Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 9

Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 9
ANNA □ LAND er: Jólagjöf Jóns litla •ílli!iiííi!]ítí!!iiii!iíiii«!i!i]i!£jj1! Hann afi var kominn til þess að vera á prestssetrinu um jólahátíðina. Það var langt síðan hann hafði verið þar, því að amma, konan hans, var búin að vera veik langa lengi, svo að hann gat aldrei farið frá henni. En nú var hún horfin til Guðs í himininn, og nú var afi kominn til þess að vera hjá dóttur sinni og tengdasyni um jólin. Steini, elzti sonur prestsins, mundi samt vel eftir afa og hversu ráðsnjall og góður hann var. Enginn var honum jafnsnjall, nema pabbi og mamma auðvitað! Steini minntist þess sér- staklega, þegar tromman hans datt í sund- ur og hann var ekki mönnum sinnandi vegna þess óhapps, en mamma hans varð samt sár- fegin, vegna þess að henni varð æfinlega illt í höfðinu af öllum hávaðanum í trommunni. Steina þótti að vísu illt að mamma skyldi fá höfuðverk af þessu, því að hún var alltaf góð og ástúðleg, en hvað sem því leið, var það sára sorglegt að tromman skyldi fara svona. Hún var svo ljómandi falleg og litskrúðug, og það heyrðist í henni langar leiðir, jafnvel alla leið til húss hringjarans. Þegar þetta bar við, hittist svo á að afi var þar staddur. Hann hafði þá tekið Steina litla á hné sér og rætt við hann alllengi og sagt honum meðal annars, að hann skyldi fá ann- að leikfang í staðinn, sem mömmu yrði ekki til óþæginda. Auk þess sagði afi honum, að litlir drengir ættu að venja sig á að hugsa um aðra og taka tillit til þeirra en hugsa ekki ein- göngu um sjálfa sig og sína eigin ánægju. Frá þeirri stundu þótti Steina enn vænna um afa og ömmu en áður. Þegar svo afi gaf honum bát með rá og reiða, sem hann gat látið sigla á bæjarlækn- um úti og í þvottabalanum inni, var hann reglulega ánægður yfir því, að mamfna þyrfti ekki að fá höfuðverk lenguf hans vegna. En nú var Steini ekkert barn lengur, fullra þrettán ára! Næst honum komu þau Gunn- hildur, Svenni óg Eiríkur, og yngstur var Jón litli, aðeins sex ára, enda ekki byrjaður á að læra að lesa. Hann var lítill og fremur veik- byggður líkamlega. Systkinin stóðu öll úti á dyraþrepunum, þegar afi kom og Jón litli að baki hinna. Hann var hálffeiminn við afa, en það leið samt ekki á löngu þar til þeir urðu mestu mátar. Þegar setið var að morgunverði daginn eft- ir, sagði afi við systkinin, að þau skyldu öll koma inn til hans um hádegið og ræða við hann um það, hvað þau langaði mést til að fá i jólagjöf frá honum. En það yrðu auðvitað að vera viðráðanlegir og' fáanlegif hlutir. Áskildi hann sér því rétt til að samþykkja eða synja óskum þeirra eftir því, sem á stæði. Þið getið svo sem getið nærri, að þetta vakti engan smáræðis fögnuð hjá börnunum. Þau höfðu nærri því þriggja stunda umhugsunarfrest og héldu sig í barnaherberg- inu og báru þar ráð sín saman af hinum mesta áhuga. Steina langaði mest til að kjósa sér reiðhest, en Dóra gamla, fóstra þeirra, full- vissaði hann um að afi hefði ekki efni á að gefa svo ríkmannlegar g'jafir. Hann varð því að finna eitthvað annað, en það ætlaði að reynast honum öruðgt viðfangsefni, því að óskirnar voru óteljandi. Þó fór svo að lokum, að þeim fannst tíminn allt of lengi að líða, þarna uppi í barnaherberginu, nema Jóni litla. Hann sat við borðið hinn rólegasti og skoðaði biblíumyndir. Loksins opnaði afi dyrnar og langþráða stundin var komin. Steini hafði ákveðið, eftir mikil heilabrot, að óska sér nýútkominnar drengjabókar. Afi vissi að það var góð bók og hét að gefa honúm hana. Svo kom röðin að Gunnhildi. Hana hafði lengi langað til að eignast nýja handtösku, en pabbi og mamma höfðu í svo rnörg horn að líta, hvað útgjöld snerti, að hún varð áð sætta sig við gömlu vaxdúkstöskuna sína til þessa. Nú hét afi að uppfylla 'ósk hennar. - Svenni var órabelgur fjölskyldunnar. Hon- LJÓSBERINN 117

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.