Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 110
74 3. október 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. skák, 6. íþróttafélag, 8. titill, 9.
eldsneyti, 11. rykkorn, 12. ráðagerð,
14. afkima, 16. drykkur, 17. saur, 18.
kerald, 20. íþróttafélag, 21. bylgja.
LÓÐRÉTT
1. þurrka út, 3. frá, 4. athafnasemi, 5.
blund, 7. hóf, 10. stormur, 13. meðvit-
undarleysi, 15. sjá eftir, 16. blekking,
19. til.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. tafl, 6. fh, 8. frú, 9. mór,
11. ar, 12. áform, 14. skoti, 16. te, 17.
tað, 18. áma, 20. kr, 21. liða.
LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. af, 4. framtak,
5. lúr, 7. hófsemi, 10. rok, 13. rot, 15.
iðra, 16. tál, 19. að.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Matti Vanhanen.
2 Sextíu ár frá byltingu
kommúnista.
3 Ólafur Þórðarson.
„Ég ákvað að skella mér út. Það
var skyndiákvörðun, það er alltaf
skemmtilegast,“ segir fyrirsætan
og neminn Kristrún Ösp Barkar-
dóttir.
Kristrún flaug út til London í
morgun í boði fótboltakappans
Dwight Yorke. Born to Score, ævi-
saga Yorke, kom út í gær og Krist-
rún hyggst fagna útgáfunni með
honum um helgina. Þau eru góðir
vinir og hafa hist reglulega und-
anfarin misseri. Yorke er þekkt-
ur markaskorari og hefur spilað
með liðum á borð við Aston Villa
og Manchester United. Hann lagði
nýlega skóna á hilluna.
Kristrún er spennt fyrir ferð-
inni og segir að hver dagur sé
ævintýri með fótboltakappanum.
„Við förum í partí á laugardags-
kvöldið og út að borða og svona.
Ég veit ekki hvað við gerum á
sunnudaginn,“ segir hún. „Það er
yfirleitt prógramm allan tímann
og við gerum alltaf eitthvað nýtt
sem ég hef ekki gert áður.“
Breska pressan er þekkt fyrir
aðgangshörku, en Kristrún
segir að þau séu að mestu látin
í friði þar sem hann er hættur
að spila. „Það er samt alltaf eitt-
hvað aðeins,“ segir hann. „En við
fáum alls staðar athygli sem við
förum.“
Það má þó búast við að athyglin
aukist um helgina, þar sem fjöl-
miðlar hafa hreinlega étið upp
það sem Yorke segir í ævisög-
unni um samband sitt við glam-
úrfyrirsætuna Katie Price, einn-
ig þekkta sem Jordan. Þau áttu
í ástarsambandi fyrir nokkrum
árum og eignuðust soninn Har-
vey. Jordan hefur sakað Yorke
um að taka ekki þátt í uppeldinu,
en hann sakar hana um að leyfa
sér það ekki.
Yorke talar opinskátt um kyn-
líf sitt og Jordan í bókinni. Hann
segir meðal annars að hún hafi
verið tvískiptur persónuleiki í
rúminu; verið ljúf sem Katie Price
og afar kinkí sem Jordan. Jordan
er gríðarlega þekkt í Bretlandi.
Hún hefur sent frá sér bækur,
nærfatalínur og margt fleira
ásamt því að hafa setið nakin
fyrir í fjölmörgum tímaritum.
Jordan hóf feril sinn á síðu 3 í
breska götublaðinu The Sun, en
Kristrúnu hefur einnig verið boðið
að sitja þar fyrir. „Ég ætla aðeins
að bíða með það. Gera þetta frekar
rétt og vel,“ segir hún. Stúlkurn-
ar á síðu 3 sitja fyrir berbrjósta,
en ætli Kristrún sé ekkert feim-
in? „Nei, ekkert feimin, ekki til í
mér!“ atlifannar@frettabladid.is
KRISTRÚN ÖSP BARKARDÓTTIR: TIL LONDON Í BOÐI FÓTBOLTAKAPPA
Fagnar með Dwight Yorke
SKEMMTA SÉR SAMAN
Kristrún og Dwight Yorke verða í sviðsljósinu um helg-
ina og hefur Kristrúnu verið boðið að sitja fyrir í breskum
blöðum. Jordan er ein þekktasta glamúrfyrirsæta Bret-
lands og á barn með Dwight Yorke.
„Hún er allavega farin í þróun, við sjáum svo til
hvernig gengur að fjármagna hana,“ segir Björn
Brynjúlfur Björnsson kvikmyndagerðarmaður.
Hann samdi nýlega við glæpasagnarithöfundinn
Viktor Arnar Ingólfsson um að gera sjónvarpsser-
íu byggða á bók Viktors, Flateyjargátu. Þeir tveir
hafa áður ruglað saman reytum því Björn Brynjúlf-
ur leikstýrði einnig þáttaröðinni Mannaveiðum sem
byggð var á bók Viktors og sýnd á RÚV.
