Ljósberinn


Ljósberinn - 20.12.1924, Page 45

Ljósberinn - 20.12.1924, Page 45
447 LJÓSBERINN Yngri förudrengurinn sá nú, að farið var að skifta smápokum milli barnanna. Hvert barn fékk sinn poka. Ó, að pokar væri nú líka til handa honum og þeim bræðrum báðnm! En það getur nú ekki komið til mála. Þeir, sem höfðu ekki einu sinni heimild til að taka nokkurn þátt í þessum fagnaði. Ó, hann gat ekki annað en andvarpað! En hver veit, nema ein- hver „mamma“ hafi' heyrt hjartans andvarpið hans. Víst er það, að litla stúlkan kemur til þeirra bræðra með sinn pokann í hvorri hendi og segir: „Þú átt að fá þennan og þú þennan!u og svo hverfur hún óðara burtu. Eftir hátíðina töluðu þeir bræður lengi, lengi um þessi jól kristinna manna. Og kínverskir menn full- orðnir, sem kristni hafa tekið, eru oft vanir að segja: „A jólunum höfum við ráð á að veita gestum beina. Hver veit, nema einn eða annar minnist fagn- aðarins svo, að strengir hjarta hans titri þangað til að hann vill verða barn hins algóða Guðs og föður allra manna“. Og þeim liefir líka oft orðið að þeirri trú sinni. Jólafögnuðurinn hefir laðað margan heið- ingjann til Gruðs. Guð gefi ykkur gleðileg jól, kæru börn. Börnin í Kína biðja að heilsa ykkur! Kristine Moesbœk.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.