Fréttablaðið - 20.10.2009, Side 2
2 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Bjarni, eru þetta kerlingabæk-
ur?
„Já, þetta eru alveg örugglega
kerlingabækur enda er mest af
visku þjóðarinnar falið í gömlum
kerlingum.“
Fyrsta skáldsaga Bjarna Harðarsonar,
bóksala og fyrrverandi þingmanns, kom
út fyrir helgi. Í bókinni styðst Bjarni við
ævi langömmu sinnar og kvenna sem
henni tengdust sem allar bjuggu við sára
fátækt og neyddust til að láta börnin sín
frá sér.
HEILBRIGÐISMÁL Átján ára fjöl-
fötluð stúlka, með langvinnan
lungnasjúkdóm, lést í gærmorgun
á Barnaspítala Hringsins af völd-
um svínaflensunnar, A (H1N1).
Stúlkan veiktist fyrir um ellefu
dögum og var lögð inn á spítalann
síðastliðinn fimmtudag. Þetta var
tilkynnt á blaðamannafundi sem
sóttvarnalæknir, fulltrúar Land-
spítala og almannavarnadeild-
ar ríkislögreglustjóra efndu til í
gær.
Þetta er fyrsta dauðsfallið sem
verður hérlendis af völdum inflú-
ensunnar.
Á fundinum kom enn fremur
fram að 26 sjúklingar lágu í gær á
Landspítala með svínaflensu, þar
af voru fjórir á gjörgæslu. Um
sextíu manns hafa verið lagðir inn
á spítalann vegna inflúensunnar
frá upphafi faraldursins.
Inflúensan færist enn í aukana,
einkum á höfuðborgarsvæðinu en
einnig víða á landsbyggðinni. Und-
anfarnar þrjár vikur lætur nærri
að staðfest tilfelli hafi tvöfaldast
í hverri viku miðað við fjöldann í
vikunni þar á undan. Álag hefur
að sama skapi aukist talsvert á
starfsfólk heilbrigðisþjónustunn-
ar, bæði í heilsugæslunni og á
Landspítala.
Frá 29. júní til 18. október 2009
höfðu borist alls 3660 tilkynningar
um inflúensulík einkenni eða stað-
fest inflúensutilfelli á Íslandi.
- jss
Svínainflúensan færist í aukana um land allt og álagið eykst á heilbrigðiskerfið:
Lungnaveik lést vegna svínaflensu
INFLÚENSAN Þeir greindu frá stöðu
svínaflensunnar, f.v. Már Kristjánsson og
Ólafur Baldursson, fulltrúar Landspítala,
Haraldur Briem sóttvarnalæknir og
Rögnvaldur Ólafsson, verkefnisstjóri
Almannavarna. FRETTABLADID/GVA
ATVINNUMÁL Katrín Júlíusdóttir
ætlar að leggja frumvarp um
rammalöggjöf um nýfjárfest-
ingar fyrir Alþingi í vetur. Þar
verða settar almennar regl-
ur um fyrirvara, ívilnanir og
undanþágur fyrir erlendar fjár-
festingar.
„Þá munum við hætta að gera
einstaka fjárfestingarsamn-
inga, sem eru þunglamalegir og
ógagnsæir,“ segir Katrín.
Spurð hvort þessi ramma-
löggjöf muni aflétta leynd af
orkuverði í samningum orku-
fyrirtækja og stóriðjufyrir-
tækja, segir hún að lögin muni
ekki endilega ná yfir núverandi
samninga. Hins vegar verði
hægt að stíga skref í því að gera
samninga gagnsærri en nú er.
- pg
Iðnaðarráðherra:
Rammalög um
nýfjárfestingar
í undirbúningi
LÖGREGLUMÁL Ekki var farið
fram á gæsluvarðhald yfir sjötta
manninum sem lögregla hefur
handtekið vegna rannsóknar á
meintu mansalsmáli á Suðurnesj-
um. Honum var sleppt að loknum
yfirheyrslum hjá lögreglunni á
Suðurnesjum í gær. Fimm karl-
menn eru í gæsluvarðhaldi vegna
málsins. Það rennur út á morgun.
Lögreglu hefur tekist að finna
út hver stúlkan er. Í ljós hefur
komið að hún er fædd árið 1990.