Björn viðurkennir að þetta samkomulag komi
kannski ekki á besta tíma en eins og lesa má framar
í Fréttablaðinu verða framlög til sjónvarps- og kvik-
myndagerðar skorin niður um rúman þriðjung sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Björn segist
hins vegar vera vongóður og ætlar ekki að leggja árar
í bát. „Þetta er flott saga sem hefur verið gefin út víða
í Evrópu og ég vænti mjög góðs af þessu samstarfi.“
Björn segir það hafa heillað sig að Flateyjargátan
sé óvenjuleg bók, hún gerist að mestu leyti úti í Flat-
ey og tengist íslensku handritunum. „Það er svona
smá Da Vinci-tenging og svo eru líka óvenjulegar og
skemmtilegar persónur og óvenjulegt sögusvið. Það
er alltaf gaman að gera eitthvað sem er svona mikið
öðruvísi og sýnir ekki bara lögreglumenn hlaupandi
um götur Reykjavíkur.“ - fgg
Flateyjargáta í sjónvarpið
SKRIFAÐ UNDIR SAMSTARFIÐ Björn Brynjúlfur og Viktor Arnar
handsala samninginn um að gera sjónvarpsseríu eftir bók
rithöfundarins, Flateyjargátu. MYND/JPV
„Ég var að sýna konunni hvernig
ég lít út. Við áttum trúlofunaraf-
mæli og hana langaði að sjá hvern-
ig ég leit út þegar við trúlofuðum
okkur. Ég rakaði allt af og sagði
„svona var ég“. Henni leist vel á
og vill að ég verði svona,“ segir
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík.
Ungleg ásýnd Geirs Jóns hefur
vakið athygli undanfarna daga.
Áður en hann rakaði sig hafði
hann verið verið skeggjaður í
fjöldamörg ár – svo lengi að dótt-
ir hans ætlaði varla að þekkja
hann án andlitsháranna. „Henni
brá þegar hún sá mann í mínum
hægindastól. Hún hefur líklega
aldrei séð mig skegglausan,“ segir
hann.
Geir Jón segist hafa fengið mjög
jákvæð viðbrögð frá fólki, þó að
hann sé sjálfur ennþá að venjast
breyttu útliti. „Ég er að jafna mig
á þessu. Mér fannst ég vera eins
reytt hænurassgat. Þetta eru við-
brigði. En fólki finnst ég vera svo
miklu unglegri – maður yngist upp
við þetta. Ekki veitti af!“
Afbrotamenn hafa hingað til
ekki gert sérstakar athugasemdir
við skeggleysi Geir Jóns og enginn
hefur farið mannavillt. „Nei, ég
hef ekki orðið var við það,“ segir
hann. „Það þekkja mig nú allir þó
að ég sé búinn að raka mig.“ - afb
Geir Jón rakaði sig fyrir eiginkonuna
BREYTT ÚTLIT Geir Jón er svo unglegur
að dóttir hans þekkti hann ekki þegar
hún sá hann án skeggsins.
Væntanlega verður slegist um
fjarstýringuna á heimili leikara-
parsins Jörundar Ragnarssonar
og Dóru Jóhannsdóttur annað
kvöld. Þá verður frumsýndur fyrsti
þátturinn af Hamrinum,
fjögurra þátta spennu-
seríu í leikstjórn Reynis
Lyngdals. Dóra leikur
þar aðalhlutverkið á
móti Birni Hlyni Har-
aldssyni en á sama
tíma er Jörundur
einmitt á bak við
lás og slá sem
Daníel í Fanga-
vaktinni.
Aðeins meir af sjónvarpi því
Spaugstofan sneri til baka um
síðustu helgi og markaðsdeild RÚV
hefur væntanlega verið ánægð
með það. Þátturinn reyndist
auðvitað sá vinsælasti þá vikuna
samkvæmt mælingum Capacent
Gallup en fast á hæla hans kom
síðan spurningaþátturinn Útsvar,
sem virðist eiga sér
sístækkandi aðdáenda-
hóp. Bronsið fékk
Fangavaktin
en 34 prósent
þjóðarinnar
horfðu á
fyrsta þáttinn,
sem verður
að teljast
nokkuð vel af
sér vikið með
hliðsjón af því
að um áskrift-
arsjónvarp er
að ræða.
Það vakti mikla athygli fyrir viku
þegar Fréttablaðið birti nafnlausa
auglýsingu með mynd af litlum
strák sem var handjárnaður. Hvergi
kom fram hver auglýsandinn væri
og eini textinn var dagsetningin 6.
október. Flestum var ljóst að sá og
hinn sami væri mikill áhugamaður
um hrunið enda hefur
það komið á daginn,
umrædd mynd prýðir
umslagið á nýjustu
plötu Egó með Bubba
Morthens í broddi
fylkingar og „6.
október“ er
heiti henn-
ar. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Helena Stefánsdóttir
Starf: Kvikmyndagerðarkona og
einn eigenda Kaffi Hljómalindar.
Aldur: 42 ára.
Fjölskylda: Maður minn heitir
Arnar Steinn Friðbjarnarson og er
kvikmyndagerðarmaður. Svo á ég
soninn Nikulás Stefán og dæturnar
Kolfinnu og Ilm Maríu.
Búseta: Ég er miðbæjarrotta og
bý í 101.
Stjörnumerki: Steingeit.
Kaffihúsi Helenu, Hljómalind, var lokað í
vikunni eftir að hún missti húsnæðið.
Auglýsingasími
– Mest lesið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N