Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 14

Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 14
Stan tim fjntl sém JFt'iðrilis Friörikssannr Þið þekkið öll manninn, sem þessi mynd er af. Mörg ykkar hafið séð hann og öll hafið þið lesið eitthvað fallegt eftir hann. Þessi mynd er af standmynd þeirri, sem reist var af honnm í Reykjavík s.l. vor. Myndin var afhjupuð 25. maí á 87 ára af- mœli hans. Var hún reist fyrir samskotafé aðdáenda hans víðs- vegar um land og gerð af Sigur- jóni Ölafssyni myndhöggvara. Drenginn á myndinni má skoða sem fulltrúa íslenzkrar œsku, allra þeirra, sem notið hafa leið- beiningar og handleiðslu þessa ástsœlasta œskulýðsleiðtoga vors. tala við svertingjana um Fjallræðuna og dæmisögur Jesú eða orð Páls postula um hið nýja líf í Krsti, sagði Schweitzer eitt sinn. í heimsstyrjöldinni fyrri varð Schweitzer að fara heim til Evrópu, en fór aftur til Lambarene árið 1924. Er þangað kom voru öll hús nær ónýt, og varð því að byggja allt upp að nýju. En í þetta sinn kom með honum hópur hjálpar- manna, þar á meðal ungir læknar og hjúkr- unarkonur. Nú reyndist gamla sjúkrahúsið brátt of lítið og árið 1927 var byggt annað stærra, sem rúmaði um 200 sjúklinga í einu. Síðan hefur .starfið verið í sífelldum vexti. Er skort hefur fé til starfsins, hefur Schweitzer oft skroppið til Evrópu, flutt þar fyrirlestra og haldið orgelhljómleika. Fyrir fáum árum var Schweitzer sæmdur friðarverðlaunum Nóbels, en verðlaunaféð notaði hann til að kaupa byggingarefni fyrir, svo að hægt væri að byggja fleiri sjúkrahús i Lambarene. Fjöldi háskóla og annarra menningarstofn- ana um allan heim hafa keppzt við að veita þessum trúa Drottins þjóni sem margvísleg- asta sæmd. Nú er hann áttræður að aldri og heldur enn áfram að þjóna Drottni sínum, sæll og glaður. Hann er hamingjusamur maður, af því að hann hefur lært að lifa Drottni í þjónustu fyrir aðra. -------□------- 122 LJOSBERINN

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.