Draupnir - 01.05.1906, Blaðsíða 106
622
DRAUTNIR.
»Svo höfum vér nú ráðstafað hér öllu
sem bezt, þar til hinn n^'i biskup kemur.
Pétur prest Pálsson heíl ég innsett fyrir ráðs-
mann kirkjunnar og þér haldið yðar starfa
sem fyr — administrators-embættinu fyrir
norðan lieiði, því þér haíið gert alt, sem ég
liefi boðið yður, jafnvel þó frændi yðar ætti
i lilut«.
Af því, herra biskup, liefi ég gert það,
að þér hafið sýnt í verkinu og sagt, að þér
liafið vald til að ráða hér í millibilsástand-
inu, og oss er boðið að heiðra og hlýða yfir-
boðurum vorum. Jón Arason hlaut kosningu
prestanna, en þér, eftir því sem þér segið,
alls kirkjuvaldsins i Niðai-ósi«.
»Og nú hefir hann heldur ekki einu
sinni prestana«, sagði biskup hreykinn. Og
nú fyrst alt er komið í svona gott horf, þá
hraða ég mér hið bráðasta heim í Skálliolt
til aö búa biskupsefnið til fararinnar; því
allar illar vættir hamli svo för Jóns Ara-
sonar, að hann komist ekki svo mikið fyrri,
að honum verði það til gagns. Svo liefi ég
líka margt að tala við Erlend lögmann Þor-
varðarson áður en alþing kemur saman«.
Biskup var svo glaður og fjörugur, að
hann hljóp nærri því um gólfið, neri saman
höndunum og sýndi kæti sina á ýmsa vegu;
nam þá staðar fyrir framan Finnboga, þar