Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 12
pmgsefmmj(irr»r)íi
Vigfúsar Sigurðmnar
jorseta Landssambands iðnaðarmanna.
Hæstvirtur iðnaðarmálaráðherra,
háttvirtir iðnþingsmenn,
virðulegir gestir.
Ég leyfi mér að bjóða yður öll hjartanlega velkomin
til setningar 29. Iðnþings Islendinga, sem haldið verður
hér í Reykjavík dagana 27. til 30. þessa mánaðar.
Þá iðnþingmenn, sem mæta nú í fyrsta sinn á iðn-
þingi, býð ég sérstaklega velkomna og vona, að þeir
finni sér verkefni við hlið eldri þingmanna og samein-
ist þcim í að leysa þau mál, sem fyrir iðnþingi liggja.
Frá því að síðasta iðnþing var haldið hefur enn ver-
ið höggvið skarð í raðir þeirra, sem setið hafa á iðn-
þingum. Þorsteinn Daníelsson, skipasmíðameistari, lézt
hinn 21. ágúst s.l., 64 ára að aldri. Hann var fæddur 18.
apríl 1903, sonur hins þekkta skipasmíðameistara Dan-
els heitins Þorsteinssonar og konu hans, Guðrúnar
Egilsdóttur.
Þorsteinn lærði skipasmíði hjá föður sínum og
stundaði þá iðn ætíð síðan og eftir lát föður síns stjórn-
aði hann ásamt öðrum fyrirtækinu Daníel Þorsteinsson
& Co. af miklum dugnaði og fyrirhyggju. Hann var
frábær fagmaður og eftirsóttur af þeim, sem viðskipti
höfðu við hann. Hann kenndi skipasmíðanemum
teikningu í Iðnskólanum hér í Reykjavík, hafði hann
mikla ánægju af því starfi. Hann var virtur og vel met-
inn af samstarfsmönnum og stéttarbræðrum og starfaði
mikið fyrir þeirra hönd. Hann var einn af stofnendum
Félags íslenzkra dráttarbrautareigenda og ávallt í stjórn
þess félags, hann átti sæti á Iðnþingum fyrir félagið og
sat síðasta Iðnþing.
Ég vil biðja viðstadda að votta hinum látna virðingu
sína með því að rísa úr sæti.
Þann 10. marz s.l. varð stórbruni hér í Reykjavík.
Eldur varð laus í húsinu Lækjargötu 12, eldurinn læsti
sig á örskammri stundu í næstu hús, svo ekki varð við
ráðið, þar á meðal í Iðnaðarbankabygginguna. Þrjú
hús brunnu alveg og allt sem brunnið gat á fjórum
hæðum Iðnaðarbankahússins, þar á meðal húsnæði
Landssambands iðnaðarmanna á fjórðu hæð. Brann
þar allt innbú Landssambandsins, skjöl og bækur, m.a.
fundargerðarbækur allar. Er þetta vissulega mikið
tjón fyrir Landssambandið bæði fjárhagslega, en þó
Vigfús
Sigurdsson.
fyrst og fremst missir dýrmætra og sögulegra gagna,
sem sambandið átti.
Tjón þetta verður aldrei bætt að fullu, en unnið er
að öflun ýmissra gagna, sem fyrir finnast ef takast
mætti að bæta tjónið að nokkru.
Ég vil við þetta tækifæri þakka öllum þeim aðilum,
innan Landssambandsins og utan, sem á einn eða ann-
an hátt komu Landssambandinu til aðstoðar eftir brun-
ann, með því að láta í té margvísleg gögn, sem glöt-
uðust, og á ýmsan annan hátt. Sérstaklega vil ég færa
Meistarasambandi byggingamanna þakkir fyrir að hafa
skotið skjólshúsi yfir skrifstofu Landssambandsins og
Málarameistarafélagi Reykjavíkur fyrir afnot af fund-
arherbergi, en Landssambandinu hefur verið sköpuð
ágæt aðstaða hjá þessum samtökum á meðan endur-
bygging Iðnaðarbankahússins fer fram.
Á því tímabili, sem liðið er frá síðasta Iðnþingi
hafa vissulega orðið mikil umskipti, til hins verra í at-
vinnumálum landsmanna. 1 staðinn fyrir mikla aukn-
ingu þjóðartekna undanfarin ár, er nú talið að um
verulegan samdrátt sé að ræða á þessu ári.
Fyrir ári síðan var að vísu orðið nokkuð verðfall á
útflutningsafurðum, en sjávarafli var meiri en nokkurn
tíma áður og ekki farið að gæta að ráði afleiðinganna
af verðfallinu.
Verðlag hækkaði mjög innanlands og um leið allur
framleiðslukostnaður en um haustið voru sett á lög
um verðstöðvun til að mæta að nokkru ískyggilegu
útliti, á þessu ári hefur svo bæzt við aflatregða bæði á
vetrarvertíð og á síldveiðunum í sumar. Afleiðingarnar
eru ekki fyllilega enn séðar og þau ráð ekki kunn, sem
notuð verða til að mæta þeim.
Þessir erfiðleikar hafa vissulega ekki farið framhjá
116
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA