Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 8
8 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 Hve stór hluti kjósenda styður ríkisstjórnina samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins? 2 Hver gerði listaverkið Víking sem ölvaður maður skemmdi um síðustu helgi? 3 Hvað heitir ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26 22. október Aðalbanki Fjármálaskilningur 29. október Mjódd Fjármál heimilisins 5. nóvember Ísafjörður Fjármál heimilisins 12. nóvember Akranes Fjármál heimilisins 19. nóvember Hamraborg Fjármál heimilisins N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t . 4 7 1 0 0 8 - 2 0 8 0 . Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld Landsbankinn mun í vetur bjóða upp á röð fjármálanámskeiða fyrir almenning undir yfirskriftinni Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld. Markmið námskeiðanna er að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin svo því sé unnt að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins og móta fjárhagslega framtíð fjölskyldunnar. FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4000 Skráning fer fram á landsbankinn.is og í síma 410 4000. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á landsbankinn.is. O kt ó b e r N ó ve m b e r 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Sun Mán Þri Mið Fim Fös La u 2009 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 STJÓRNMÁL Forsvarsmenn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Samtaka atvinnurekanda (SA) fagna því að niðurstaða sé fengin í samningum Breta og Hollendinga vegna Icesave-málsins. „Það skiptir okkur verulegu máli að okkur hafi tekist að ná samkomu- lagi við þessar þjóðir, því öll önnur mál hafa verið á bið hér. Nú er hægt að vinna að efna- hagsáætlunum sem áttu að koma okkur úr þeim vandræðum sem við eru í,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Stöðugleikasáttmálinn hefur verið fros- inn síðan í júní í þessari deilu og er nú kom- inn nálægt því að liðast í sundur. Þessi samn- ingur er forsenda þess að við getum haldið áfram að vinna að honum,“ segir Gylfi sem vonar að Seðlabankinn lækki vexti og endur- skoði gjaldeyrishöft sem fyrst. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, tekur undir það: „Samningurinn er stórt skref í þá átt að koma á eðlilegu flæði fjár- magns til og frá landinu. Það þarf að nota það til að afnema höftin og lækka vexti. Þetta er eitt af því sem við erum að ræða á fundum um framlengingu stöðugleikasátt- málans.“ Vilhjálmur segir stöðuga fundi um stöðug- leikasáttmálann þessa dagana en hann sé ekkert sérstaklega bjartsýnn um framhald hans. „Við erum auðvitað að vinna í málinu á þeim forsendum að hann haldi. Nú þurf- um við bara að sjá hvaða viðbrögð fylgja Icesave-samningnum,“ segir Vilhjálmur sem segir lykilatriði að farið verði í stóru fjár- festingarnar í atvinnulífinu, álver og bygg- ingu gagnavera. Þær séu mikilvægt skref til að komast út úr kreppunni, Auk þess sem gert sé ráð fyrir þeim í forsendum fjárlaga. Markmið þeirra hrynji ef ekki verði farið í þær. - sbt ASÍ og SA fagna samningi við Breta og Hollendinga út af Icesave: Vonast eftir vaxtalækkun og afnámi hafta hið fyrsta VILHJÁLMUR EGILSSON GYLFI ARNBJÖRNSSON SPÁNN, AP Hollensk stúlka lét lífið þegar rúta með um 60 hollensk- um ferðamönnum valt í bænum Bascara á Spáni, nærri landa- mærum Frakklands, í gærmorg- un. Nítján eru slasaðir. Stúlkan var á ferðalagi með tólf öðrum hollenskum nemum á ungl- ingsaldri. Að sögn lögreglu er hluti farþeganna alvarlega slasaður. Ökumaðurinn, sem stóðst ölv- unarpróf, sagði talsmanni ferða- skrifstofunnar að hann hefði reynt að sveigja hjá „einhverju sem fór í veg fyrir bílinn“, en við það hafi rútan oltið. - óká Hollensk stúlka lét lífið: Sextíu voru í rútu sem valt DÓMSMÁL Franklín Stiner, betur þekktur sem Franklín Steiner, hefur verið ákærður fyrir Hér- aðsdómi Reykjaness fyrir fíkni- efnabrot. Í október á síðasta ári var hann tekinn með eitt gramm af hassi, 33 grömm af kókaíni og 23 e-töfl- ur, sem lögreglumenn fundu við leit. Í apríl á þessu ári var hann aftur tekinn með 23 grömm af amfetamíni, 0,34 grömm af tóbaks blönduðu kannabisefni og tvær e-töflur. - jss Maður á sjötugsaldri: Ákærður fyrir fíkniefnabrot FRANKLÍN STINER Hann var tekinn með nokkrar tegundir fíkniefna. LÖGREGLUMÁL Peningaþvættis- skrifstofu embættis ríkislög- reglustjóra bárust á síðasta ári samtals 520 tilkynningar frá tilkynningaskyldum aðilum. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu peningaþvættisskrifstof- unnar fyrir árið 2008. Enn fremur kemur fram að átján tilkynningar hafi verið rannsakaðar hjá efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra en engin þeirra hafi leitt til saksóknar af hálfu deildarinnar. Nær allar tilkynningarnar bár- ust frá fjármálafyrirtækjum eða 514. Rúmlega 390 þeirra vörð- uðu fjárhæðir undir einni milljón króna. -jss Peningaþvættisskrifstofa RLS: Rúmlega 500 tilkynningar RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Rúmlega 500 til- kynningar bárust embættinu á síðasta ári. VIÐSKIPTI Mál eignarhaldsfélags- ins Stíms hefur hvorki borist efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra né sérstökum saksóknara til ákærumeðferðar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Í júní, fyrir hálfum fimmta mánuði, greindi Morgunblaðið frá því að FME myndi „á næstunni“ senda málið til ákæruvalds. Stím-málið var eitt fyrsta málið sem tengt er meintum óeðlilegum viðskiptum sem rataði í fjölmiðla eftir hrunið fyrir ári. Stím hét áður FS37 og var stofnað af Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haralds- sonar. Gamli Glitnir, sem var að stór- um hluta í eigu eins helsta við- skiptafélaga Pálma, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, tók félagið yfir og skírði það Stím. Félaginu var ætlað að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæpa 24,8 milljarða króna. Helstu viðskipta- vinum Glitnis var síðan boðið að kaupa í Stími, en Glitnir var eftir sem áður stærsti eigandinn með 32,5 prósenta hlut. Glitnir og FL Group lánuðu svo Stími fyrir 90 prósentum af hlutabréfakaupunum með veðum í bréfunum sjálfum. Fjármálaeftirlitið tók viðskiptin fyrst til skoðun- ar haustið 2007 án þess að grípa til aðgerða og síðan aftur þegar málið komst í hámæli í fyrra. Þá kom ýmislegt nýtt í ljós og hefur síðan verið í rann- sókn hvort um sýnd- arvið- skipti og mark- aðsmis- notkun var að ræða, til þess ætluð að hífa upp verð á hlutabréfum í Glitni og FL Group. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hefur málið reynst öllu flóknara en búist var við og rann- sókn FME því sóst mun hægar en menn áttu von á í sumar. Heimild- ir herma að líklega muni málið að endingu lenda hjá sérstökum sak- sóknara. Stjórnarformaður Stíms, útgerð- armaðurinn Jakob Valgeir Flosa- son úr Bolungarvík, var skráður fyrir félaginu. Hann átti jafnframt tíu prósent í félaginu. Jakob Val- geir sagðist í fjölmiðlum á sínum tíma fullviss um að athugun FME á Stími myndi ekki leiða neitt óeðlilegt í ljós. stigur@frettabladid.is Stím-málið ekki enn borist ákæruvaldinu Rannsókn á meintri markaðsmisnotkun eignarhalds félagsins Stíms liggur enn á borði Fjármálaeftirlitsins. Eftirlitið byrjaði að skoða félagið fyrir um tveimur árum. Rannsókn málsins hefur reynst flóknari og tímafrekari en búist var við. GLITNIR Grunur leikur á að Glitnir og móðurfélagið FL Group hafi lánað Stími, sem var að stórum hluta í eigu Glitnis, til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group gegn veðum í bréfunum. Þannig hafi átt að hífa upp verðið á bréfunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA GUNNAR Þ. ANDER- SEN Gunnar Þ. Andersen, forstjóri FME, hefur málið enn til meðferð- ar. Skoðun á félaginu fór fyrst af stað haustið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ATVINNUMÁL Hátt í tólf hundruð manns höfðu sótt um fimmtíu störf flugfreyja og flugþjóna hjá Iceland Express þegar frestur til þess rann út í gær. Þetta segir Kristín Þorsteinsdóttir, upplýs- ingafulltrúi félagsins. Þrátt fyrir að nærri 24 hafi þannig sótt um hvert starf sem auglýst var ætlar Iceland Express að framlengja frestinn fram á fimmtudag. Kristín segir þetta gert vegna mikils áhuga á störfunum. Ætlunin sé að fjölga hjá félaginu vegna aukinna umsvifa. - gar Mikil ásókn í flugfreyjustörf: Framlengja umsóknarfrest VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.