Fréttablaðið - 20.10.2009, Page 10
10 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR
GALLABUXNAVINUR Japanska söng-
konan Kumi Koda heldur ræðu eftir að
hún fékk viðurkenningu fyrir að vera ein
þeirra sem best vinnur því framgöngu
að ganga í gallabuxum. Verðlaunin voru
veitt í 26. sinn í Tókýó í Japan í gær.
VIÐSKIPTI „Samkeppnishæfni
Íslands hefur aldrei verið meiri og
fyrirspurnum frá erlendum fjár-
festum fjölgað,“ segir Þórður H.
Hilmarsson, framkvæmdastjóri
Fjárfestingarstofu Íslands.
Þórður flytur erindi um fjárfest-
ingar í nútíð og framtíð á vegum
Fjárfestingarstofu, iðnaðarráðu-
neytis og Útflutningsráðs í næstu
viku. Þar verður fjallað um beinar
erlendar fjárfestingar í víðu sam-
hengi og tækifærin sem hér eru.
Þórður segir tilgang ráðstefn-
unnar eiga að vekja athygli á þýð-
ingu og áhrifum erlendra fjárfest-
inga á uppbyggingu atvinnulífsins.
Ekki síst beinist hún að því að
greina frá þeim fjölmörgu tæki-
færum sem nú séu að fæðast á mun
fleiri sviðum en nú þekkist.
Þórður telur mikilvægt að færa
umræðuna um þennan málaflokk
af því stigi að bein erlend fjárfest-
ing snúist einvörðungu um álver,
stóriðju eða annan orkufrekan
iðnað. Tækifærin séu mörg og þau
eigi að nýta fremur en að reisa
þeim skorður.
Á ráðstefnunni verður greint
frá nokkrum dæmum um nýlega
erlenda fjárfestingu. Þar verð-
ur til dæmis fjallað um erlendar
fjárfestingar út frá samfélagslegri
ábyrgð fyrirtækja og kynntar nið-
urstöður um afstöðu Íslendinga til
fjárfestinga erlendra aðila hér á
landi.
- jab
Erlendir fjárfestar skoða ýmsa kosti hér á landi í skugga efnahagshrunsins:
Margar fyrirspurnir í skoðun
ÞÓRÐUR H. HILMARSSON Fyrirspurnum
frá erlendum fjárfestum hefur fjölgað,
segir framkvæmdastjóri Fjárfestingar-
stofu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Enn hafa 216 fram-
bjóðendur til síðustu alþingis-
kosninga ekki skilað Ríkisend-
urskoðun fjárhagslegu uppgjöri
vegna kosninganna. Þeir hafa níu
daga frest til þess.
105 hafa sent inn svör, en alls
er 321 frambjóðanda skylt að
gera það. Þeir frambjóðendur
sem eyddu meira en þrjú hundr-
uð þúsund krónum í kosninga-
baráttuna eiga að skila uppgjöri,
aðrir skila yfirlýsingu um að þeir
hafi ekki farið yfir þetta viðmið.
Þessi skylda er samkvæmt
lögum um fjármál stjórnmála-
samtaka og frambjóðenda.
- kóþ
Uppgjör frambjóðenda:
Enn hafa 216
engu svarað
ORKUMÁL Katrín Júlíusdóttir iðn-
aðarráðherra segir mikilvægt að
hraða ákvörðunum um nýja orku-
umhverfis- og auðlindaskatta,
en þeir eiga að skila ríkissjóði 16
milljörðum króna í tekjur á næsta
ári samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
hjá Einari Þorsteinssyni, forstjóra
Elkem Ísland, að ef þau áform sem
kynnt hafa verið nái fram að ganga
muni það slá út af borðinu áform
um að byggja sólarkísilverksmiðju
á Grundartanga. Rætt hefur verið
um 123 milljarða króna erlenda
fjárfestingu í því sambandi.
Katrín segir að þótt málið hafi
verið sett upp með þeim hætti í
fjárlagafrumvarpinu að innheimta
eigi 16 milljarða af raforkusölunni,
þar af 2/3 hjá stóriðju einni, verði
gjaldstofninn mun breiðari.
Hluti af þessari gjaldtöku sé
umhverfisgjöld á ferðamenn, sem
verið er að undirbúa, og einnig auð-
lindagjöld af fiskveiðum og öðrum
auðlindum.
„Ég held að það blasi við hverjum
einasta manni að það gangi ekki
upp og núna er um að gera að vinna
hratt,“ sagði Katrín. „Við þurfum
að skoða þetta allt í samhengi. Hún
segir að kanna þurfi áhrif þessar-
ar skattlagningar á mismunandi
tegundir iðnaðar í samráði við
hagsmunaaðila og einnig sé rétt
að kalla Neytendasamtök að borð-
inu en heimilin í landinu mundu
greiða um 1/4 hluta af gjaldi á raf-
orkusölu.
Katrín segist líka telja eðlilegt
að sett verði svonefnt sólarlags-
ákvæði í lög þar sem skattheimt-
an er ákveðin, þannig að hún verði
aðeins samþykkt til tiltekins ára-
fjölda en komi síðan til endurskoð-
unar. „Mér finnst að það eigi raun-
ar við um alla skattlagningu, að
menn þurfi á hverjum tíma að rök-
styðja hvers vegna ein leið er farin
en ekki önnur,“ segir Katrín. - pg
Iðnaðarráðherra um viðbrögð Elkem:
Ætlar að hraða ákvörð-
un um auðlindaskatt
IÐNAÐARRÁÐHERRA Útfærsla orku-,
umhverfis- og auðlindagjalda er nú til
skoðunar í fjármálaráðuneytinu og Katr-
ín Júlíusdóttir segir brýnt að niðurstaða
fáist sem fyrst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STAÐA MANNAUÐS-
STJÓRNUNAR
Kynningarfundur
um CRANET –
rannsóknina 2009
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík kynnir niðurstöður CRANET-rannsóknarinnar á íslenskri mannauðs-
stjórnun fimmtudaginn 29. október kl. 8:30–10:00 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, 3. hæð.
Niðurstöður byggja á svörum 138 stærstu vinnuveitenda á Íslandi. Verkefnið er unnið í samstarfi við
Cranfield Network on International Human Resource Management og er að þessu sinni styrkt af
fjármálaráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og Þróunarsjóði Háskólans í
Reykjavík. Höfundar skýrslunnar eru Arney Einarsdóttir, Ásta Bjarnadóttir og Finnur Oddsson.
Meðal viðfangsefna skýrslunnar eru:
Staða mannauðsstjórnunar í skipulagsheildinni
Mönnun og ráðningar
Starfsþróun og endurgjöf
Laun og umbun
Samskipti við starfsmenn
Mannafli og hagræðingaraðgerðir
Þroskastig mannauðsstjórnunar
Boðið er upp á morgunverð. Aðgangur er ókeypis en sætafjöldi er takmarkaður. Vinsamlega skráið ykkur
á netfanginu skraning@hr.is. Nánari upplýsingar er að finna á www.hr.is/cranet.
Austur-Indíafjelagið, elsta og vinsælasta indverska
veitingahúsið hér á landi, fagnar nú 15 ára afmæli. Í tilefni
þess höfum við sett saman fjögurra rétta afmælismatseðil
með okkar vinsælustu réttum í gegnum tíðina.
Sjá afmælismatseðil á austurindia.is
Tilboðið gildir aðeins í október
Borðapantanir í síma 552 1630
Indverska
ævintýrið
15 ára
Hverfisgata 56, 101 Reykjavík
austurindia@austurindia.is
Afmælismatseðill:
Úrval vinsælustu rétta
okkar síðustu 15 ár
4.990 kr.
KÖNNUN Tæplega 70 prósent þeirra
sem tóku þátt í skoðanakönnun
Fréttablaðsins segja ríkisstjórn
Samfylkingar og Vinstri grænna
hafa veikst við
afsögn Ögmund-
ar Jónassonar.
Af þeim sem
tóku afstöðu til
spurningarinn-
ar sögðu 69,1
prósent stjórnina
hafa veikst mjög
mikið eða frek-
ar mikið. Alls
sögðu 9,2 prósent
stjórnina hafa styrkst við afsögnina,
11,3 prósent sögðu stjórnina hafa
styrkst frekar mikið og 0,9 prósent
sögðu hana hafa styrkst mjög mikið.
Rúmur fimmtungur, 21,7 prósent,
taldi brotthvarfið hvorki hafa veikt
stjórnina né styrkt.
Ögmundur segir annarra að vega
og meta könnunina, en hægt sé að
horfa á áhrif brotthvarfs hans bæði
innlands og utan. „Ég held að hrær-
ingarnar í tengslum við afsögn mína
hafi styrkt stöðu Íslands og þar með
ríkisstjórnarinnar, eins mótsagna-
kennt og það kann að hljóma. Ég er
sammála því mati utanríkisráðherra
að Bretar og Hollendingar hafi séð
að þeir hafi gengið of langt í óbil-
girni sinni.
Hér innanlands hlýtur það að
vera komið undir því hvernig rík-
isstjórnin stendur sig hvort hún
styrkist eða veikist til langframa.
Allt tengist þetta eflaust afstöðu
fólks til þeirra hræringa sem nú
ganga yfir.“ Ögmundur sagðist
ekkert vilja segja um endurkomu
sína í ríkisstjórn; málið væri ekki
til umræðu nú. „Ég gekk út úr rík-
isstjórninni vegna óánægju með
vinnubrögð stjórnarinnar. Þar
horfi ég heildstætt á málið, vinnu-
brögð varðandi Icesave, Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn, lántökur Íslands
varðandi gjaldeyrisforðann, niður-
skurðinn og svo framvegis. Þetta
er heildstæður pakki sem veldur
minni óánægju. En ég geng út úr
stjórninni vegna þess að hún hótaði
að sprengja sig í loft upp ef við töl-
uðum ekki öll einum rómi.“
Hringt var í 800 manns fimmtu-
daginn 15. október. Spurt var:
Styrktist ríkisstjórnin eða veiktist
við afsögn Ögmundar Jónassonar?
Alls tóku 84,6 prósent aðspurðra
afstöðu til spurningarinnar.
kolbeinn@frettabladid.is
brjann@frettabladid.is
Afsögn Ögmundar
veikti ríkisstjórnina
Tæp 70 prósent telja ríkisstjórnina hafa veikst við brotthvarf Ögmundar Jónas-
sonar. Ögmundur segir brotthvarf sitt hafa styrkt málstað Íslendinga gagnvart
Bretum og Hollendingum. Hann vill ekkert segja um mögulega endurkomu.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Styrkist ríkisstjórnin
eða veikist við afsögn
Ögmundar Jónassonar?
8,3%
23,3%
Styrkist mjög mikið
Styrkist frekar mikið
Styrkist hvorki né veikist
Veikist frekar mikið
Veikist mjög mikið
0,9%
45,8%
21,7%
Sa
m
kv
æ
m
t k
ön
nu
n
Fr
ét
ta
-
bl
að
si
ns
1
5.
o
kt
ób
er
2
00
9