Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Síða 19

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Síða 19
Vigfús Sigurðsson hafði framsögu fyrir áliti milliþinga- nefndar um skipulagsmál Landssambandsins, en milli- þinganefndin hafði gert tillögur um nokkrar breytingar á lögum Landssambandsins. Skýrði Vigfús frá því hverjar væru helztu breytingarnar og gerði grein fyrir þýðingu þeirra. Hann þakkaði nefndarmönnum í milli- þinganefndinni, stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra fyrir gott samstarf um þetta mál og kvaðst vona, að ef lagabreytingarnar væru samþykktar, yrði það Lands- sambandinu til heilla. Gísli Ólafsson tók til máls og þakkaði framkvæmda- stjóra greinagóða skýrslu um ferðalag hans til iðn- sambandanna á Norðurlöndum, en skýrslunni hafði verið dreift til þingfulltrúa. (Skýrslan var birt í síðasta hefti Tímarits iðnaðarmanna). Hann taldi skoðanir milliþinganefndarinnar samræmast sínum eigin skoð- unum um þessi mál að miklu leyti en þó bæri sumt á milli. T. d. taldi hann, að iðnfyrirtæki ættu ekki að eiga beina aðild að Landssambandinu, nefskattsfyrir- komulagið taldi hann ófært en sambandið yrði að fá hluta af því fé, sem iðnaðarmenn greiddu til iðnlána- sjóðs og loks lagði hann til, að iðnþing yrði haldið annað hvert ár. Þór Sandholt ræddi um nauðsyn þess, að náin tengsl héldust milli Landssambandsins og iðnskólanna, og taldi hvorki tímabært né æskilegt að rjúfa tengsl iðnskólanna við iðnþingin. Hann kvaðst álíta, að hin nýju iðnfræðslulög væru fyrst og fremst tilkomin vegna ályktana iðnþinga um þessi mál og starfs Landssam- bandsins að þeim og væri eðlilegast, að iðnskólarnir hefðu fulltrúa á iðnþingum áfram á meðan lögin væru að komast í framkvæmd, en það tæki óhjákvæmilega nokkurn tíma. Sigurður Kristinsson benti á, að með tillögum milli- þinganefndarinnar væri verið að skerða nokkuð hlut sumra stofnfélaga Landssambandsins, þar sem þau mundu ekki hafa beina aðild að Landssambandinu og iðnþingum. Hann benti einnig á, að misræmi mundi skapast, þar sem einstök iðnfyrirtæki gætu sent full- trúa á iðnþing. Jón E. Ágústsson taldi ekki rétt að fella niður á- kvæði 23. greinar laga Landssambandsins eins og milli- þinganefndinni hafði lagt til, en vildi að hún yrði lagfærð og látin standa áfram í lögunum. Hann tók undir með Þór Sandholt, að ekki væri tímabært að rjúfa tengsl iðnskólanna við iðnþingið. Ennfremur ræddi hann um reglur um atkvæðisrétt og atkvæða- magn á iðnþingum og lagði til, að þeim yrði breytt á þann veg, að atkvæðamagn sambandsfélaganna færi eftir greiðslum þeirra til Landssambandsins eða félaga- fjölda. Bjarni Einarsson sagði, að iðnþingin ættu að vera þverskurður af iðnaðinum í landinu á hverjum tíma og því ætti hver iðngrein að hafa þar fulltrúa. Hann ræddi um ástæður þess, að sveinafélögin sögðu sig úr Landssambandinu og taldi líklegt, að þau myndu fást til þess að ganga í Landssambandið aftur, ef nefskatts- fyrirkomulaginu yrði breytt. Ennfremur ræddi hann nokkuð um starfsemi iðnaðarmannafélaganna úti á landi. Að lokum taldi hann það mikilsvert atriði fyrir þróun iðnaðarins, að hver starfsgrein gerði sér grein fyrir stöðu sinni í efnahagslífinu, því að frá þeim ætti frumkvæðið um áframhaldandi uppbyggingu að koma. Guðni Magnússon kvaðst harma, að tillögur milli- þinganefndarinnar höfðu ekki verið sendar til sam- bandsfélaganna til kynningar fyrir iðnþingið. Hann Ingólfur Fitmbogason, Reykjavlk. Bjarni Einarsson, Ytri-Njarðvík. Gísli Ólafsson, Reykjavík. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 123

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.