Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 12
12 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STYRKJA BÆNDUR Gerda Verburg,
landbúnaðarráðherra Belga, og Bruno
Le Maire, ráðherra Frakka, á fundi
Landbúnaðarráðs ESB í gær. Lofað
hefur verið 280 milljón evrum (51,6
milljörðum króna) til stuðnings mjólkur-
bændum sem orðið hafa fyrir barðinu á
alþjóðlegu fjármálakrísunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Hugsanlegt er að heimt-
ur úr búi gamla Landsbankans
verði meiri en fram kom í sam-
komulagi á milli gamla og nýja
bankans um síðustu helgi. Ekki er
útilokað að endurheimtur kunni
að vera á milli 93 til 97 prósent
sem að mestu fara upp í Icesave-
skuldbindinguna.
Að hluta skýrist það af hugsan-
legri hækkun á virði eigna bank-
ans en mestu munar þó um nið-
urstöðu samninga við evrópska
seðlabankann um uppgjör vegna
veðlána sem Landsbankinn í Lúx-
emborg fékk hjá evrópska seðla-
bankanum skömmu áður en hann
fór í þrot í fyrra.
Í nýjasta eignamati skilanefnd-
ar Landsbankans kemur fram að
ætlað verðmæti eigna nemi 1.190
milljörðum króna á móti skuld-
um upp á 1.319 milljarða króna.
Miðað við þetta endurheimt-
ast um níutíu prósent forgangs-
krafna, sem eru að mestu kröfur
tengdar Icesave-innlánsreikning-
unum.
Lánin sem Landsbankinn í Lúx-
emborg fékk hjá evrópska seðla-
bankanum hljóða upp á rúma 2,2
milljarða evra, jafnvirði rúmra
fjögur hundruð milljarða króna á
núvirði. Þau voru að mestu notuð
til að fjármagna rekstur Lands-
bankans hér.
„Þetta er viðkvæmt mál,“ segir
Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi skilanefndar Landsbank-
ans. Hann bendir á að skilanefnd-
in geri ekki ráð fyrir verulegum
heimtum á eignum dótturfélags
Landsbankans í Lúxemborg í
eignamati gamla bankans. „Skila-
nefndin hefur haft vaðið fyrir
neðan sig og metur endurheimt-
ur hóflega. Því geti endurheimtu-
hlutfall hækkað miðað við það
sem gert er ráð fyrir náist eðli-
leg niðurstaða um uppgjör búsins
í Lúxemborg,“ segir Páll en bætir
við að útilokað sé að segja til um
hversu mikið heimtur kunni að
hækka. „Menn vita það ekki,“
segir hann.
jonab@frettabladid.is
Lausn Landsbankans ligg-
ur hjá seðlabanka Evrópu
Ekki er útilokað að gamli Landsbankinn endurheimti allt að 97 prósent af eignum sínum. Málið strandar á
veðlánaviðskiptum bankans við seðlabanka Evrópu. Það breytir litlu um skuldbindingar vegna Icesave.
LANDSBANKINN Í LÚXEMBORG Veðlán Landsbankans kunna að hamla styrkingu
krónunnar. Seðlabanki Íslands og skilanefnd Landsbankans hafa árangurslaust reynt
að semja um lánin sem samanstanda af íslenskum ríkisskuldabréfum.
■ Landsbankinn í Lúxemborg
bjó til tvo álíka stóra lánapakka í
tengslum við endurhverf viðskipti
bankans við evrópska seðlabank-
ann. Annar þeirra hefur í gegnum
tíðina gengið undir heitinu Betula
og samanstendur af veðum í evr-
ópskum skuldabréfum, flest þeirra
eru bresk.
Hinn nefnist Avens og saman-
stendur af íslenskum ríkisskulda-
bréfum. Íslensk stjórnvöld hafa
frá áramótum átt í viðræðum við
evrópska seðlabankann vegna
málsins en talið er að lánapakk-
inn kunni að hamla styrkingu
krónunnar.
