Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Síða 24

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Síða 24
Gissur Símonarson hafði framsögu fyrir áliti fjár- málanefndar um innflutnings- og tollamál. Miklar um- ræður urðu um þetta mál og tóku til máls þeir Karl Maack, Haraldur Þórðarson, Þorgeir Jósefsson, Ing- ólfur Finnbogason, Bjarni Einarsson, Tómas Vigfús- son og Björgvin Frederiksen, og höfðu allir ýmislegt við nefndarálitið að athuga. Var samþykkt samhljóða að vísa álitinu aftur til fjármálanefndar. Þá var gert kaffihlé og buðu aðildarfélög Meistara- sambands byggingamanna þingfulltrúum til kaffi- drykkju. Að loknu kaffihléi var tekið fyrir álit fjármála- nefndar um fjármál Landssambands iðnaðarmanna og hafði Tómas Vigfússon framsögu. Nefndin lagði til, að stjórn Landssambandsns yrði falið að vinna að því, að samtök iðnaðarins, Félag ísl. iðnrekenda og Lands- samband iðnaðarmanna, fái árlega hluta af iðnlána- sjóðsgjaldi til starfsemi sinnar. Ennfremur lagði nefnd- in til, að ef ekki tækist að afla Landssambandinu auk- inna tekna eftir öðrum leiðum, væri stjórn Landssam- bandsins heimilað að hækka skattinn á meðlimum sambandsfélaganna til þess að ná inn fyrir áætluðum greiðsluhalla á fjárhagsáætlun næsta árs, sem stafar af kostnaði við aukna starfsemi Landssambandsins. Engar umræður úrðu um þessar tillögur fjármála- nefndar og þær samþykktar samhljóða. Siðan var þingfundi slitið, laust fyrir kl. 5. Iðnaðarmálaráðherra, Jóhann Hafstein, hafði síð- degisboð fyrir iðnþingsfulltrúa í Ráðherrabústaðnum mlli kl. 5 og 7 þennan dag. Laugardaginn 30. september kl. 9.30 setti annar varaforseti, Garðar Björnsson, þingfund, og var tekið fyrir álit fræðslunefndar. Þór Sandholt hafði framsögu og gerði grein fyrir nefndarálitinu. Þeir Gissur Sig- urðsson og Björgvin Frederiksen gerðu báðir tillögur um orðalagsbreytingar og var álit nefndarinnar sam- þykkt með orðalagsbreytingum. Eyþór Þórðarson tók til máls og bar fram svohljóð- andi tillögu: „29. Iðnþing íslendinga samþykkir að beina þeim tilmælum til stjórnar Landssambands iðnaðarmanna, að hún leiti eftir samstarfi við Neytendasamtökin um stofnun gæðamatsnefnda til að leysa úr ágreinings- málum, sem upp kunna að koma milli kaupenda og seljenda iðnaðarvinnu og varnings, með svipuðu sniði og verið er að vinna að í Hafnarfirði og á Suðurnesj- um.“ Skýrði Eyþór nánar frá því samstarfi, sem Iðnaðar- mannafélögin í Hafnarfirði og á Suðurnesjum hefðu átt við Neytendasamtökin um að hrinda þessu máli af stað. Taldi Eyþór, að þetta fyrirkomulag gæti orðið bæði iðnaðarmönnum og verkkaupum til hags- bóta. Engar umræður urðu um málið og var því vísað til allsherjarnefndar. Björgvin Frederiksen, fulltrúi Landssambands iðn- aðarmanna í stjórn Iðnaðarmálastofnunar íslands, skýrði frá starfsemi Iðnaðarmálastofnunarinnar og ræddi hlutverk iðnaðarins á Islandi í dag. Kvaðst hann vera sannfærður um, að ef illa færi í efnahags- málum þjóðarinnar, mundi það í vaxandi mæli koma í hlut iðnaðarins að veita fólkinu atvinnu. Gissur Símonarson hafði framsögu fyrir áliti fjár- málanefndar um innflutnings- og tollamál, en áliti hennar hafði verið vísað aftur til nefndarinnar á fundi daginn áður. Karl Maack lýsti sig fylgjandi álitinu Eyþór Þórðarson, Ytri-Njarðvik. Karl Maack, Reykjavík. Guðmnndur B. Jónsson, Ytri-Njarðvík. 128 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.