Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 15
Iðnaðarmálaráðherra d Iðnþingi:
Reynt verður að skapa verkefni
fyrir skipasmiðastöðvarnar
Við setningu 29. Iðnþings Islendinga flutti iðnaðar-
málaráðherra ræðu og ræddi þar bæði efnahagsmálin
almennt og ýmsa þætti iðnaðarmála. I upphafi ræðu
sinnar ræddi Jóhann Hafstein um vandamál atvinnu-
lífsins í heild og þær ráðstafanir til lausnar, sem ríkis-
stjórnin hefði unnið að um sumarið. Kvað hann, að
ríkisstjórnin mundi leggja áherzlu á áframhaldandi
verðstöðvun, og væri það veigamikið atriði, ef tækist
að halda áfram svipaðri verðstöðvun og verið hefði,
a. m. k. miðað við óbreyttar aðstæður á næsta ári.
Ráðherrann lýsti því yfir, að ríkisstjórnin hefði þegar
tilbúnar tillögur um aðgerðir í efnahagsmálum og
vegna fjárlaganna, og yrðu þessar tillögur lagðar fyrir
Alþingi strax og það kæmi saman í byrjun október-
mánaðar. Hann sagði, að það mundi verða þeim mun
þýðingarmeira fyrir íslenzkan iðnað, ef takast mætti
að halda verðlagi hér stöðugu áfram, að á verðstöðv-
unartímabilinu hefði verðlag í nágrannalöndum okkar
farið mjög hækkandi og alveg sérstaklega í Danmörku.
Ef þessar verðhækkanir halda áfram í nágranna-
löndum okkar og viðskiptalöndum en okkur tekst að
halda verðstöðvun um tveggja ára skeið, yrði aðstaða
íslenzks iðnaðar allt önnur og betri í samkeppni við
erlendan innflutning.
Ráðherrann kvaðst vel skilja hina miklu erfiðleika,
sem iðnaðurinn ætti við að stríða, en sömu sögu væri
að segja um alla aðra atvinnuvegi í landinu. Væri
ríkisstjórnin full áhuga á því að styrkja iðnaðinn og
gera hann samkeppnishæfan og minntist hann m. a. á
eflingu iðnlánasjóðs til dæmis um þetta og stofnun
nýrra lánaflokka við sjóðinn og útvegun fjár til útlána.
Hvað innflutning erlendra iðnaðarvara snerti, sagði
ráðherrann, að íslenzkt þjóðfélag ekki mundu una því,
að hann verði skertur, heldur bæri að efla íslenzka
iðnaðinn á annan hátt.
Þá ræddi ráðherrann helztu mál varðandi iðnaðinn í
framtíðinni. Skýrði hann frá ýmsum skipulagsbreyt-
ingum í iðnaðarmálaráðuneytinu, sem miðuðu að efl-
ingu þess, og minnti á stofnun iðnþróunarráðs, sem
ætti að vera ráðuneytinu til styrktar um meðferð ým-
issa mála. Þá ræddi hann um mikilvægi stóriðju og
þau áhrif, sem hún gæti haft, og benti á, að við hlið
hennar mundi þróast margs konar viðgerðar- og þjón-
ustuiðnaður. Starfsemi kísilgúrverksmiðjunnar mundi
hefjast í október-mánuði og rannsóknir með sjóefna-
vinnslu væru langt á veg komnar.
I lok ræðu sinnar rakti iðnaðarmálaráðherra nokkrar
þær ráðstafanir, sem ríkisstjórnin hefði gert til þess
að tryggja iðnaðinum verkefni. Árið 1964 hefði iðnað-
armálaráðuneytið beitt sér fyrir rannsókn á þörf fyrir
stórar dráttarbrautir á komandi árum vegna viðgerðar-
þjónustu og fyrir nýsmíði skipa hér á landi. Hefði síðan
verið unnið eftir áætlun um þessi mál og ríkisstjórnin
beitt sér fyrir árlegri fjáröflun til þess að byggja upp
þessa nýju atvinnugrein. Væri nú svo komið, að inn-
lendar skipasmiðjur ættu að verulegu leyti að geta
annað endurnýjunarþörf fiskiskipaflotans og enn væru
miklir stækkunarmöguleikar fyrir hendi. Á s.l. sumri
hefðu skipasmíðastöðvarnar snúið sér til ráðuneytisins
vegna áhyggna um verkefnaskort. Ríkisstjórnin hefði
rætt málið og samþykkt að reyna að stuðla að því að
skapa verkefni fyrir skipasmíðastöðvarnar með öðrum
hætti en verið hefur. Hcfði verið skipuð nefnd til þess
að kanna hverjar væru hentugustu gerðir íslenzkra
fiskiskipa við núverandi aðstæður, og hefur nefndin
verið að störfum nú í sumar. Ætlunin væri, þegar
þessar skipagerðir eru fundnar, að hjálpa skipasmíða-
stöðvunum til að hefja smíði á skipum af þessum
gerðum án þess að kaupendur væru fyrir hendi við
upphaf smíðanna. Þá sagði ráðherrann, að líkur bentu
til þess, að fá mætti stórt verkefni fyrir slippstöðina á
Akureyri, ef hið opinbera gæti stuðlað að öllu meiri
fjáröflun en verið hefur til þessa, t. d. 85% lán í stað
75% eins og nú er. Ef að þessu yrði fengi skipasmíða-
stöðin á Akureyri verðugt viðfangsefni, sem ætti að
nægja henni næsta ár. Ennfremur væri í athugun að
láta smíða strandferðaskip hér innanlands, ef til vill
skuttogara og loks minntist ráðherrann á ráðstafanir
Framhald á bls. 154.
119
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA