Fréttablaðið - 20.10.2009, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 20. október 2009 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 20. október 2009
➜ Tónleikar
20.30 Papar halda tónleika í félags-
heimilinu á Ólafsvík. Sérstakir gestir
verða Gylfi Ægisson
og Bubbi Morthens.
Húsið verður opnað
kl. 20.
21.00 Fabúla ásamt
hljómsveit, verður með
tónleika á Rósenberg
við Klapparstíg.
➜ Síðustu Forvöð
Sýningu Harðar Lárussonar „50 mann-
lýsingar“ á Mokka við Skólavörðustíg
3a, lýkur á fimmtudaginn. Opið daglega
kl. 9-18.30.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
kvikmynd leikstjórans Roberts Bresson
„Pickpocket“ (1959). Sýningar fara fram
í Bæjarbíói við Strandgötu í Hafnarfirði.
Enskur texti.
➜ Leikrit
20.00 Leikfélag Ölfuss sýnir gaman-
leikritið „Maður í mislitum sokkum“
eftir Arnmund Backman. Sýningin fer
fram í Versölum við Hafnarberg í Þor-
lákshöfn.
➜ Málþing
12.30 Félagsfræðingafélag Íslands og
Lýðheilsustöð standa fyrir málþingi um
fjölmiðla og lýðheilsu á Hótel Sögu við
Hagatorg. Nánari upplýsingar á www.
lydheilsustod.is.
➜ Bækur
20.00 Hjá Alliance Fran-
çaise við Tryggvagötu 8,
verður opnuð sýning á
teikningum Hugleiks
Dagssonar í tilefni af
því að fyrsta bók hans
er nýkomin út í franskri
þýðingu. Takmarkað
upplag af frönsku
þýðingunni verður
til sölu. Nánari upp-
lýsingar á www.af.is
➜ Fyrirlestrar
12.00 Mark Weiner flytur erindi um
uppruna og byggingu stjórnarskrár
Bandaríkja Norður-Ameríku hjá Háskól-
anum á Akureyri, Sólborg, (L201) við
Norðurslóð.
12.00 Skúli Sæland sagnfræðingur
flytur erindið „Ímyndarkreppa Skál-
holts og viðreisn þess um miðja
síðustu öld“. Fyrirlesturinn fer fram í
fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við
Suðurgötu.
17.30 Matti Ósvald heilsufræðingur
flytur erindið „Hvað er málið með
aukakílóin“ í versluninni Maður lifandi
við Borgartún 24. Nánari upplýsingar á
www.madurlifandi.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Ævintýramyndin Where The Wild
Things Are fór beint á toppinn á
lista yfir aðsóknarmestu mynd-
irnar vestanhafs um síðustu helgi.
Náði hún meiri aðsókn en tryll-
irinn Law Abiding Citizen með
Jamie Foxx í aðalhlutverki sem
var einnig frumsýnd um helg-
ina. Where The Wild Things Are,
sem blandar saman leikurum og
teiknuðum persónum, er byggð
á barnabók Maurice Sendak.
Fjallar hún um strák sem ferðast
til lands þar sem skrímsli eiga
heima. Leikstjóri er Spike Jonze
og leikararnir Forest Whittaker
og James Gandolfini ljá tveimur
skrímslum raddir sínar.
Skrímsli fóru
á toppinn
WHERE THE WILD THINGS ARE Ævintýra-
myndin sló í gegn vestanhafs.
Iceland Airwaves-hátíðinni lauk á
sunnudagskvöldið. Trausti Júlíus-
son stóð vaktina á Nasa.
Sunnudagskvöldið hefur smám
saman verið að fá meira vægi á
dagskrá Iceland Airwaves og í ár
var keyrt á fullum krafti á tveimur
stöðum, Sódómu og Nasa. Ég ákvað
að halda mig alfarið á síðarnefnda
staðnum, enda dagskráin þar sér-
staklega spennandi.
Fyrst á svið var hið unga dúó,
Captain Fufanu, sem spilaði dub skot-
ið teknó, lifandi og tilraunasækið.
Þeir eru dæmi um aukna grósku í
íslenskri raf- og danstónlist, en hún
kom mjög sterk inn á Airwaves 2009.
Weirdcore, Breakbeat.is og Reyk
Veek voru öll með sín sérkvöld, en
að auki var raf- og danstónlist áber-
andi á nokkrum öðrum kvöldum og
dagskráin á Nasa á sunnudagskvöld-
ið var hrein danstónlistarveisla.
Á eftir Captain Fufanu var röðin
komin að DJ Margeiri að spila með
fimm manna strengjasveit úr Sin-
fóníuhljómsveitinni undir stjórn
Samma úr Jagúar. Þetta er í fyrsta
sinn sem ég upplifi þessa samvinnu
plötusnúðs og strengjasveitar og
hún kom mjög vel út. Uppistaðan
var langt verk með hægum stíganda
sem náði góðum tökum á áhorfend-
unum sem svo gott sem fylltu Nasa
á þessum tímapunkti. Manni dettur
í hug að það mætti taka þetta dæmi
enn lengra með stærri hljómsveit og
jafnvel söngrödd.
Næstur á svið var Friðfinnur
Sigurðsson sem kallar sig Ocul-
us. Hann skilaði ágætu teknósetti
sem hann impróviseraði að hluta,
en á eftir honum kom þýska sveit-
in Wareika sem hefur verið að spila
með Gus Gus á tónleikaferðinni
hennar síðustu vikur. Þeir þremenn-
ingar blanda ýmsum óvenjulegum
hlutum við danstónlistina, þ.á m.
afró-töktum, poppsöng og balkönsk-
um stefjum. Á köflum fínt sett, en
virkaði svolítið ómarkvisst.
Það voru svo Nasa-kóngarnir í
Gus Gus sem kláruðu kvöldið. Þeir
spiluðu í rúmlega einn og hálfan
tíma og fengu stappfullan salinn til
að hoppa, klappa og veifa höndun-
um eins og það væri enginn morg-
undagur. Þeir spiluðu mest efni
af nýju plötunni 24/7, þ.á m. mjög
flotta útgáfu af Add This Song, en
líka eldri stykki eins og Ladyshave
og partíbombuna Moss. Hljómsveit-
in er greinilega í mjög góðu formi
þessa dagana og Daníel Ágúst naut
sín sérstaklega vel á sviðinu. Og
þar með lauk Airwaves 2009. Með
stæl.
Hrynheitt sunnudagskvöld á Airwaves
GUSGUS Lauk Airwaves þetta árið með
stæl.