Ljósberinn


Ljósberinn - 20.12.1924, Síða 9

Ljósberinn - 20.12.1924, Síða 9
LJÓSBERINN 411 — Það er nú í sjálfu sér góð regla, sagði skip- stjórinn með hálfgerðri hæðni, en þetta er ekki ann- að en læknislyf; þú hefir staðið í ströngu og þarfn- ast hressingar. Yfirleitt var skipstjórinn viðfeldinn og réttsýnn maður; en hann var vanur að láta hlýða sér. Hann roðnaði, augun leiftruðu og með óvenjulegri hörku sagði hann: Eg skipa þér að drekka úr staupinu! Varir drengsins titruðu og röddin skalf, en hann var ákveðinn og sagði stillilega: Skipstjóri, þér lof- uðuð móður minni að hjálpa mér til að vera góður drengur, og eg hét henni og Guði því, að eg skyldi aldrei bragða einn dropa af áfengum drykkjum. Eg er hræddur við að rjúfa heit mitt. Skipstjórinn starði á hann um stund og sagði síð- an með kuldabrosi: Já, en veiztu ekki að það er sitt hvað, að drekka að óþörfu, og að nota læknis- lyf — en sama er mér. öllum á skipinu var það ljóst, að drengurinn var fallinn í ónáð. Skipstjórinn gat ekki gleymt því, að hann hafði ætlað að auðsýna drengnum sérstaka sæmd, og hann hafði hafnað henni. Og svo var hon- um vísað frá eins og seppa. Sama kvöldið skipaði hann drengnum upp í reiða, þó að alllivast væri. Hinum eldri skipverjum þótti nóg um og einn þeirra hvíslaði að honum, að ef hann vildi neita, þá skyldu þeir allir styðja málstað hans. En drengurinn leit aðeins á hann og klifraði upp reiðann eins og köttur. Parþegarnir mögluðu sín í milli; en skipstjórinn hélt áfram að sýna honum van- þóknun.

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.