Einnig er ljóst orðið hvert hennar
rétta nafn er, en hún kom hingað
á fölsuðum skilríkjum. Málið er
áfram rannsakað sem vændis-
eða nauðungarvinnumál. - jss
Meinta mansalsmálið:
Sjötta mannin-
um var sleppt
DÓMSMÁL Ragna Árnadóttir dóms-
málaráðherra segir stjórnvöld
verða að bregðast við vaxandi hörku
í afbrotum hér á landi. Sérstaklega
verði að bregðast við hættunni sem
fylgir því þegar erlend glæpasam-
tök reyna að hasla sér völl í gegn-
um samtök eða félög hérlendis.
Ragna segir að dómsmálaráðu-
neytið sé að kanna hvort setja eigi
sérstök lög sem heimili stjórnvöld-
um að banna ákveðin félög. Lögun-
um yrði síðan fylgt eftir með því
að höfða mál þeim til staðfestingar,
eins og stjórnarskrárákvæði þar að
lútandi heimilar.
Fréttablaðið greindi frá því fyrir
skömmu að handrukkarar væru nú
farnir að rukka almenna borgara
fyrir skuldir sem stofnað hefur
verið til með lögmætum hætti.
Greiningardeild ríkislögreglustjóra
hefur unnið mat á skipulagðri
glæpastarfsemi til lengri tíma.
„Það, að menn sammælist um
að fremja glæpi, hvort sem það
er í samtökum eða utan þeirra, er
alvarlegt mál og á ekki að líðast á
Íslandi,“ segir Ragna.
Spurð hvernig stjórnvöld ætli að
vinna gegn skipulagðri glæpastarf-
semi, sem er orðin staðreynd hér
á landi, segir ráðherra að lögreglu-
yfirvöld hafi unnið ötullega að því
að upplýsa brot.
Forgangsverkefni sé að vinna
gegn skipulagðri glæpastarfsemi.
Tillögur til breytinga á almennum
hegningarlögum hafi verið lagðar
fram, sem ætlað sé að vinna gegn
slíkri brotastarfsemi. Vonir standi
til að unnt verði að samþykkja þær
sem lög frá Alþingi nú á haust-
þingi.
„Þá má nefna ákvarðanir um
sérstakt landamæraeftirlit vegna
fregna um komu Vítisengla hingað
til lands, nú síðast í vor,“ segir ráð-
herra. „Þá er í aðgerðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar gegn mansali áform
um að athuga hvort lögregla eigi að
fá forvirkar rannsóknarheimildir
til að stemma stigu við þeim brot-
um sérstaklega.
Ráðherra vill banna
starfsemi Vítisengla
Dómsmálaráðherra er að kanna hvort hægt sé að setja lög sem banna starfsemi
félagasamtaka sem bendluð eru við glæpi. Ríkið myndi höfða mál lögunum til
staðfestingar. Ráðherra segir skipulagða glæpastarfsemi ógn við samfélagið.
VÍTISENGLAR Sem dæmi um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi nefnir dómsmáalaráðherra ákvarðanir um
sérstakt landamæraeftirlit vegna fregna um komu Vítisengla hingað til lands, nú síðast í vor.
74. GREIN STJÓRNAR-
SKRÁRINNAR
„Rétt eiga menn á að stofna félög í
sérhverjum löglegum tilgangi, þar með
talin stjórnmálafélög og stéttarfélög,
án þess að sækja um leyfi til þess.
Félag má ekki leysa upp með ráðstöfun
stjórnvalds. Banna má þó um sinn
starfsemi félags sem er talið hafa
ólöglegan tilgang, en höfða verður þá
án ástæðulausrar tafar mál gegn því til
að fá því slitið með dómi.“
VIÐSKIPTI Exista tapaði 1,6 milljörðum evra, eða 602
milljörðum króna, eftir skatta á árinu 2008. Félagið
birti í gærmorgun uppgjör vegna ársins. Tapið er það
mesta sem íslenskt fyrirtæki hefur kynnt. Töluverð
óvissa ríkir um framtíð Existu, en félagið á í viðræð-
um við helstu lánveitendurna um fjárhagslega endur-
skipulagningu og framtíð félagsins. Viðræðurnar eru
sagðar á „viðkvæmu stigi“ og óvíst um niðurstöðu.
Þá kemur fram að Exista bíði niðurstöðu í dóms-
málum um uppgjör gjaldmiðlasamninga við Kaup-
þing banka og Glitni banka, en niðurstöður þeirra
skipti verulegu máli varðandi afkomu félagsins og
eigið fé.
Samkvæmt uppgjörinu nam hins vegar eigið fé
Existu 200 milljónum evra, eða 34 milljörðum króna
um áramót og hafði lækkað um rúm 90 prósent.