■ Icesave-innlánskröfurnar hljóða
upp á 750 milljarða króna. Náist
níutíu prósent upp í kröfur jafn-
gildir það því að 75 milljarðar falli
á ríkið. Náist mest 97 prósent upp
í kröfur falla rúmir 22 milljarðar
hið minnsta á ríkið.
■ Líkt og fram hefur komið þarf
ekki að borga inn á Icesave-kröf-
una fyrr en eftir sjö ár. Á meðan
safnar höfuðstóllinn vöxtum.
Miðað við 700 milljarða króna
höfuðstól, sem safnar 5,5 prósenta
ársvöxtum, má gróflega áætla að
íslenskir skattgreiðendur þurfi
samt sem áður að reiða af hendi
hátt í þrjú hundruð milljarða
króna þegar upp er staðið.
ENDURHEIMTUR
OG ICESAVE
SVEITARSTJÓRNIR „Ólíðandi er að
niðurskurður á fjárveitingum
til Heilbrigðisstofnunarinnar
á Blönduósi sé mun meiri en til
sambærilegra stofnana,“ segir
bæjarstjórn Blönduóss í ályktun.
Bæjarstjórn kveðst óttast mjög
um opinber störf ef skerðingar
og sameiningar ríkisstofnana
á landsbyggðinni nái fram að
ganga. Fækka eigi stjórnsýslu-
einingum og auka þar með mið-
stýringu í stjórnsýslu ríkisins.
„Þar með er stefnt í hættu því
uppbyggingarstarfi og hagræð-
ingu sem þegar hefur náðst á
síðustu árum með sérhæfingu
verkefna innan stofnana svo sem
með uppbyggingu innheimtumið-
stöðvar sekta á Blönduósi.“ - gar
Mótmæli frá Blönduósi:
Segja mest
skorið hjá sér
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN Á BLÖNDUÓSI
Bæjarstjórn Blönduóss segir mest skorið
niður þar.
HÍ braut ekki jafnréttislög
Háskóli Íslands braut ekki jafnréttislög
þegar karlmaður var ráðinn í stöðu
lektors eða dósents við tölvunarfræði-
deild í stað konu sem einnig sótti um.
Hæstiréttur hefur kveðið upp þennan
dóm. Ekki hefðu verið leiddar líkur
að því að mismunun vegna kynferðis
hefði verið beitt við ráðninguna í jan-
úar 2006. Málskostnaður féll á ríkið.
DÓMSTÓLAR
ÍRLAND, AP John O´Donoghue sagði
af sér sem forseti írska þingsins
í síðustu viku, eftir að upp komst
að hann hafði eytt almannafé
ótæpilega í eigin lúxuslifnað.
Við afsögnina hélt hann
þrumuræðu á þinginu þar sem
hann sakaði aðra þingmenn um
hræsni. Hann segist aldrei hafa
brotið neinar reglur né dregið sér
fé, heldur hafi allt féð farið í að
greiða fyrir þjónustu gegn reikn-
ingum.
Fyrir þremur mánuðum birtu
írsk dagblöð upplýsingar um
ferðakostnað hans síðan 2002,
sem samtals nam meira en 100
milljónum króna. - gb
Þingforseti Írlands segir af sér:
Segir aðra þing-
menn hræsnara
WWW.N1.IS
Frábært úrval af dekkjum, dekkjahótel og betri þjónusta
Þú færð skjóta og góða hjólbarðaþjónustu hjá N1. Við bjóðum
upp á eitt mesta úrval landsins af hjólbörðum og geymum
sumardekkin á dekkjahóteli fyrir þá sem vilja. Renndu við hjá
okkur þegar þér hentar, við tökum vel á móti þér!
Láttu ekki veturinn
koma þér á óvart!
-15%
Hjólbarða-
þjónusta
Þeir sem skrá sig
í Sparitilboð N1 á
n1.is fá veglegan
afslátt
Hjólbarðaþjónusta N1 er að finna víða á höfuðborgarsvæðinu
og á völdum stöðum á landsbyggðinni.
