Ljósberinn


Ljósberinn - 20.12.1924, Síða 48

Ljósberinn - 20.12.1924, Síða 48
450 L J OSBERINN <o£> HÚN ÞORÐI ÞAÐ EG- ætla nú, börnin góð, að segja ykkur dálitla sögu af manninum, sem samdi söguna Robinson Krusoe, sem öll börn hafa yndi af að heyra og lesa. Hún er til á íslenzku sagan hans og ey ætluð íslenzkum börnum. Hann hét Daníei Defoe, þessi liöfundur og var enskur. Honum var sérstaklega lagið að skrifa sög- ur handa börnum. En hann skrifaði fleira. Iiann var vel kristinn mað- ur og hafði því mikla óbeit á öllu siðleysi. Einu sinni ritaði hann bækling, þar sem hann sagði sam- tíðarmönnum sínum rækilega til syndanna. Þeir urðu óðir og uppvægir við hann fyrir þessa bersögli hans og létu taka hann og setja í gapastokk, eins og mjög tíðkaðist á þeim tímum. Hann var látinn sitja í stokkn- um á torgi einu, til þess að hann væri fyrir allra manna sjónum. Þar máttu svo óvinir hans skeyta skapi sínu á honum eftir vild. Pætur hans voru fast- ar í stokknum, svo hann gat ekki hrært sig úr stað. Nú þyrptist fólkið að honum til að sýna honum óvild sína og fyrirlitningu, svo sem með því að kasta að honum skemdum ávöxtum af torginu og með því að hæða hann í orðum og bera honum alt ilt á brýn. Það var eins og enginn þyrði að mæla honum neina bót. Og þó hafði Defoe sagt satt, og vissu það margir.

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.