Fréttablaðið - 20.10.2009, Side 15
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
HEIMASÍÐA MATÍS geymir upplýsingar um efni sem eru
algeng í matvælun. Þær eru í íslenska gagnagruninnum ÍSGEM og
segja til um allt að 45 efni í um 900 fæðutegundum. Sjá nánar á
www.matis.is/ISGEM/is
„Þetta er spennandi leið til að
upplifa náttúruna. Fyrir mér var
þetta algjör opinberun,“ segir Guð-
mundur Finnbogason um reynslu
sína af svokölluðu rathlaupi, íþrótt
sem hefur hægt og bítandi verið að
ryðja sér til rúms á Íslandi síðustu
mánuði.
Að sögn Guðmundar er rathlaup
samblanda af ratleik og víðavangs-
hlaupi sem varð til innan norska
hersins. „Svo fór það að breiðast
út enda skemmtilegt í alla staði.
Rathlaup virkar þannig að kepp-
endur fá kort af ákveðnu svæði og
stundum líka áttavita og þurfa að
finna í réttri röð þá staði sem búið
er að merkja inn á kortið. Sá sem
lýkur verkefninu á sem skemmst-
um tíma sigrar. Hljómar einfalt en
er mjög krefjandi þar sem þetta
er hvort tveggja í senn hlaup og
kortalestur.“
Guðmundur viðurkennir að
honum þyki fátt eins leiðinlegt og
að hlaupa og þess vegna hafi komið
honum á óvart hversu skemmti-
legt rathlaup er. „Sjálfsagt er það
meðal annars vegna þess að maður
er með hugann við að lesa í land-
ið og kennileitin og yfirfæra þær
upplýsingar yfir á kort og svo
öfugt. Þannig að maður finnur ekki
fyrir því þótt maður sé kannski á
harðaspani allan tímann. Svo er
þetta líka heilsubætandi og góð
leið til að kynnast náttúrunni upp
á nýtt.“
Þótt rathlaup sé að ná fótfestu
hérlendis segir Guðmundur það
hafa verið vinsælt á Vesturlönd-
um um nokkurt skeið. „Heims-
meistaramót í rathlaupi hafa verið
haldin undanfarin ár og á þau
mæta allt að 30.000 manns á öllum
aldri, allt frá börnum og upp í eldri
borgara sem keppa í sínum flokki.
Keppnirnar einskorðast alls ekki
við einhver skógarsvæði heldur
keppa menn til dæmis á háskóla-
svæðum þar sem byggingar og
styttur eru notaðar sem kenni-
leiti,“ segir hann og bætir við að í
kringum þessa íþrótt hafi skapast
mikil viðskipti erlendis.
Guðmundi er því hulin ráðgáta
hvers vegna rathlaup hefur ekki
náð fótfestu fyrr á Íslandi. „Til-
raunir voru gerðar til að kynna
það fyrir landsmönnum fyrst árið
1991 og svo 1997 en það er ekki
fyrr en nú sem það nær einhverri
átt. Hugsanlega vegna þess að sér-
stakt félag, Rathlaupsfélagið, var
stofnað til að halda utan um starf-
semina og það hefur nú haldið
nokkrar keppnir,“ segir hann og
bendir á að næstkomandi fimmtu-
dag fari einmitt slík keppni fram
á Laugardal. „Þetta kostar ekkert
þar sem félagið skaffar ný kort.
Menn þurfa bara að mæta í úti gall-
anum.“ Hann segir að á facebook-
síðu félagsins sé að finna allar upp-
lýsingar. roald@frettabladid.is
Lesið í hóla og hæðir
Guðmundi Finnbogasyni kennara leiðist fátt eins mikið og að hlaupa. Samt nýtur hann þess að spretta
úr spori í náttúrunni í svokölluðu rathlaupi sem hefur verið að ná fótfestu hérlendis síðustu mánuði.
„Svo er þetta líka heilsubætandi og góð leið til að kynnast náttúrunni upp á nýtt,“ segir Guðmundur Finnbogason, til hægri, um
íþróttina rathlaup, sem er blanda af ratleik og víðavangshlaupi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Myndakökur og marsipanmyndir
fyrir öll tækifæri
S. 578 5588 og 661 5588
Opið: má-fö. 12-18,
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is