Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 23
Árni Brynjólfsson, Reykjavík.
Sigursteinn Hersveinsson, Reykjavík.
Bragi Hannesson, Reykjavik.
Föstudaginn 29. september kl. 10.30 setti þingforseti
fund að nýju.
Tekið var fyrir álit allsherjarnefndar um tryggingar-
mál iðnaðarins og hafði Guðmundur Björgvin Jónsson
framsögu. Hann ræddi nokkuð um störf milliþinga-
nefndar þeirrar, sem unnið hafði að málinu, og gagn-
rýndi, að iðnaðarmenn hefðu verið hvattir til þess að
flytja tryggingar sínar til annars félags, áður en endan-
lega hafði verið gengið frá samstarfssamningi við það.
Las hann síðan og skýrði tillögu allsherjarnefndar, en
nefndin lagði til, að milliþinganefndinni yrði falið að
starfa áfram og leita samstarfs við önnur félög um
starfrækslu tryggingarfélags. Nokkrar umræður urðu
um málið, og tóku þeir Ingólfur Finnbogason, Grímur
Bjarnason, Eyþór Þórðarson og Bragi Hannesson til
máls og voru fylgjandi áliti allsherjarnefndar. Svöruðu
þeir Ingólfur og Grímur gagnrýni þeirri, sem kornið
hafði fram í ræðu Guðmundar Björgvins Jónssonar.
Að þessum umræðum loknum var tillaga allsherjar-
nefndar samþykkt samhljóða.
Þá var tekið fyrir álit allsherjarnefndar um útgáfu-
og kynningarstarfsemi Landssambandsins og hafði Ing-
ólfur Finnbogason framsögu. Nefndin lagði til, að
heimilað yrði að gefa út sérstakt fréttablað, enda
héldi Tímarit iðnaðarmanna áfram að koma út, eigi
sjaldnar en einu sinni á ári.
Bjarni Einarsson tók til máls og kvaðst vera and-
vígur tillögu allsherjarnefndar og lagði fram svohljóð-
andi breytingartillögu, áasmt Gísla Ólafssyni:
„29. Iðnþing Islendinga lýsir ánægju sinni yfir
Tímariti iðnaðarmanna í því formi ,sem það nú er.
Jafnframt hvetur þingið ritstjóra tímaritsins til þess
að halda áfram á þeirri braut að bæta og auka tíma-
ritið til hagsbóta fyrir iðnaðarsamtökin, og er einnig
heimiluð útgáfa smærra rits, er kæmi út þegar þurfa
þykir.“
Um þessa tillögu og álit allsherjarnefndar urðu tals-
verðar umræður. Guðni Magnússon og Tómas Vigfús-
son studdu breytingartillögu Bjarna Einarssonar og
Gísla Ólafssonar en Garðar Björnsson studdi tillögu
nefndarinnar. Ingólfur Finnbogason tók einnig til máL
og lagði til að tillögunum yrði báðum vísað til allsherj-
arnefndar og henni falið að samræma þær, enda bæri
ekki mikið á milli. Var það samþykkt samhljóða og
síðan gert matarhlé.
Fundi var haldið áfram kl. 1.30 síðdegis og tók nú
Guðni Magnússon, 1. varaforseti, við fundarstjórn.
Tekið var fyrir 4. mál, inntaka nýrra félaga, og hafði
Vigfús Sigurðsson framsögu fyrir áliti skipulaganefnd-
ar, en nefndin mælti með því, að Meistarafélagi út-
varpsvirkja yrði veitt upptaka í Landssambandið.
Engar umræður urðu um málið og var það samþykkt
samhljóða.
Þá voru tekin fyrir álit fjármálanefndar. Hið fyrsta
fjallaði um verðlagsákvæði og hafði Ingvar Jóhanns-
son framsögu. Var það samþykkt samhljóða.
Bragi Hannesson hafði framsögu fyrir áliti nefndar-
innar um Iðnaðarbanka Islands hf. Þorgeir Jósefsson
tók til máls og var andvígur orðalagi niðurlags tillögu
nefndarinnar. Þeir Bragi Hannesson og Ingvar Jó-
hannsson svöruðu athugasemdum Þorgeirs og var
nefndarálitið samþykkt samhljóða.
Bjarni Einarsson hafði framsögu fyrir áliti fjármála-
nefndar um samkeppnislán fyrir iðnaðinn. Engar um-
ræður urðu um það mál og tillaga nefndarinnar sam-
þykkt samhljóða.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
127