Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 101
LAUGARDAGUR 3. október 2009 65
FÓTBOLTI Þjálfarar og fyrirlið-
ar Fram og Breiðabliks eru
sammála um að taka þurfi upp
umræðu um að breyta tímasetn-
ingu úrslitaleiks bikarkeppninn-
ar. Flestir vilja að leikurinn fari
fram í ágúst en ekki í byrjun okt-
óber eins og nú.
Þarf víðtæka umræðu
„Ég held að
það sé kominn
tími til að menn
setjist niður og
velti því fyrir
sér hvort það
sé kominn tími
til að breyta
þessu. Menn
prufuðu núver-
andi fyrirkomu-
lag í þeirri trú
að þetta væri góður kostur. Sem
flestir þurfa að koma að umræð-
unni – ekki bara 2-3 sérfræðingar
inni á skrifstofu,“ sagði Þorvald-
ur Örlygsson, þjálfari Fram.
Vilji langflestra að breyta
„Ég myndi
vilja að úrslita-
leikurinn færi
fram í ágúst. Ég
held að það sé
vilji langflestra
sem koma að
boltanum. En
það er nauðsyn-
legt að umræð-
an deyi ekki
þegar þessi leikur klárast núna
um helgina og komi svo ekki
aftur upp fyrr en í september á
næsta ári,“ sagði Ólafur Kristj-
ánsson, þjálfari Breiðabliks.
Umfjöllun yrði meiri
„Ég vildi að
leikurinn færi
frekar fram
þegar vel væri
liðið á ágúst-
mánuð. Bæði
væri veður-
far betra og
umfjöllun um
íslenskan fót-
bolta er meiri þá. Í dag blandast
inn í umræðuna aðrar íþróttir
eins og handbolti og körfubolti,
sem og erlendur fótbolti. Það
væri bikarkeppninni til fram-
dráttar ef úrslitaleikurinn færi
fram í kringum 20. ágúst,“ sagði
Auðun Helgason, Fram.
Ekki mikið eftir af sumrinu
„Það hefur
verið fullyrt
að vilji sé til
að hafa bik-
arúrslitaleik-
inn síðasta leik
sumarsins en
hversu mikið er
eftir af sumrinu
í október? Per-
sónulega þætti mér skemmtilegra
að spila í aðeins hlýrra veðurfari,
en það gæti verið erfitt að finna
tíma fyrir bikarúrslitaleikinn
áður en keppni í deildinni lýkur,
enda leikjadagskráin þétt eftir að
fjölgað var í tólf lið í deildinni,“
sagði Kári Ársælsson, Breiðabliki.
Tímasetning úrslitaleiksins:
Umræðan er
nauðsynleg
KÁRI ÁRSÆLSSON
AUÐUN HELGASON
ÓLAFUR
KRISTJÁNSSON
ÞORVALDUR
ÖRLYGSSON
FÓTBOLTI Valur og Breiðablik mæt-
ast á morgun í úrslitum VISA-bik-
arkeppni kvenna á Laugardals-
velli. Leikurinn hefst klukkan 14.
Valur er ríkjandi Íslandsmeist-
ari en Breiðablik tryggði sér annað
sæti Pepsi-deildar kvenna í loka-
umferð deildarinnar um síðustu
helgi. En þó svo að Valur hafi orðið
meistari hafði Breiðablik betur í
innbyrðisviðureignum liðanna í
sumar. Engu að síður telur Gary
Wake, þjálfari Blika, að Valur sé
sigurstranglegra liðið.
„Bikarleikir ráðast oft á dags-
formi liðanna en ég tel samt að
það sé aðeins minni pressa á okkur
fyrir leikinn en á Val. Miðað við
það sem ég hef heyrt eru þeir
fleiri sem spá Val sigri og það er
gott fyrir okkur,“ sagði Gary.
Hann segir einnig að það gæti
haft sitt að segja að hafa misst
Hörpu Þorsteinsdóttir í meiðsli og
Söndru Sif Magnúsdóttur í nám til
Bandaríkjanna. „En það er bara
undir öðrum komið að stíga upp
og spila eins vel og við þurfum til
að vinna Val.“
Valur mætti ítölsku liði ytra í
Meistaradeild Evrópu á miðviku-
daginn og hefur því haft lítinn
tíma til að undirbúa sig fyrir bik-
arúrslitin.
„Í raun hefst undirbúningur-
inn með æfingu síðar í dag,“ sagði
Freyr við Fréttablaðið í gær. „En
við erum mjög vel stemmd eftir
góða ferð til Ítalíu að mæta sterk-
um Blikum í íslenskri veðráttu.“
Valur átti möguleika á að vinna
tvöfalt í fyrra en tapaði þá fyrir
KR í bikarúrslitunum, 4-0. „Það
var skelfilegt og situr í okkur.
Úrslit þessa leiks munu hvetja
okkur til dáða um helgina enda
ætlum við ekki að tapa tveimur
bikarleikjum í röð.“
Hann segir að það væri frábær
árangur að vinna tvöfalt í ár. „Það
voru miklar breytingar á liðinu og
sumir höfðu ekki trú á því að við
myndum vinna titil í ár. Það væri
frábært að svara því með því að
vinna tvo og sýna að við erum með
afgerandi lið hér heima. Það myndi
senda skýr skilaboð.“ - esá
Valur og Breiðablik mætast í úrslitaleik VISA-bikarkeppni kvenna á morgun:
Sigur myndi senda skýr skilaboð
MÆTAST Á MORGUN Erna Björk Sigurðardóttir, Breiðabliki, og Hallbera Guðný Gísla-
dóttir, Val. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI