagið sem heyrðist af
henni, „Freeze Out“, hefur verið
að gera það gott. Lay Low gefur út
Flatey, sem inniheldur lög frá ferl-
inum tekin upp á tónleikum í Flat-
ey. Þá leiða þau Eberg og Rósa í
Sometime saman hesta sína á heilli
plötu undir nafninu Feldberg.
Og enn meira rokk og popp!
Önnur plata Bloodgroup kemur út
í nóvember. Þriðja plata Láru Rún-
arsdóttir, Surprise, kemur út 13.
október, sem og fyrsta breiðskífa
hljómsveitarinnar Sykur, Frábært
eða frábært. Á plötunni syngja
Katrína Mogensen úr Mamm-
út og Rakel Mjöll Leifsdóttir og
Erpur Eyvindarson rappar eitt
lag. Helmingur plötunnar verður
svo ósunginn. Kölskaútgáfa Barða
í Bang Gang gefur út nýjar plötur
með rokksveitunum Ourlives og
Diktu. Þetta er fyrsta plata Ourli-
ves en þriðja plata Diktu. Frá smá-
merkinu Brak eru væntanlegar
plötur með proggsveitinni Caterp-
illar Man og safnplata með trúba-
dornum Insol. Þetta verða síðustu
plötur Braks á árinu, en í desem-
ber verður öllum plötunum safnað
saman í kassa. Talandi um kassa,
þá er von á öllum fjórum plötum
Hjálma á vínylplötum og verða
þær seldar saman í kassa, en einn-
ig hver í sínu lagi. Margrét Kristín
Fabúla gefur út sólóplötuna sína In
Your Skin og von er á nýrri plötu
með Jóhanni Jóhannssyni Appar-
atmanni. Buffið tekur fyrir nokk-
ur lög eftir Magnús Eiríksson á
plötunni Reyndu aftur. Platan er
væntanleg 10. október, sama dag
og ævisaga Magnúsar, sem heitir
líka Reyndu aftur, kemur út.
Eflaust á mjög margt eftir að
bætast við þessa upptalningu. Það
er því alveg á hreinu að tónlistar-
áhugafólk kemst í feitt fyrir þessi
jól eins og þau fyrri.
drgunni@frettabladid.is
EGÓ OG STRUMPARNIR SNÚA AFTUR
6. OKTÓBER Egó snýr aftur 25 árum síðar með fjórðu plötuna. LENGI VON Á EINUM Jóhann G.
Jóhannsson kemur með Á rangri leið í
nóvember.
BLÁTT POPP Strumparnir koma
með nýja plötu!