Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 21

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 21
Jón E. Ágústsson, Reykjavík. 1/igvar Jóhannsson, Ytri-Njarðvík. Tó/nas Vigjússon, Reykjavík. samstarfi húsgagnameistara og Neytendasamtakanna vegna ábyrgðarmerkingar á húsgögnum. Eftir að Sveinn Ásgeirsson hafði lokið flutningi erindis síns og svarað fyrirspurnum, fór fram kynning iðnþingsfulltrúa með venjulegum hætti. Grímur Bjarnason hafði framsögu um 6. mál, trygg- ingarfélag iðnaðarmanna. Hann skýrði frá því, að milliþinganefndin hefði leitað eftir samstarfi við starfandi tryggingarfélag, en þær umleitanir hefðu þó farið út um þúfur, og hefði nefndin því reynt að leita fyrir sér víðar. Hann kvaðst álíta það afar mikils virði að komast í samstarf við starfandi félag, því að þau hefðu þjálfað starfslið, reynslu og fjármagn. Garðar Björnsson kvaðst ekki álíta, að byggja ætti á samstarfi við önnur tryggingarfélög, heldur væri það skoðun sín, að innan raða iðnaðarmanna og iðnrek- enda væri nógu sterk samstaða til þess að hægt væri að starfrækja eigið tryggingarfélag þessara aðila af eigin rammleik. Fleiri tóku ekki til máls og var málinu vísað til alls- herjarnefndar. Otto Schopka hafði framsögu um 10. mál, útgáfu- og kynningarstarfsemi Landssambandsins. Taldi hann að Tímarit iðnaðarmanna kæmi of sjaldan út til þess að geta verið nægilega virkur tengiliður milli meðlima sambandsfélaganna og stjórnar og skrifstofu Lands- sambandsins. Lagði hann til, að útgáfustarfsemi Lands- sambandsins yrði breytt í það horf, að gefið yrði út fréttablað, sem kæmi út miklu oftar en tímaritið, og yrði aðeins 4-8 síður að stærð, en Tímaritið yrði gert að ársriti og vandað til þess á allan hátt. Talsverðar umræður urðu um þessar hugmyndir. Guðmundur Björgvin Jónsson taldi, að það væri of lítið að láta tímaritið koma út aðeins einu sinni á ári en vildi, að það yrði gefið út oftar en nú er gert og haft þá heldur minna hverju sinni. Guðni Magnússon kvaðst vera andvígur hugmyndum framkvæmdastjór- ans og væri hann ánægður með tímaritið eins og það væri nú. Sigursteinn Hersveinsson kvaðst fylgjandi út- gáfu fréttablaðs og lýsti sig samþykkan tillögum rit- stjóra tímaritsins. Bragi Hannesson benti á, að gerð hefði verið tilraun til þess að hafa tímaritið minna og koma því út oftar, en reynslan hefði sýnt, að það var ekki vinsælt. Hann taldi að tímaritið í núverandi formi væri Landssambandinu til sóma og þannig ætti að gefa það út framvegis. Eyþór Þórðarson kvaðst telja það hagkvæmara, að gefa tímaritið oftar út og hafa það heldur minna en nú er, og birta í því ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir iðnaðarmenn, t. d. kaup- taxta. Guðmundur Jónsson tók undir þau ummæli, að tímaritið væri nú Landssambandinu til sóma, en þó mundi hann sætta sig við þá breytingu, sem ritstjórinn hafði lagt til, ef hún yrði talin hagkvæmari. Að loknum umræðum var málinu vísað til allsherj- arnefndar. Þá skýrði forseti frá því, að nefndir ættu að starfa um kvöldið, en málaskráin var nú tæmd. Þá upplýsti hann, að þrír fulltrúar í skipulagsnefnd hefðu ekki komið til þingsins eða gætu ekki af öðrum orsökum tekið þátt í störfum nefndarinnar, þeir Bjarni Björns- son, Hafnarfirði, Guðmundur Jónsson, Flateyri og Jó- hannes Kristjánsson, Akureyri. Hefði komið fram til- laga um að í þeirra stað yrðu kjörnir í nefndina þeir Jón Guðmundsson, Hafnarfirði, Magnús Konráðsson, Flateyri og Guðmann Hjálmarsson, Blönduósi. Var það samþykkt samhljóða og sleit síðan þingforseti fundi. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 125

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.