Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 30

Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 30
— Þú verður að koma með mér, Vang Lí. Við verðum að slátra svíninu. Þeir urðu þá að sjá af svíninu líka! Vang Lí fannst ógæfa þeirra svo mikil, að hann fyrirvarð sig ekki fyrir tár sín. Nú mátti hver sem vildi sjá, að hann grét. En þegar faðir hans hafði sagt honum og unga trúboð- anum, Mong, hvernig komið var, skildi Vang Lí full vel, að svo mikil hætta vofði yfir þeim, að það voru ekki nema smámunir, þó að þeir létu af hendi naut og svín. — Þú hefðir átt að leita ráða hjá Ljó presti, sagði Mong trúboði. — Hvar er hann? Er hann farinn? — Það er langt síðan hann fór. Þú hefur ekki rekist á hann í borginni? Var hann ekki á kristniboðsstöðinni? Fú Benn varð hugsi. — Þangað kom ég ekki. Ég heyrði hring- ingu þar og sá stórt, útlent hús og annað hús með turni. En ég þorði ekki að fara þangað. Ekki hafði ég hugmynd um, að gamli trúboðinn, Ljó prestur, væri þar. — Hann er hvergi annars staðar. Hann bíður þín þar. Til þess fór hann til borgarinn- ar að reyna, ef mögulegt væri að hjálpa þér. — Hann hafði með sér bláa demantinn, sagði Vang Lí. — Gerði hann það? Var á það hættandi? Hætt er við, að demantinum hafi verið rænt frá honum á leiðinni. Það varð nú þeirra mesta áhyggjuefni, hvernig Ljó mundi hafa reitt af. Ekkert var líklegra en, að hann hefði lent í höndum ræningja á leiðinni yfir fjallið. Þeim fannst það svo sennilegt, að nálgaðist vissu. Ræn- ingjarnir höfðu auðvitað tekið frá honum alla peninga og bláa demantinn. Og ekki ólíklegt, að þeir hafi barið hann til óbóta og hrundið honum síðan út fyrir þverhnípi. Hann mundi hafa leitað Fú Benn uppi, et hann hefði komist heilu og höldnu til borg- arinnar. — Við því er ekkert að gei-a, sagði Fú Benn. Ég athuga, hvort hann hefur komið til kristniboðsstöðvarinnar, strax og ég kem til borgafinnar. En nú verðum við að slátra svíninu. Ég verð að hafa með mér eins mikið af peningum og ég mögulega get, sagði rétt- arritarinn mér. XIII. KLUKKURNAR KALLA Góða konan á gistihúsinu heilsaði Fú Benn brosandi, þegar hann kom aftur: — Friður sé með þér, hvernig líður þér? — Þakka þér fyrir, vel, svaraði Fú Benn. Þú segir „friður sé með þér“, eins og Ljó prestur, í stað okkar venjulegu kveðju, „hef- urðu borðað?“ — Þekkir þú Ljó prest? spurði konan og virtist vera mjög undrandi. — Hann hefur dvalið hjá mér í marga daga og frætt mig um kenninguna. En hann. er farinn, og hefi ég ekki hugmynd um, hvað um hann er orðið. — Ljó prestur er hér á kristniboðsstöðinni. Þú ættir að heilsa upp á hann. Þú ættir að gera það á morgun, þá er sunnudagur. Þú sérð þá um leið tilbeiðslusiði kristinna manna. Ég get farið með þér. — Trúir þú kenningunni? — Ég hefi verið kristin í mörg ár. Ég fer til kirkju á hverju föstudagskvöldi og á sunnudögum fyrir hádegi. Ljó prestur kemur oft hingað. En hann hefur verið veikur. — Er hann veikur? — Honum er að batna. En hann var veikur og hafði hita, þegar hann kom úr síðustu trú- boðsferðinni. Hann hafði þá verið í dalnum fyrir austan fjall. — Þar á ég heima. — Það þykir mér vera fréttir. Þú verður að segja mér nánar frá því. Fú Benn var dauðþreyttur eftir ferðalagið, en fór þó um k.völdið til gamla réttarritarans. — Þú ert seint á ferð, sagði ritarinn. — Ég kem með peningana. Ég hélt að lægi á því. — Já, víst er um það. Dómarinn er óþolin- móður, og Lá eldra er farið að leiðast biðin. Hefði ég ekki talað við dómarann, væri hann þegar búinn að kveða upp dóminn, og þá hefði farið illa fyrir þér. — Ég er í mikilli þakkarskuld við þig og mun ekki gleyma því. Fú Benn rabbaði lengi við ritarann og sagði honum ýmislegt um hagi sveitunga sinna, en gætti sín að vera ekki um of bér- orður. Ritarinn var skynsamur maður og gat fyllt í eyðurnar. 138 LJÓSBER l.N N

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.