Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 20
16 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR BELA LUGOSI (1882-1956) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Ég hef sjálfur aldrei hitt vampíru, en það er aldrei að vita hvað gerist á morgun.“ Bela Lugosi var ungverskur leikari, þekktastur fyrir hlut- verk sitt sem Drakúla greifi. Hann lék greifann bæði á sviði á Broadway og í kvikmyndum. Síðasta ár ævi sinnar lék hann í nokkrum ódýrum myndum eftir Ed Wood. MERKISATBURÐIR 1728 Gífurlegur bruni hefst í Kaupmannahöfn og geisar eldurinn í þrjá daga. Mikill hluti bóka- safns Árna Magnússon- ar, fornfræðings og bóka- safnara, eyðilagðist í eld- inum en megninu af skinnhandritum tókst að bjarga. 1905 Konungur undirritar lög um stofnun Kleppsspítala í Reykjavík. 1951 Stærsta varðskip, sem ís- lenska þjóðin hafði eign- ast, kemur til landsins og hlýtur nafnið Þór. Þetta skip var síðar selt Slysa- varnafélagi Íslands. 1999 Skjár einn hefur sjón- varpsútsendingar. 2006 Íslenska kvikmyndin Mýrin er frumsýnd. Borgarleikhúsið var opnað með pompi og prakt og voru hátíðarhöld dagana 20.-22. október árið 1989. Við það tækifæri voru frumsýndar tvær nýjar leikgerðir á sögum Halldórs Laxness, Ljós heimsins á Litla sviðinu og Höll sumarlandsins á Stóra sviðinu. Borgarleikhúsið er 10.400 fermetrar að stærð og var í byggingu í þrettán ár. Í upphafi voru svið- in tvö, Stóra sviðið og Litla sviðið. Stóri salurinn er blævængslaga og tekur 529 manns í sæti. Sá litli er sexhyrndur með breytilegri sætaskipan og tekur að jafnaði um 170 manns í sæti, en hefur tekið hátt á þriðja hundrað gesta. Í október 2001 var þriðja sviðinu bætt við, Nýja sviðinu. Á þriðju hæðinni er kaffileikhúsið, lítill salur við mötuneyti starfsmanna, sem hefur verið nýttur fyrir ýmsar uppákomur. Í Borgarleikhúsinu ræður ríkjum Leikfélag Reykjavíkur, sem er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og jafnframt eitt elsta starf- andi menningarfélag landsins. Það var stofnað í janúar 1897 þegar tveir hópar áhugamanna um leiklist sameinuðust í eitt félag. ÞETTA GERÐIST: 20. OKTÓBER 1989 Borgarleikhúsið vígt með viðhöfn Fyrsti þátturinn um Tinnu táknmálsálf verður sýndur í Stundinni okkar næsta sunnudag. Búið er að taka upp fjóra þætti og aðrir fjórir eru í bígerð. Höf- undur þeirra er Laila Margrét Arnþórs- dóttir, ráðgjafi hjá Félagi heyrnarlausra. „Hver þáttur er sjálfstæð saga og þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem barna- efni er búið fyrst til fyrir heyrnarlausa og síðan talsett fyrir heyrandi. Þætt- irnir væru samt lítið merkilegir nema af því ég hafði svakalega flott lið með mér,“ segir hún og nefnir snillingana hjá Stundinni okkar og leikarana Kol- brúnu Völkudóttur og hinn tékkneska Jan Fiurasek sem bæði eru heyrnarlaus en hæfileikarík. Svið þáttanna er allt unnið af fólki á Sólheimum í Grímsnesi. „Tinna tákn- málsálfur býr í bæ sem heitir Blómabær í Bláskógabyggð,“ útskýrir hún. „Það var Björgvin Frans sem kom með tillögu um Sólheima og sú hugmynd smellpassaði. Sviðið er undraveröld sem þar var búin til.“ Laila kveðst hafa haft áhuga á mál- efnum heyrnarlausra frá því hún var barn að aldri og nemandi í Hlíðaskóla þar sem sérstök deild var fyrir heyrnar- skerta. Síðar var hún að vinna á sambýli þegar henni bauðst námskeið í táknmáli og eftir það varð ekki aftur snúið. „Eins og aðrir heillast af franskri eða ítalskri menningu þá var heimur heyrnarlausra fyrir mér eins og óendanlegt ævintýri. Nú er ég í daglegum samskiptum við heyrnarlausa og finnst ég vera í drauma- starfinu,“ segir hún og lýsir þeim stór- kostlegu breytingum sem orðið hafa á samskiptatækninni á fáum árum. „Í upp- hafi starfs míns þurftu heyrnarlausir að gera sér ferð ofan úr Breiðholti, Hafn- arfirði eða hvaðan sem er til að panta sér tíma. Nú er hægt að senda SMS eða skjótast inn á MSN og stundum nægir að tala við mig í sjónvarpssíma.