Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 16
 20. október 2009 2 LÝÐHEILSUSTÖÐ mælir með því að ungt fólk hreyfi sig í það minnsta í 60 mínútur á dag en fullorðnir í 30 mínútur. Hreyfingin ætti bæði að vera miðlungserfið og erfið. Birkilauf er meðal annars notað til að hraða efnaskiptum, losa vatn úr líkamanum og draga úr bólgum. Birkið er talið hafa góð áhrif á vökvajafnvægi líkamans og húð auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Betulic-birkilaufstöflurnar, sem eru nýkomnar á markað, innihalda 98 prósent birkilaufsduft og eru framleiddar með aðferð sem varðveitir upprunalega eiginleika birkilaufanna sem allra best. Í bók Arnbjargar L. Jóhannsdóttur, Íslenskar lækningajurtir, er fjallað um lækningamátt birkis- ins. Þar kemur fram að í birkinu séu ýmis virk efni. Áhrifin er þvagdrífandi, bólgueyðandi og svitadrífandi. Laufin örva lifrina og hreinsa blóðið. Birki er mest notað við gigt, einkum ef nýrun starfa ekki eðlilega en það er talið mjög styrkjandi fyrir nýrun. Birki er einnig gott að nota gegn exemi auk þess sem það er blóðþrýstingslækkandi og bjúgeyðandi. - ve Birkilauf í töfluformi MIKIL OG GÖMUL HEFÐ ER FYRIR ÞVÍ AÐ NOTA BIRKILAUF SEM FÆÐUBÓTAREFNI EN ÞAU FÁST NÚ Í TÖFLUFORMI. Reiði er sennilega ein af verstu tilfinningum sem kviknað geta í brjósti okkar. Elsa Bára Trausta- dóttir sálfræðingur kennir fólki að takast á við reiðina í Kvíðameðferð- arstöðinni í Skútuvogi. Hún segir það sína tilfinningu að undanfarna mánuði hafi fólk í vaxandi mæli kvartað yfir auknu álagi, sem síðan brjótist út í reiði. Elsa Bára segist fyrst hafa haldið námskeið fyrir fólk sem leitað hafði aðstoðar áfengis- og vímuefnadeild- ar á Landspítalanum. Nú sé meira um að fólk, sem hingað til hefur ekki lent upp á kant við umhverfi sitt, leiti sér aðstoðar. Álagið geti stafað af auknum kröfum í starfi, til dæmis eftir að starfsmönnum hefur fækkað á vinnustað, aðstæð- um sem fólk ræður illa við, fjár- hagsáhyggjum og fleiri þáttum sem leggjast þungt á það. „Fólk segir mér oft að það hafi alltaf haft mikið skap en nú sé það farið að gera hluti sem það er í auknum mæli ósátt við. Eins og að hvessa sig meira við börnin sín, byrsta sig við maka og annað slíkt,“ segir Elsa Bára. Hún útskýrir að við aukið álag styttist þráðurinn í fólki og um leið dragi úr hömlum þess. Fólk sem eigi í vanda vegna reiði grípi ekki endilega til ofbeld- is en áhrif reiðinnar geti verið því einkar skaðleg. „Þetta er til dæmis fólk sem lendir oft upp á kant við aðra, hefur hætt í vinnu í reiðikasti, er oft ósátt og á í samskiptaerfið- leikum við vini og fjölskyldu,“ segir hún. Reiðin geti því skert lífsgæði fólks mikið og skaðað tengsl þess, samskipti og starfsframa. Hún fái að magnast innra með sumum í langan tíma. Aðrir geti ekki hætt að hugsa um það sem reitti þá til reiði og enn aðrir rjúki upp við minnsta tilefni og sjái eftir öllu saman skömmu seinna. Loks láti sumir gremju sína bitna á þeim sem síst skyldi. Þá segir Elsa Bára reiðina oft tengjast öðrum tilfinningum, svo sem óöryggi og vanmætti. Nám- skeiðin geri fólki til að mynda ljóst hvaða hugsanir kveikja reiðina og hvernig tekið er á henni. Nánar má fræðast um námskeiðið á vefsíð- unni www.kms.is. karen@frettabladid.is Styttri þráður í meðaljónum Elsa Bára Traustadóttir sálfræðingur segir að sér virðist reiði fara vaxandi meðal fólks. Oft geri það sér ekki grein fyrir tilfinningunni og ástæðum hennar og hve mjög tilfinningin geti skaðað það. Elsa Bára kennir fólki takast á við álag og reiði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Komdu þér í gang! l 2ja vikna námskeið 5x í viku í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 5 í hóp l Leiðbeiningar um mataræði l Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðs Verð aðeins kr. 10.000. Barnagæsla - Leikland JSB Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! S&S stutt ogstrangt NÝTT! Stutt og strangt Skráning alltaf í gangi! Sími 581 3730 Bólusetning árleg inflúensa Reykjavík—Akureyri Heilsuvernd hefur hafið bólusetningu gegn árlegri inflúensu. Skráning í síma 510-6500 eða á www.doktor.is Netlæknaþjónusta-tímabókanir Verð kr.1.500.- System kr. 33.900,- Flex Max kr. 27.900,- Flex kr. 22.900,- FLOTT Í VETUR... telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n 7 vikna námskeið 2x í viku. Ath aðeins 15 í hóp. Verð kr: 19.900. Kennari: Bára Magnúsdóttir. ü Vaxtarmótun ü Mýkt - liðleiki ü Styrkur - reisn ü Upphitun í tækjasal 20 mín ü MÓTUN, æfingakerfi 40 mín ü Hentar öllum aldursflokkum Miðvikudaga og föstudaga ü Kl 16:20 ü Kl 17:00 Þriðjudaga og fimmtudaga ü kl 8:30 ü kl 10:30 Barnagæsla - Leikland JSB Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Mótun - Nýtt námskeið í boði! Æfingakerfi hannað af Báru Magnúsdóttur Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal Síðustu námskeið fyrir jól! Innritun hafin í síma 581 3730 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.