Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Qupperneq 20

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Qupperneq 20
taldi, að fyrrverandi stjórnarmeðlimir ættu að vera kjörgengir á iðnþingum, enda þótt þeir væru ekki kjörnir fulltrúar einstakra sambandsfélaga. Ingvar Jóhannsson kvaðst vera tillögunni samþykk- ur í heild, en þó bæri hann nokkurn kvíðboga fyrir þeirri fækkun fulltrúa sérfélaga, sem væru deildir í iðnaðarmannafélögum, sem tillögurnar hefðu í för með sér. Árni Brynjólfsson þakkaði milliþinganefndinni fyrir vel unnin störf og taldi að flestar tillögur hennar væru til bóta. Þó minntist hann á nokkur atriði, sem breyta mætti til bóta, s. s. að heimila fulltrúum frá iðnskólun- um áfram setu á iðnþingum. Vigfús Sigurðsson tók að lokum til máls og sagði, að það ætti ekki að vera erfitt verkefni fyrir þá þing- nefnd, sem fengi tillögurnar til meðferðar, að samræma þau sjónarmið, sem fram hefðu komið í umræðunum. Hann vakti einnig athygli á því, að þingið gæti ákvarð- að hvort afgreiða ætti tillögur milliþinganefndarinnar endanlega á þessu iðnþingi, eða kynna þær fyrir sam- bandsfélögunum til næsta iðnþings og taka þær þá til endanlegrar afgreiðslu. Að loknum umræðum um þetta mál var gert matar- hlé. Fundur hófst aftur kl. 2 síðdegis og hafði þá Jón E. Ágústsson framsögu fyrir 8. máli á málaskránni, fræðslumálum iðnaðarmanna. Hann skýrði frá því, að iðnfræðsluráð hefði nýlega lokið við að semja reglu- gerð skv. hinum nýju iðnfræðslulögum og gerði hann síðan grein fyrir helztu nýmælum reglugerðarinnar. Þá skýrði hann einnig frá því að iðnfræðsluráð hefði gengið frá tillögum til menntamálaráðherra um skóla- setur iðnskólanna, umdæmi hvers skóla og loks áætlun um fjármagnsþörf ríkissjóðs vegna nýbygginga fyrir iðnskóla. Þór Sandholt ræddi um aukið verknám í iðnskólun- um og skýrði nánar frá þeim aðgerðum að taka tvær deildir Landssmiðjunnar undir verknámsskóla, eins og fram hafði komið í ræðu iðnaðarmálaráðherra við þingsetninguna. Hann sagði, að leggja yrði áherzlu á, að höfuðskilyrði fyrir því, að hin nýja iðnfræðslulög- gjöf kæmist í framkvæmd, væri að nægilegt fjármagn yrði tryggt. Ekki tóku fleiri til máls og var málinu vísað til iðnfræðslunefndar. Þá var tekið fyrir 7. málið á málaskrá iðnþingsins, fjármál iðnaðarins, og hafði Tómas Vigfússon fram- sögu í því máli. Hann ræddi um aukningu Iðnlána- sjóðs, betri starfsskilyrði fyrir Iðnaðarbankann og rekstur útibúa bankans. Ennfremur ræddi hann um aukinn reksturskostnað Landssambandsins og tók und- ir þá hugmynd, sem fram hafði komið í ræðu hjá for- seta, að samtök iðnaðarins fengju hluta af iðnlána- sjóðsgjaldinu til starfsemi sinnar. Frekari umræður urðu ekki um málið og var því vísað til fjármálanefndar. Þá var gert kaffihlé og bauð Meistarafélag húsa- smiða í Reykjavík iðnþingsfulltrúum til kaffi- drykkju. Að loknu kaffihléi kynnti þingforseti fyrir þingfull- trúum iðnþingsins, Svein Ásgeirsson, formann Neyt- endasamtakanna, sem kominn var til þess að flytja erindi á þinginu. Erindi hans er birt í heild á öðrum stað hér í tímaritinu. Var erindinu vel tekið og báru þeir Ingvar Jóhannsson og Jón E. Ágústsson fram fyrirspurnir til ræðumanns og Karl Maack skýrði frá Otto Scbopka, Reykjavik. Þór Sandholt, Reykjavik. Sigitrður Kristinsson, Hafnarfirði. 124 TfMARIT IÐNAÐARMANNA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.