Ljósberinn


Ljósberinn - 20.12.1924, Side 16

Ljósberinn - 20.12.1924, Side 16
418 LJ ÓSBERINN i<3>> fsr *«&« Y:\ HflNS LITLI OG JOLflSVEINNINN ... V."'. •/*w ÓLASVEINAR hafa nú aldrei verið í háveg- um hafðir hér á landi. Þeir voru synir Grýlu og Leppalúða og lifandi eftirmynd þeirra hjóna, ógeðslegir mjög og sí sníkjandi og stelandi og mein- hrekkjóttir. • En hjá frændum vorum á Norðurlöndum, t. d. í Danmörku/ eru þeir nú á dögum yndi og eftirlæti barnanna, því að þeir eru þar ógn ljúfmannlegir í framgöngu, með snjóhvitt skegg á bringu niður og rauða topphúfu á höfði. Þeir koma ekki til að hræða börn og sníkja, heldur til að gefa. Þeir eru hlaðnir af allskonar jólagjöfum handa börnum. En hvað þau hlakka til að þeir liti inn til þeirra. En þeir heim- sækja ekki öll börn, þessir gjafmildu jólasveinar. Þeir ganga fram hjá. Ekki kemur það þó af því, að þeir vilji ekki beimsækja öll börn, heldur af því að þeir rata ekki til þeirra allra. Því að eins og þið vitið, kæru börn, þá búa mörg börn á svo afskekt- um stöðum, í ömurlegustu skúmaskotum veraldar- innar. Hvar átti Hans litli heima? Iiann átti heima í afarhrörlegu húsi fyrir utan borgarhliðið. Það var sannnefndur grindahjallur. Þangað vöndu menn ekki að jafnaði komur sínar. I húsgarmi þessum bjó göm- ul kona, ósköp geðstirð; hún gat ómögulega gert að gamni sínu og aldrei talað hlýlegt orð.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.