Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR 20. október 2009 — 248. tölublað — 9. árgangur Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 HEIMASÍÐA MATÍS geymir upplýsingar um efni sem eru algeng í matvælun. Þær eru í íslenska gagnagruninnum ÍSGEM og segja til um allt að 45 efni í um 900 fæðutegundum. Sjá nánar á www.matis.is/ISGEM/is „Þetta er spennandi leið til að upplifa náttúruna. Fyrir mér var þetta algjör opinberun,“ segir Guð-mundur Finnbogason um reynslu sína af svokölluðu rathlaupi, íþrótt sem hefur hægt og bítandi verið að ryðja sér til rúms á Íslandi síðustu mánuði. Að sögn Guðmundar er rathlaup samblanda af ratleik og víðavangs-hlaupi sem varð til innan norska hersins. „Svo fór það að breiðast út enda skemmtilegt í alla staði. Rathlaup virkar þannig að kepp-endur fá kort af ákveðnu svæði og stundum líka áttavita og þurfa að finna í réttri röð þá staðier ð að hlaupa og þess vegna hafi komið honum á óvart hversu skemmti-legt rathlaup er. „Sjálfsagt er það meðal annars vegna þess að maður er með hugann við að lesa í land-ið og kennileitin og yfirfæra þær upplýsingar yfir á kort og svo öfugt. Þannig að maður finnur ekki fyrir því þótt maður sé kannski á harðaspani allan tímann. Svo er þetta líka heilsubætandi og góð leið til að kynnast náttúrunni upp á nýtt.“ Þótt rathlaup sé að ná fótfestu hérlendis segir Guðmundur þ ðhafa verið i svæðum þar sem byggingar og styttur eru notaðar sem kenni-leiti,“ segir hann og bætir við að í kringum þessa íþrótt hafi skapast mikil viðskipti erlendis.Guðmundi er því hulin ráðgáta hvers vegna rathlaup hefur ekki náð fótfestu fyrr á Íslandi. „Til-raunir voru gerðar til að kynna það fyrir landsmönnum fyrst árið 1991 og svo 1997 en það er ekki fyrr en nú sem það nær einhverri átt. Hugsanlega vegna þess að sér-stakt félag Rathl Lesið í hóla og hæðirGuðmundi Finnbogasyni kennara leiðist fátt eins mikið og að hlaupa. Samt nýtur hann þess að spretta úr spori í náttúrunni í svokölluðu rathlaupi sem hefur verið að ná fótfestu hérlendis síðustu mánuði. „Svo er þetta líka heilsubætandi og góð leið til að kynnast náttúrunni upp á nýtt,“ segir Guðmundur Finnbogason, til hægri, um íþróttina rathlaup, sem er blanda af ratleik og víðavangshlaupi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Myndakökur og marsipanmyndir fyrir öll tækifæri S. 578 5588 og 661 5588 Opið á VEÐRIÐ Í DAG GUÐMUNDUR FINNBOGASON Stundar rathlaup sér til gamans og heilsubótar • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS Töfraveröld táknmáls Fyrsta íslenska efnið fyrir heyrn- arlaus börn. TÍMAMÓT 16 Virkisborgin Ísland „Reka þessir flokkar sömu stefnu gagnvart þeim og sjálfstæðis- mennirnir sem áður voru gagn- rýndir af þeim?“ skrifar Sverrir Jakobsson. Í DAG 14 ÁRNI RÚNAR HLÖÐVERSSON Njósnað um FM Belfast Útsendari stórfyrirtækis á Airwaves FÓLK 26 Rétt skal vera rétt Bubbi Morthens vill að Friðrik Ómar fari rétt með textann í Rómeó og Júlíu. FÓLK 26 Síðasti dagur opið til 18:30 Kaffirjómi í nýjum umbúðum Frábær út í kaffið og til matargerðar. Geymsluþolin mjólkurvara ms.is SAMGÖNGUMÁL Reykjanesbær þarf að óbreyttu að standa einn að hafn- arframkvæmdum í Helguvík, þvert á vilyrði ríkisins um fjármagn til verksins. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegar vegna álvers. Árni Sigfússon bæjarstjóri segir að forsvarsmenn „nokkurra ríkis- stjórna“ hafi á undanförnum árum gefið vilyrði fyrir fjármagni til að styðja við framkvæmdir í Helguvík, og þá sérstaklega til hafnargerðar. Nú sé hins vegar svo komið að taka þurfi af allan vafa um hvort ríkið hyggist efna orð sín um stuðning. Fram kemur í fundargerð Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar frá því í september að samgönguráðu- neytinu og Siglingastofnun hafi ítrekað verið send erindi síðast- liðin þrjú ár vegna framkvæmda í Helguvíkurhöfn, án þess að verkið hafi verið sett á samgönguáætlun. Kristján Möller samgönguráð- herra segir að þar standi hnífur- inn einmitt í kúnni og telur sig ekki bundinn af loforðum forvera sinna um fjármagn til hafnargerð- ar í Helguvík. Ekkert fjármagn hafi verið eyrnamerkt framkvæmdinni enda komi ríkið ekki að hafnar- framkvæmdum sem þessum eins og samþykkt hafi verið með nýjum hafnalögum frá 2003. Endurskoðuð samgönguáætlun lítur dagsins ljós í kringum áramótin. Árni segir að framkvæmdin í heild kosti tvo milljarða króna og hlutur ríkisins yrði um helmingur þeirrar upphæðar, samkvæmt fyrri loforðum. Hann segir að komi ríkið ekki að verkefninu þýði það erfiða lántöku, sem ekki sé í hendi, sem myndi síðan leggjast þungt á sveitar- félagið. - shá / sjá síðu 6 Óvíst um ríkisfé fyrir álvershöfn í Helguvík Svo virðist sem Reykjanesbær fái ekki fjármagn frá ríkinu til að fullgera stór- skipahöfn í Helguvík. Vilyrði var fyrir allt að milljarði, segir bæjarstjóri. BJART NV-TIL Í dag verða austan eða norðaustan 3-8 m/s, en 8-15 m/s suðaustanlands. Bjart norð- vestanlands, en rigning eða slydda sunnan- og suðaustanlands. Hiti víðast 0-6 stig, mildast syðst. VEÐUR 4 0 0 2 4 4 Landsliðshópurinn klár Sigurður Ragnar Eyjólfsson tilkynnti í gær lands- liðshópinn fyrir næstu leiki í undankeppni HM 2011. ÍÞRÓTTIR 22 HUNDUR Í HEIMSÓKN Börnin í Ísaksskóla tóku fagnandi þessum enska bolabít sem spígsporaði virðulega utan við skólalóðina þeirra í gær og leyfði litlum fingrum að klappa létt á mjúkan feldinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherr- ar Íslands, Hollands og Bretlands hafa skuldbundið sig, í yfirlýsingu samhliða samningi um Icesave, til að hámarka eignir Landsbankans. Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra segir það sameiginlegt hagsmunamál þjóðanna, en tölu- vert af þeim eignum eru í Bret- landi og Hollandi. Það gæti á end- anum lækkað þá kröfu sem fellur á Íslendinga vegna málsins. Steingrímur segir einnig mikil- vægt að Bretar og Hollendingar viðurkenni tilvist lagalegs vafa um greiðsluskyldu Íslendinga. Þá sé ekki síður mikilvægt að árétt- aður sé afdráttarlaus réttur hvers deiluaðila fyrir sig til að taka upp viðræður. Í yfirlýsingunni er lýst yfir stuðningi við árangursríka endur- skoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Steingrímur segir það mjög mikil- vægt. „Á mannamáli þýðir það í raun og veru að þeir viðurkenna þessa tengingu í sjálfu sér og segj- ast ekki leggjast gegn því að endur- skoðunin fari fram.“ - kóp Bretar og Hollendingar skuldbundnir til að hámarka eignir Landsbankans: Gæti lækkað byrðar ríkisins HEILSA Æ fleiri leita sér hjálpar vegna aukins álags sem jafnvel getur brotist út í reiði, að sögn Elsu Báru Traustadóttur sál- fræðings. Við aukið álag styttist oft í reiðina hjá fólki og um leið dregur úr hömlum þess. „Fólk segir mér oft að það hafi alltaf haft mikið skap en nú sé það farið að gera hluti sem það er í auknum mæli ósátt við,“ segir Elsa Bára. Fólk sem eigi í vanda vegna reiði sinnar grípi ekki endilega til ofbeldis en áhrif reið- innar geti verið einkar skaðleg. „Þetta er til dæmis fólk sem lendir oft upp á kant við aðra, hefur hætt í vinnu í reiðikasti, er oft ósátt og á í samskiptaerfið- leikum við vini og fjölskyldu,“ segir Elsa Bára. - kdk / sjá allt Fólk leitar hjálpar vegna álags: Hættir í vinnu í reiðikasti TÓNLIST Írska rokkhljómsveitin U2 tilkynnti í gær að tónleikar hennar í Los Angeles á sunnu- dag verði í beinni útsendingu á Youtube. Þetta er mikill hvalreki fyrir aðdáendur Íranna fjögurra enda hefur hvarvetna selst upp á 360°-tónleikaferð þeirra um heimsbyggðina. Tónleikar U2 verða í Rose Bowl í Pasadena frammi fyrir 95 þús- und áhorfendum, sem er mesti fjöldi áhorfenda sem nokkru sinni hefur verið á tónleikum í Rose Bowl. Um verður að ræða fyrstu tónleikana sem Youtube sendir út beint í heilu lagi. Einnig verður hægt að njóta þeirra eftir að flutningnum sjálfum lýkur. - gar Los Angeles á sunnudaginn: U2 á Youtube U2 Fór hamförum í London í ágúst.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.