Fréttablaðið - 20.10.2009, Síða 30
26 20. október 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. smátota, 6. hróp, 8. laus greinir,
9. áverki, 11. mun, 12. högg, 14.
jarðsögutímabil, 16. spil, 17. kirna, 18.
sjáðu, 20. dreifa, 21. glata.
LÓÐRÉTT
1. eignir, 3. eftir hádegi, 4. vandræði,
5. svelg, 7. katólska, 10. fljótfærni, 13.
ástæður, 15. mannvíg, 16. kærleikur,
19. hola.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sepi, 6. óp, 8. hið, 9. sár,
11. ku, 12. spark, 14. ísöld, 16. ás, 17.
ker, 18. sko, 20. sá, 21. tapa.
LÓÐRÉTT: 1. góss, 3. eh, 4. pikkles,
5. iðu, 7. pápíska, 10. ras, 13. rök, 15.
dráp, 16. ást, 19. op.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 45,5 prósent.
2 Guðmundur frá Miðdal.
3 Baldur Guðlaugsson.
„Ég myndi hvetja Friðrik til að
fara inn í stúdíó og kippa þessu í
liðinn, ég hef nú gert annað eins,“
segir Bubbi Morthens.
Friðrik Ómar fer rangt með
texta Bubba-slagarans Rómeó
og Júlía í nýrri útgáfu lagsins
sem hann syngur með Jógvani
Han sen. Í útgáfunni, sem var ein-
göngu gerð fyrir útvarpið, syngur
Friðrik: „Draumana tilbáðu þau“ í
staðinn fyrir „Draumarnir tilbáðu
þau“, eins og rétt er.
Bubbi segir að það taki í mesta
lagi klukkutíma að lagfæra text-
ann og hvetur Friðrik til að
„negla“ þetta aftur, því merk-
ing textans sé einfaldlega kol-
röng í þessari útgáfu. Þessu eru
dyggir aðdáendur kóngsins sam-
mála og hafa miklar umræður
um málið sprottið upp á heima-
síðunni Bubbi.is. „Ég vil helst að
menn fari rétt með textana mína,
nema málvilla komi frá mér. Þá
verða menn bara að éta það eftir
mér,“ segir Bubbi. „Ég er mjög
þakklátur og auðmjúkur að þeir
skuli velja lag eftir mig að syngja
en þetta er lítið mál að laga.“
Friðrik Ómar segist ekki hafa
áttað sig á mistökum sínum fyrr
en blaðamaður ræddi við hann.
„Við hljótum að græja þetta. Þetta
eru einhver leiðinda mistök,“ segir
hann, spurður hvort hann ætli
aftur í hljóðverið. „Þetta er ekki á
neinni plötu enn þá, þannig að það
er lítið mál að redda þessu.“
Friðrik er mikill aðdáandi
Bubba og lagið Rómeó og Júlía
er þar í mestu uppáhaldi. „Þetta
er bara geðveikt lag og þegar
maður breytir útsetningunni er
það enn þá gott. Það er hægt að
gera margar útgáfur af því og
það virkar alltaf.“ Þrátt fyrir
mistökin í nýju útgáfunni segist
Friðrik alltaf syngja lagið rétt á
tónleikum. „Ég tók þetta upp einn
heima hjá mér, einn með sjálfum
mér. Ég hef bara ekki heyrt þetta
sjálfur.“
Lagið er eingöngu í flutningi
Jógvans á nýrri plötu þeirra
félaga, Vinalög, og þar fer Færey-
ingurinn rétt með textann. Bubbi
segir það heiður að Færeyingur
skuli syngja lag eftir sig, enda
hafa þessir frændur okkar stutt
vel við bakið á okkur Íslendingum
í kreppunni. „Það þarf ekkert að
ræða það. Ég held ég hafi þakkað
fyrir hönd íslensku þjóðarinnar
í sjónvarpsþættinum í vetur sem
ég tók upp í Færeyjum og söng
fyrir þá. Þar þakkaði ég mikið
fyrir.“ freyr@frettabladid.is
BUBBI MORTHENS: VILL AÐ MENN FARI RÉTT MEÐ TEXTANA SÍNA
Hvetur Friðrik Ómar til að
lagfæra Rómeó og Júlíu
BUBBI MORTHENS
HIRTIR FRIÐRIK
Bubbi hvetur Friðrik
Ómar til að fara í hljóðver
og breyta útgáfu sinni af
Rómeó og Júlíu. Rangt
er farið með texta lagsins.
Bubbi vill að menn fari rétt
með lögin sín. Friðrik Ómar
tók vel í þá bón Bubba að
laga þessi leiðu mistök.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Leikhópurinn Vesturport verð-
ur með opnunarsýningu einnar
stærstu leiklistahátíðar heims,
Festival Iberoamericano, sem
hefst í Kólumbíu í mars á næsta
ári. Hamskiptin eftir Franz Kafka
urðu fyrir valinu en tuttugu manna
hópur frá Íslandi mun fara til Bóg-
óta og taka þátt í uppfærslunni.
Aðstandendur hátíðarinnar
höfðu einnig falast eftir því að
hópurinn myndi setja upp og sýna
Rómeó og Júlíu en það var ekki
hægt vegna anna leikara í þeirri
sýningu. Bæði Björn Hlynur Har-
aldsson og Ingvar E. Sigurðsson
voru til að mynda bókaðir í frum-
sýningu Þjóðleikhússins á sama
tíma. „Skipuleggjendurnir komu
til Suður-Karólínu þegar við Nína
Dögg vorum að sýna Don John.
Þar komu þeir auga á nafn Vest-
urports í sýningarskránni, könn-
uðustu vel við nafnið og vildu fá
okkur á þessa hátíð,“ segir Gísli
Örn þegar Fréttablaðið truflaði
hann í tökum á kvikmyndinni Órói
sem nú fara fram.