ALÞINGI Menntamálaráðherra vinn-
ur nú að nýju frumvarpi um fjöl-
miðla sem á að vera fyrsta heild-
arlöggjöfin um starfsemi þeirra.
Tilefni lagsetningarinnar er
Evrópu tilskipun um samræmingu
laga og stjórnsýslufyrirmæla um
sjónvarpsrekstur. Reiknað er með
að tilskipunin verði innleidd fyrir
19. desember.
Með tilskipuninni er verið að
samræma núgildandi útvarpslög
og prentlög, því reiknað er með
samræmdum reglum fyrir hljóð-,
mynd- og ritmiðla. Þá er gert ráð
fyrir því að samræmdar ábyrgðar-
reglur verði settar.
Sérstaklega verður kveðið á um
eignarhald fjölmiðla, það verði
gagnsætt og ritstjórnarlegt frelsi
verði tryggt. Ekki verður tekið á
samþjöppun eignarhalds í frum-
varpinu en skipuð nefnd sem kanni
hana og komi eftir atvikum með til-
lögur að takmörkunum á því.
Þá verða settar lágmarksreglur
um auglýsingar í öllum fjölmiðl-
um og markaðssetning gegn börn-
um í hljóð- og myndmiðlum verð-
ur takmörkuð. Þá verður tekið á
nafnlausum athugasemdum á vef-
miðlum.
Frumvarpið hefur verið kynnt
þingflokkum og verður gert
aðgengilegt á vef menntamálaráðu-
neytisins og leitað eftir samráði við
almenning og hagsmunaaðila. Það
verður afgreitt úr ríkisstjórninni í
byrjun nóvember. - kóp
Unnið að samræmingu laga um fjölmiðla:
Gagnsæi eignar-
halds verði tryggt
LÖG UM FJÖLMIÐLA Í menntamála-
ráðuneytinu er nú unnið að samræmdri
löggjöf fyrir fjölmiðla. Ekki verður tekið
á samþjöppun eignarhalds í þessari lotu
en málið sett í nefnd. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AFGANISTAN Nefnd á vegum Sam-
einuðu þjóðanna hefur úrskurðað
að fjöldi atkvæða í forsetakosning-
um í Afganistan í ágúst sé ógildur
vegna kosningasvindls.
Stjórnvöld í Kabúl hafa ekki stað-
fest þetta en þó virðist sem kjósa
þurfi að nýju milli þeirra tveggja
frambjóðenda sem flest atkvæði
fengu í forsetakosningunum. Áður
hafa stjórnvöld sagt að niðurstaða
kosninganna hafi verið sú að Hamid
Karzai, núverandi forseti, hafi feng-
ið 55 prósent atkvæða og væri því
réttkjörinn til áframhaldandi setu
á forsetastóli með meira en helm-
ings fylgi í fyrstu umferð. Ef marka
má nýjustu fréttir fékk Karzai hins
vegar aðeins 48 prósent atkvæða og
þarf því að etja kappi við þann sem
næstflest atkvæði fékk, Abdullah
Abdullah utanríkisráðherra. Sam-
kvæmt upphaflegu talningunni fékk
Abdullah 28 prósent atkvæða.
Karzai forseti hefur sjálfur sagt
að hann hafi sigrað í kosningunum
strax í fyrstu umferð en kosninga-
eftirlitsmenn segja sönnunargögn
fyrir svindli vera skýr. BBC segir
Karzai vera bálreiðan vegna þess-
arar nýju stöðu. Forsetinn telji að
vestræn ríki séu að reyna að hafa
af honum sigurinn. Hann muni gera
allt sem hann geti til að koma í veg
fyrir aðra umferð kosninganna.
- gar
Mikill fjölda atkvæða í forsetakosningunum í Afganistan ógildur vegna svindls:
Forseti telur sigri stolið af sér
KOSIÐ Í AFGANISTAN Eftirlitsnefnd telur
að allt að fjórðungur atkvæða í forseta-
kosningunum sé ógildur vegna svindls.
MYND/AP