Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Qupperneq 16
29. Iðnþing Islendinga
29. Iðnþing Islendinga var sett á Hótel Sögu mið-
vikudaginn 27. september 1967 kl. 14.30. Forseti Lands-
sambands iðnaðarmanna, Vigfús Sigurðsson, setti þing-
ið með ræðu. í upphafi máls síns minntist hann látins
iðnþingsfulltrúa, Þorsteins Daníelssonar, skipasmíða-
meistara, og vottuðu viðstaddir hinum látna virðingu
sína með því að rísa úr sætum. Ræða Vigfúsar Sig-
urðssonar er birt í heild á öðrum stað hér í tímaritinu.
Að lokinni þingsetningarræðu Vigfúsar flutti iðn-
aðarmálaráðherra, Jóhann Hafstein, ræðu og er nánar
skýrt frá ræðu hans á öðrum stað hér í tímaritinu.
Er iðnaðarmálaráðherra hafði lokið ræðu sinni, var
kosin kjörbréfanefnd, en í henni áttu sæti þeir Þórir
Jónsson, Ásgrímur P. Lúðvígsson, Sigurjón Einarsson,
Sigursteinn Hersveinsson og Guðmann Hjálmarsson.
Fundi var síðan frestað en Landssamband iðnaðar-
manna bauð gestum og iðnþingsfulltrúum til kaffi-
drykkju á Hótel Sögu.
Fundi var fram haldið í fundarsal í húsi meistara-
félaganna að Skipholti 70, kl. 16.00. Forseti Landssam-
bandsins setti fundinn og síðan mælti Þórir Jónsson
fyrir áliti kjörbréfanefndar. Höfðu borizt 93 kjörbréf
og var nefndin sammála um að leggja til, að þau yrðu
öll samþykkt.
Þá var kjörin forseti þingsins og kom fram tillaga
um Gissur Sigurðsson, húsasmíðameistara, formann
Meistarafélags húsasmiða í Reykjavík, og var hann
sjálfkjörinn, og tók þegar við fundarstjórn. Síðan voru
kjörnir aðrir starfsmenn iðnþingsins og þingnefndir og
fóru þær kosningar þannig:
Fyrsti varaforseti: Guðni Magnússon, Keflavík.
Annar varaforseti: Garðar Björnsson, Hellu.
Ritarar: Haraldur Þórðarson, Reykjavík og Gísli
Engilbertsson, Vestmannaeyjum.
Kjörneínd.
Gísli Ólafsson, R.
Sigurður Árnason, Hf.
Grímur Bjarnason, R.
Eggert Ólafsson, Vestmannaeyjum.
Guðni Magnússon, Keflavík.
Leifur Halldórsson, R.
Guðmundur Jónsson, Selfossi.
Löggjafarnefnd.
Sigurður Kristinsson, Hf.
Bergmundur Stígsson, Akranesi.
Karl Maack, R.
Kristján Jóhannesson, R.
Ólafur Pálsson, Hf.
Allsherjarnefnd.
Ingólfur Finnbogason, R.
Árni Brynjólfsson, R.
Gísli Engilbertsson, Vestmannaeyjum.
Guðmundur B. Jónsson, Keflavík.
Örn Símonarson, Borgarnesi.
Kjörbréfanefnd.
Þórir Jónsson, R.
Ásgrímur P. Lúðvígsson, R.
Knútur Berndsen, Blönduósi.
Sigurjón Einarsson, Hf.
Sigursteinn Hersveinsson, R.
Fjármálanefnd.
Tómas Vigfússon, R.
Bjarni Einarson, Ytri-Njarðvík.
Bragi Hannesson, R.
Gissur Símonarson, R.
Gunnar Björnsson, R.
Ingvar Jóhannsson, Ytri-Njarðvík.
Þorgeir Jósefsson, Akranesi.
Skipulagsnefnd.
Vigfús Sigurðsson, Hf.
Bjarni Björnsson, Hf.
Eysteinn Leifsson, R.
Guðmundur Jónsson, Flateyri.
Jóhannes Kristjánsson, Akureyri.
IðnfræSslunefnd.
Jón E. Ágústsson, R.
Jón Sigurgeirsson, Akureyri.
Lýður Brynjólfsson, Vestmannaeyjum.
Magnús Baldvinsson, R.
Óskar Hallgrímsson, R.
Sigurgeir Guðmundsson, Hf.
Þór Sandholt, R.
Að loknum nefndarkosningum voru tekin fyrir mál
á málaskrá iðnþingsins. Þar sem skammur tími var til
fundarhalds á þessum fyrsta fundi, var flutningi skýrslu
stjórnar Landssambandsins frestað til næsta fundar og
tekið fyrir 2. málið á málaskránni, reikningar Lands-
sambands iðnaðarmanna fyrir árið 1966. Otto Schopka,
framkvæmdastjóri Landssambandsins, las reikninginn
120
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA