Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 4
4 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR ALÞINGI Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsóknar- flokksins, fann samstarfi stjórn- valda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) flest til foráttu í umræðum um samstarfið utan dagskrár á Alþingi í gær. Sagði hann margt hafa breyst síðan stofnað var til samstarfsins fyrir um ári og margir hafi orðið til að benda á að aðkoma sjóðsins að málum hér sé ekki endilega nauðsynleg lengur. Vakti hann athygli á yfirlýsingu Breta og Hollendinga um að með nýjum Icesave-samningi yrði liðk- að fyrir endurskoðun AGS á efna- hagsáætlun Íslands. Sigmund- ur spurði hvers vegna stjórnvöld legðu jafnmikið á sig og raun bæri vitni um til að njóta aðstoðar sjóðs- ins, það er að gefast upp gagnvart Bretum og Hollendingum í Icesa- ve-málinu. Aðstoð AGS væri slæm fyrir efnahagslífið; ekki sé hægt að styrkja gengi krónunnar til langs tíma með lántökum og vextir séu hér hærri en annars staðar. „Þjóð- in er fyrst og fremst í skulda- kreppu, af hverju er þá verið að auka skuldirnar?“ spurði Sigmund- ur. Allt væri gert fyrir AGS en allt ynni það gegn hagsmunum þjóðar- innar. Kallaði hann stjórnarsam- starfið banvænt faðmlag vinstri flokkanna sem myndi leiða þjóð- ina til glötunar. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra valdi þá leið að svara ekki ávirðingum Sigmundar heldur rekja í grófum dráttum efnahags- áætlun Íslands og AGS og stöðu hennar. Sagði hann margt benda til að dregið hafi úr lánsfjárþörf en engu að síður þyrfti að taka umtals- verð erlend lán. Ekkert benti til að í boði væru hagstæðari lán en þau sem þegar hefur verið samið um á pólitískum forsendum. Steingrímur sagði óþolandi hve endurskoðunin hefði tafist og fullyrti að kvörtun- um hefði margsinnis verið komið á framfæri við sjóðinn. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, rifjaði upp að Steingrímur hefði fyrir ári kallað það fjárkúgun ef tengsl væru milli AGS og Icesave. Nú hefði komið á daginn að svo hefði verið í pott- inn búið. Vildi hann skýringar á viðhorfsbreytingu Steingríms en fékk ekki. Birgitta Jónsdóttir Hreyfing- unni kvaðst telja að greiðsluþrot þjóðarbúsins verði varla umflú- ið ef ekki kemur til endurskoðun- ar á samstarfinu við AGS. Sagði hún ráð sjóðsins eins og termíta á innviði velferðarsamfélagsins og tímabært væri að afþakka aðstoð hans. Þeir þingmenn stjórnarflokk- anna sem til máls tóku voru almennt þeirrar skoðunar að sam- starfið við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn væri gagnrýnivert en engu að síður nauðsynlegt. Óraunhæft væri að ætla að Ísland vinni sig út úr erfiðleikunum án aðstoðar AGS. bjorn@frettabladid.is Skuldum vafin þjóð eykur á skuldir sínar Formaður Framsóknarflokksins harmar að ríkisstjórnin ætli að halda áfram samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Það vinni gegn hagsmunum þjóðar- innar. Stjórnarþingmenn eru sannfærðir um nauðsyn áframhaldandi samstarfs. MÁLIN RÆDD Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stungu saman nefjum undir umræðum um AGS á þingi í gær. Ragnheiður Elín Árnadóttir hló. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Enn eru glæður í einangrun Lifrarsamlags Vest- mannaeyja, sem brann í síð- ustu viku og hefur reykur stigið upp úr húsinu undanfarna daga. Elds upptökin eru ókunn, sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu. Rannsókn á vettvangi hefur leitt í ljós að eldurinn kviknaði í rými þar sem var verkstæði og kaldhreinsun á lýsi fór fram. Vettvangurinn var hins vegar nánast brunninn til ösku og því ekki hægt átta sig á eldsupptök- um. Lögreglan í Vestmannaeyj- um naut liðsinnis tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu við rannsóknina. - sh Eldsupptök ókunn: Enn glæður í Lifrarsamlaginu SVEITARFÉLÖG Eignarhaldsfélag- ið Brunabótafélag Íslands (EBÍ) greiddi nýverið samtals 300 milljónir króna til þeirra sveit- arfélaga sem aðild eiga að Sam- eignarsjóði félagsins. Samkvæmt frétt á síðu Sam- bands sveitarfélaga fékk Akur- eyri hæstu greiðsluna, tæpar 40 milljónir. Kópavogur fékk 26 milljónir, Reykjanesbær 21 milljón, Ísafjörður og Fjarða- byggð 14 og Akranes 10 millj- ónir. Með þessum framlögum hefur EBÍ samtals greitt aðildarsveit- arfélögum 3,3 milljarða króna í gegnum árin. Mælst er til þess að framlögin verði meðal annars nýtt til forvarna og brunavarna. - bþs Forvarnir og brunavarnir: 300 milljónir til sveitarfélaga VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 17° 10° 11° 12° 12° 16° 11° 11° 24° 14° 24° 18° 27° 8° 16° 16° 9° Á MORGUN 5-10 m/s. FIMMTUDAGUR Norðaustan strekk- ingur á Vestfjörðum, annars mun hægari. 6 4 4 4 2 2 0 2 0 2 5 6 4 4 3 6 5 13 10 10 4 4 2 5 7 6 5 8 6 2 4 YFIRLEITT SKAPLEGT VEÐUR Til morguns verða ekki miklar breytingar í veðrinu hvað vind varðar, yfi rleitt hægur vind- ur en dálítill strekk- ingur suðaustantil og á Vestfjörðum. Það bætir hins vegar í úrkomuna með deginum og á morgun verður víða rigning eða slydda með köfl um. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður Beitti ráðherra sér? Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Sjálf- stæðisflokki, hefur lagt fram fyrir- spurn til menntamálaráðherra um hvort hún hafi beitt sér fyrir því að spurningar framkvæmdastjórnar ESB vegna aðildarumsóknar Íslands yrðu þýddar á íslensku. Þorgerður spyr líka ráðherrann um afstöðu hennar til sameiningar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. ALÞINGI SKÓGRÆKT Skógræktarfélag Reykjavíkur leitar nú að hæstu eik á Íslandi. „Eikin er ein verð- mætasta trjátegund sem ræktuð hefur verið í heiminum,“ segir í frétt frá félaginu. Til að koma leitinni að eikinni í gang tilnefnir Skógræktarfé- lag Reykjavíkur sjálft eik eina sem gróðursett var við íbúðarhús í Háagerði. Um er að ræða eik sem var gróðursett fyrir 29 árum og er nú 6,3 metrar á hæð. Hún er talin vera svokölluð sumareik sem algeng er í Evrópu nema á norðurslóðum. Eik getur lifað í þúsundir ára. - gar Leitin að eikinni hafin: Lýst eftir hæsta eikartré Íslands EIKIN Í HÁAGERÐI Gróðursett 1982 og orðin yfir sex metrar. EFNAHAGSMÁL Leitað verður afbrigða til að taka Icesave-málið á dagskrá Alþingis sem fyrst. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir mikilvægt að fjárlaganefnd fái málið fljótt til umfjöllun- ar. Nefndin hafi um nóg að fjalla þar sem fjár- lagafrumvarp- ið er. Sagt hefur verið frá því að klára verði málið fyrir 23. október, ann- ars falli skuldbindingar á Trygg- ingarsjóð innistæðueigenda. Stein- grímur segir samningana sem náðust um helgina gera ráð fyrir að skuldirnar falli ekki á sjóðinn þó málinu verði ólokið þá. „Við erum komin í miklu betra skjól með þá dagsetningu.“ - kóp Semja þarf um þingmeðferð: Leita afbrigða vegna Icesave STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON KÖNNUN Mikill meirihluti landsmanna ber traust til Landhelgisgæslunnar, samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf. Um 77,6 prósent segjast bera mikið traust til Gæslunnar. Einungis fimm prósent svarenda segjast bera lítið traust til Landhelgisgæslunnar. Embætti Ríkislögreglustjóra nýtur mikils trausts meðal 47,1 prósenta svarenda, samanborið við 19,6 prósent, sem segjast bera lítið traust til embætt- isins. Fangelsismálastofnun nýtur mikils trausts meðal 42,1 prósenta svarenda, samanborið við 16 prósent sem segjast bera lítið traust til stofnunarinnar. Útlendingastofnun sker sig úr könnun á trausti landsmanna til þessara fjögurra stofnana að því leitinu til að 28,0 prósent segjast bera lítið traust til hennar, sem eru mun fleiri en segjast bera mikið traust til hennar, en þeir eru 23,3 prósent. Útlend- ingastofnun er jafnframt sú af ofangreindum stofn- unum sem fæstir segjast bera mikið traust til. - jss TRAUST TIL STOFNANA Lítið traust Mikið traust Landhelgisgæslan 5% 77,6% Ríkislögreglustjóri 19,6% 47,1% Fangelsismálastofnun ríkisins 16,0% 42,1% Útlendingastofnun 28,0 23,3% TF-GNÁ Gæslan nýtur mikils trausts lands- manna. Landhelgisgæslan, Ríkislögreglustjóri og Fangelsismálastofnun ríkisins: Njóta mikils trausts landsmanna MYND/LANDHELGISGÆSLAN GENGIÐ 19.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 222,6626 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,22 123,8 200,79 201,77 184 185,02 24,714 24,858 22,021 22,151 17,697 17,801 1,3578 1,3658 196,35 197,53 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.