Gísla þykir þetta ákaflega spenn-
andi verkefni, að fara til Kólumbíu
og setja þar upp leiksýningu þótt
orðspor landsins hafi verið plagað
af mannránum, eiturlyfjasölu og
hálfgerðu stríðsástandi í fjölmiðl-
um. Vesturport getur þó huggað
sig við þá staðreynd að borgaryf-
irvöld í Bógóta hafa tekið til hend-
inni og borgin er nú talin vera
öruggari en bæði Caracas og Ríó
de Janeiró. „Mér skilst að Bógóta
sé undirlögð af hátíðinni á þessum
tíma, allt verði stopp og íbúarnir
taki þátt í þessu af fullum krafti,
þetta ætti því að vera mikið stuð.“
- fgg
Vesturport á leið til Kólumbíu
HAMSKIPTIN TIL KÓLUMBÍU Hamskipti
Vesturports verður opnunarsýning einn-
ar stærstu leikhúshátíðar heims sem
fram fer í Bógóta í Kólumbíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt
af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi
17-26 okt.
Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32
Opið til 22:00 alla daga
„Ég hlusta bara á Bylgjuna,
alla þættina. Til dæmis hlusta
ég á Bítið þegar ég er að keyra í
vinnuna.“
Ester Stefánsdóttir hannyrðakona.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum
mun kvikmynd
Óskars Jónassonar,
Reykjavík-Rotterdam,
verða framlag Íslands
til Óskarsverðlauna
í ár. Einhverjir
hafa hnotið
um þetta og
bent á að
engin eiginleg
kosning hafi farið fram. Á þessu er
þó eðlileg skýring, því hinar tvær
myndirnar sem komu til greina,
Reykjavik Whale Watching Massacre
og The Good Heart, voru báðar með
of mikið af ensku tali. Enda gerðar
upp á ensku.
Aðdáendur íslenskra
spennuþátta geta nú
slakað á því í gær náðust
samningar milli Saga
Film og Stöðvar 2 um
að gera framhald af
lögfræðiþættinum
Réttur. Áætlað er
að tökur hefjist
þann 7. nóvem-
ber en ekki er
vitað á þessu
stigi málsins hvaða persónur snúa
aftur og hvort einhverjar verði látnar
hverfa. Magnús Jónsson ætti þó
að vera á sínum stað en Sigurjón
Kjartansson mun sem fyrr hafa
yfirumsjón með handritsgerðinni.
Norrænt kóngafólk virðist hafa tekið
ástfóstri við íslenska útivistarfatn-
aðinn frá Cintamani. Fréttablaðið
greindi frá því fyrr á þessu ári þegar
Mary Donaldson, krónprinsessa
Danmerkur, klæddist Cintamani-
fötum í skíðaferð fjölskyldunnar.
Nú má lesa á vefnum Dagbladet.
no frétt um útivistardag hjá norsku
konungsfjölskyldunni. Þar
klæðist hin glæsilega
krónprinsessa Mette-
Marit úlpu frá Cint am-
ani og tekur sig vel út.
Ekki amaleg auglýsing
sem þessi íslenski
fatnaður fær um
þessar mundir.
- fgg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Hann er örugglega með númerið mitt,“
segir Árni Plúseinn úr hljómsveitinni FM
Belfast. David Levy, útsendari frá hinu
virta umboðs- og afþreyingarfyrirtæki
William Morris Endeavor, var staddur á
Nasa á laugardagskvöldið þar sem hann
njósnaði um FM Belfast á Ice-
land Airwaves-hátíðinni.
Árni kannast við áhuga
fyrirtækisins, sem hefur
haft stórlaxa á borð við The
Rolling Stones, Eminem og
Britney Spears á sínum
snærum. Einnig eru þar
á mála leikstjórarnir
Quentin Tarantino og Baltasar Kor mákur,
sem nýverið gerði við það umboðssamn-
ing. „Ég heyrði þetta en hann hefur ekk-
ert spjallað við mig beint, ekki enn þá,“
segir Árni, sem hefur heyrt góða hluti
um fyrirtækið: „Þetta var útskýrt þannig
fyrir mér að Elvis Presley hafi
verið hjá þeim.“ Hann
segir að tónleikarnir á
Nasa hafi verið mjög vel
heppnaðir. „Það voru mikil
læti. Ég hef sjaldan séð
svona mikið af fólki á
svona litlum stað.“
David Levy nýtti
einnig tækifæri og
skoðaði bandaríska tríóið Jessica 6,
sem spilaði á Nasa sama kvöld og FM
Belfast, og dönsku söngkonuna Oh
Land í Listasafni Reykjavíkur. Fór
hann síðan af landi brott skömmu
síðar.
Róbert Aron Magnússon hjá
Iceland Airwaves segir að hátíð-
in hafi heppnast einstaklega vel.
Samningur Hr. Örlygs við Ice-
landair er að renna út og staðfestir
Róbert að nýr samningur verði und-
irritaður á næstu vikum. Hátíðin
verður því haldin að ári liðnu. „Að
sjálfsögðu komum við sterkir inn á
næsta ári. Við viljum reyna að til-
kynna fyrstu hljómsveitirnar
fljótlega eftir áramót og erum
strax farnir að skoða,“ segir
hann. - fb
Njósnað um FM Belfast á Nasa
RÓBERT ARON MAGNÚS-
SON Iceland Airwaves-hátíð-
in verður haldin að ári liðnu.
ÁRNI PLÚSEINN Hljóm-
sveitin FM Belfast er
undir smásjá erlends
stórfyrirtækis.
ELVIS PRESLEY
Konungur
rokksins var á
mála hjá
William
Morris
Endea-
vor.