“ Laila skrifaði leikrit fyrir Hafnar- fjarðarleikhúsið fyrir fáum árum sem hét Viðtalið og miðlaði reynsluheimi heyrnarlausra; leikrit sem reif dálítið í sálina að hennar sögn. Í framhaldi af því skrifaði hún barnaleikrit sem bíður uppsetningar hjá Draumasmiðjunni í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Einn kar- akter úr því öðlaðist sjálfstætt líf er Laila kynnti nemendum 1. bekkjar Ár- túnsskóla stafatákn á sama tíma og þeir lærðu bókstafina. „Þá notaði ég Tinnu táknmálsálf til að ná til krakkanna,“ út- skýrir hún. Tinna kom svo í heimsókn í einn þátt af Stundinni okkar síðastlið- ið vor og sló í gegn. „Heyrnarlaust fólk hefur aldrei upplifað fyrr að hafa aðgang að barnaefni. Það bíður eftir þessum þáttum og auðvitað er hollt fyrir heyr- andi börn að kynnast táknmáli.“ Þættirnir marka tímamót í fleiri en einum skilningi því Laila segir þetta í fyrsta sinn sem Félag heyrnarlausra, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Heyrnar-og talmeina- stöð Íslands, Foreldrafélag heyrnar- daufra barna og Zontaklúbbur Reykja- víkur sameinist um að styrkja eitt og sama verkefnið. „Það hefði aldrei orðið að veruleika nema með þessari miklu samstöðu,“ tekur hún fram. gun@frettabladid.is LAILA ARNÞÓRSDÓTTIR: FYRST MEÐ ÍSLENSKT EFNI FYRIR HEYRNARLAUS BÖRN Tinna táknmálsálfur í loftið RÁÐGJAFINN Laila Margrét heillaðist af menningarheimi heyrnarlausra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA timamot@frettabladid.is AFMÆLI VIGGO MORTENSEN leikari er 51 árs. SNOOP DOG rapp- ari er 38 ára. DANNII MINOGUE söngkona er 38 ára. DANNY BOYLE leik- stjóri er 53 ára. ELFRIEDE JELINEK skáld er 63 ára. TOM PETTY tónlistar- maður er 59 ára. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Tryggvi Jónasson lést laugardaginn 17. október á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Útförin verður auglýst síðar. Jóna Margrét Júlíusdóttir Ásgerður Tryggvadóttir Júlía Tryggvadóttir Ólafur Tryggvason Karen Tryggvadóttir Sigurlás Þorleifsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og frændi, Aron Snorri Bjarnason Skeljagranda 1, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudag- inn 26. október klukkan 13.00. Thelma Theodórsdóttir Bjarni Snorrason Bente Tönnesen Theodór Elmar Bjarnason Pattra Sriyanonge Brynjar Orri Bjarnason Sigríður Bjarnadóttir Theodór Guðmundsson Björk Guðmundsdóttir Jóhannes Snorrason Sigrún Jónsdóttir Guðmundur B. Theodórsson og fjölskylda Hörður Theodórsson Lára Eymundsdóttir og fjölskylda Ástkær móðir mín, amma og langamma, Lára Hjaltested Reynimel 44, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2 hinn 10. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Sóltúni. Þökkum hlýju og samúð. Erla Hjaltested Lára Hjaltested Ragnarsdóttir Ragnar Hjaltested Svavar Hjaltested Bára Björk Ingibergsdóttir Júlíana Björt Hjaltested Faðir okkar, tengdafaðir, fósturbróðir, afi og langafi, Georg Franklínsson Malmö, Svíþjóð, lést á Háskólasjúkrahúsinu í Malmö, Svíþjóð, fimmtu- daginn 15. október. Útförin fer fram á Íslandi og verður auglýst síðar. Franklín Georgsson Elínborg Jónsdóttir Jóhannes Georgsson Erla Lóa Jónsdóttir Björk Georgsdóttir Ársæll Friðriksson Lúðvík Georgsson Birgit Engler Hulda Georgsdóttir Michel Kizawi Baldvin Georgsson Eva Georgsson Guðjón Þorbjörnsson Hulda Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Guð blessi ykkur öll, vandamenn og vini, sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför sonar okkar og bróður, Jökuls Tandra Arnarsonar Brávallagötu 10. Þessi kærleikur, von og trú, sem þið eigið í Jesú Kristi er dauðanum sterkari. Guðmundur Örn Ragnarsson Jónína Lára Einarsdóttir Bjartmar Orri Arnarson Brynjar Frosti Arnarson

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.