Heildareignir höfðu rýrnað um rúm 70 prósent og
námu 2,3 milljörðum evra, eða 391 milljarði króna.
Þá kemur fram að Exista hafði á árinu greitt
skuldir sem námu um 3,5 milljörðum evra, eða 602
milljörðum króna. Meðal annars voru seldar eignir
í Sampo Group og Storebrand til að grynnka á skuld-
um.
„Fall Kaupþings banka hf. og sala eignarhluta
Exista í Sampo Group hafði verulega neikvæð áhrif
á afkomu á árinu 2008,“ segir í tilkynningu félagsins.
- óká
Tap Existu 2008 nam 206 milljörðum króna samkvæmt uppgjöri sem birt var í gær:
Bíða niðurstöðu í dómsmálum
VÆNT ENDURGREIÐSLA
Í viðræðum Existu við helstu lánveitendur hefur komið
fram hvers vænt er um endurgreiðslur frá félaginu eftir því
hvernig unnið verður úr málum.
Leið Endurgreiðsluhlutfall
Gjaldþrotsleið 2-7%
Eignsala skv. núvirtu sjóðsstreymi 17-26%
Fjárhagsleg endurskipulagning til ársins 2023 64-95%
Áætlunin er sett fram í afkomuskýrslu Existu fyrir 2008 með
fyrirvara um að breyttar forsendur geti haft nokkur áhrif á
endurgreiðsluhlutfallið.
FERÐALÖG Hundrað íbúum Kanarí-
eyja á aldrinum 18 til 35 ára var í
gær tilkynnt að þeir væru á leið í
ferðalag Íslands.
Boðið er liður í markaðsátaki
ferðamálaráðs Kanaríeyja. Þús-
undir sóttu um að fá að fara með
í ferð til einhvers lands Norður-
Evrópu, en fengu í gær að vita
hvert.
Tilgangurinn er að kynna eyj-
arnar sem stað þar sem lyfta
megi sér upp úr skammdegis-
þunglyndi. Hópurinn, auk fylgi-
liðs, fer dansandi og syngjandi
um götur borgarinnar í dag og á
morgun, en jafnframt stendur til
að bjóða 100 manns héðan í viku-
ferð til Kanaríeyja. - óká
Hundrað manns frá Kanarí:
Koma hingað og
bjóða fólki heim
FÖNGULEGUR HÓPUR Margur Íslend-
ingurinn hefur sótt Kanaríeyjar heim.
Nú kemur hingað 100 manna hópur.
MYND/FERÐAMÁLARÁÐ KANARÍEYJA
Á AFKOMUKYNNINGU
Lýður Guðmundsson,
stjórnarformaður Existu,
sést hér á afkomukynningu
í október í fyrra. Í gær
var birt uppgjör félagsins
vegna síðasta árs.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUR „Allur niðurskurður
í viðhaldi og þjónustu á bágborn-
asta samgöngukerfi landsins leið-
ir til eyðingar byggðarinnar á
suðurfjörðum Vestfjarða fyrr en
seinna,“ segir í ályktun bæjar-
ráðs Vesturbyggðar sem mótmæl-
ir harðlega áformum um fækk-
un ferða Breiðafjarðarferjunar
Baldurs.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu var nær öllu starfs-
fólki við Baldur sagt upp eftir að
Vegagerðin tilkynnti að samning-
ur um niðurgreiðslur á vetrar-
ferðum yrði ekki endurnýjaður
um áramót. Einnig verður dregið
úr þjónustu við vegakerfið. „Sam-
gönguvandinn er nú þegar yfir-
drifinn og samfélaginu afar dýr-
keyptur,“ segir bæjarráðið. - gar
Fækkun Breiðafjarðarferða:
Vestfirðingar
óttast landauðn
100 fengu stöðusektir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafði afskipti af um 100 bifreiðum
sem lagt hafði verið ólöglega um
helgina í miðborginni og nágrenni
hennar. Fjöldi fullfrískra ökumanna
fékk sekt fyrir að leggja í stæði
fatlaðra.
Bílþjófar handteknir
Tveir ökumenn voru handteknir á
stolnum bílum í Reykjavík á laugar-
dag. Rúmlega þrítug kona var tekin
próflaus á stolnum bíl í Háaleitis-
hverfi. Þá var kona um tvítugt tekin
í miðbænum á stolnum bíl. Hún
reyndist vera í annarlegu ástandi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS