Fréttablaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 22
18 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Svona er
þetta með
fyrsta barn!
Maður er
alveg móður-
sjúkur!
Já en... hann gaf frá
sér svona hljóð um
nóttina!
Hljóð! Oj! Þú
verður að láta
kanna þetta!
Gerði það,
allt í góðu!
Góðan daginn, Palli!
Svafstu vel? Já.
Einmitt.
Það er ein-
mitt það.
Ég er fimmtán
ára. Fyrir utan að borða og
kvarta undan ykkur er
svefn það sem ég er
bestur í.
Jæja! Er veturinn
að verða búinn
Það er næstum
því mánuður þar
til það kemur vor
Mjási.
Það er til allt
of mikið af
reglum.
Hvernig
hafa börn-
in það?
Þau eru bara
eins og þau eru
alltaf …
… öskrandi, hlaupandi og kúkandi.
Fyrirgefðu frú mín
góð. Geturðu nokkuð
aðstoðað mig? … ég er
villtur!
GPS
gervihnatta
staðsetningarlausnir
Ég C ÞIG
Þegar komið er á þrítugsaldurinn fer fólk að huga að því að festa ráð sitt, kaupa fasteign og fjölga mannkyninu. Það
er gangur lífsins. Sjálf er ég barnlaus, en
margar vinkonur mínar hafa eignast börn
undanfarin ár. Á þessum árum hef ég fylgst
náið með nokkrum meðgöngum, hlustað á
fæðingarsögur, verið þátttakandi í brjósta-
gjafaumræðum, pælt í nöfnum og orðið vitni
að mismunandi uppeldisaðferðum.
Fyrir stuttu áttaði ég mig á því að eftir
að hafa hlýtt á ótal sögur vinkvenna
minna um meðgöngur, börn og
uppeldi er ég nú orðin nokk-
uð vel upplýst um allt sem
við kemur smábörn-
um. Ég veit til að mynda
hvaða bleiur þykja bestar
og ódýrastar, ég kann ráð við
kláða í kringum geirvörtur,
ég veit hvaða mat ber að forð-
ast og ég kann nokkur ráð til að fá börn til
að hætta að sofna á brjósti. Auk þess að hafa
lært ýmislegt um barnauppeldi af vinkonun-
um stendur mér einnig til boða að fá lánuð
óléttuföt og barnaföt þegar ég loks ákveð að
nú sé minn tími kominn.
Ég áttaði mig einnig á því að ég er í raun
mun betur upplýst um allt sem barni fylgir
en sambýlingurinn sem virðist ekki ræða
slík mál við sína vini og kann þar af leiðandi
engin ráð við kláða í geirvörtum.
Í Bretlandi kom út fyrir stuttu bók þar
sem konum voru gefin ráð um hvernig megi
halda vinskapnum gangandi þegar vinkona
verður móðir. Samkvæmt bókinni verða
barnlausu vinkonurnar að vera þolinmóð-
ar og viljugar að hlusta á barnasögur og
mæðurnar þurfa að hlusta á allt slúðrið úr
lífi þeirra barnlausu. Þetta er alls ekki svo
erfitt og líkt og ég hef sannreynt þá lærir
maður ýmislegt í leiðinni.
Gott ráð við kláða í geirvörtum
NOKKUR ORÐ
Sara
McMahon
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...