Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 27
Alyktanir
29. Iðnþings íslendinga
ISníræðslumál
x. 29. Iðnþing Islendinga fagnar ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að auka verkkennslu fyrir iðnnema í
fjölmennustu iðngreinunum í Reykjavík, nú á komandi
skólaári.
2. Iðnþingið telur, enn sem fyrr, góða iðnfræðslu í
landinu eina af máttarstoðum íslenzks iðnaðar- og at-
vinnulífs. Því leggur þingið mikla áherzlu á að fjár-
veitingavaldi ríkis og sveitafélaga verði gerð grein
fyrir mikilvægi þess, að iðnfræðslulögin frá 1966 kom-
ist sem allra fyrst til fullra framkvæmda um land allt,
sbr. samþykkt síðasta iðnþings.
3. Einn liðurinn í uppbyggingu fræðslu fyrir iðnað-
inn er efling á starfsemi iðnfræðsluráðs, iðnfulltrúa og
fræðslunefnda iðngreinanna. - Til þess að tilætlaður
árangur náist af störfum þessara aðila er nægjanlegt
fjármagn höfuðnauðsyn, enda er hér fyrir höndum
mjög mikið starf.
4. Þá vill þingið leggja áherzlu á nauðsyn þess að
hraðað verði uppbyggingu framtíðarhúsnæðis fyrir
iðnskólana í landinu og lýsir fullum stuðningi við ósk-
ir Iðnfræðsluráðs um opinber framlög til iðnskóla-
bygginga, sbr. áætlun ráðsins frá í nóvember 1966 (sem
iðnþinginu hefur verið gerð grein fyrir).
5. Þingið vill lýsa stuðningi sínum við fyrirhugaða
eflingu meistaraskóla og telur tímabært, að hann taki
til fleiri iðngreina en verið hefur.
Tolla- og innilutningsmál
29. Iðnþing Islendinga telur eftirfarandi breytingar
nauðsynlegar á tolla- og innflutningsmálum:
1. Endurskoðaðir verði tollar á hráefnum, þar sem
ósamræmis gætir í tollum hráefnis og fullunninna vara.
2. Beitt verði þeim ákvæðum, sem til eru í tollalög-
gjöf, þegar fyrir liggur, að um undirboð erlendra fram-
leiðenda er að ræða.
3. Settar verði reglur um að við útboð af hálfu op-
inberra aðila sé tekið tillit til þjóðhagslegs gildis þess,
að verk séu framkvæmd af innlendum aðilum í stað er-
lendra samkeppnisaðila.
4. Teknar verði uppp tímabundnar ráðstafanir, þeg-
ar hætt er við, að innlend framleiðsla, sem er þjóðhags-
lega hagkvæm, dragist verulega saman eða leggist nið-
ur af völdum innflutnings.
IðnaSarbanki Islands
29. Iðnþing íslendinga telur eflingu Iðnaðarbankans
mikilvæga fyrir vöxt iðnaðarins í landinu. Óskar Iðn-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
þingið þess, að Iðnaðarbankinn fái að opna útibú frá
bankanum, þar sem sýnt er, að það þjóni hagsmunum
iðnaðarins.
Iðnþingið ítrekar fyrri óskir sínar þess efnis að Iðn-
aðarbankanum verði veitt heimild til gjaldeyrisverzl-
unar, svo að bankinn geti veitt viðskiptamönnum sín-
um alhliða bankaþjónustu, sem jafnframt stuðli að
þeirri þróun, að fyrirtæki geti haft öll viðskipti sín í
einum banka.
IðnlánasjóSur
29. Iðnþing Islendinga leggur enn sem fyrr áherzlu
á eflingu Iðnlánasjóðs og bendir í því sambandi á eft-
irfarandi leiðir:
1. Hlutur Iðnlánasjóðs í endurlánum frá Fram-
kvæmdasjóði verði hlutfallslega ekki minni en lán
Framkvæmdabankans til iðnaðar síðustu árin .
2. Iðnlánasjóði verði séð fyrir lánsfé til endurlána
eins og verið hefur, þó þannig, að heildarstofnlán til
iðnaðar vaxi í samræmi við æskilega aukningu hans.
3. Unnið verði að því, að það fjármagn, sem ákveðið
hefur verið, að veitt skuli til hagræðingarlána komi
sem fyrst að fullu til ráðstöfunar.
4. Haldið verði áfram breytingum á lausaskuldum
iðnaðarins í föst lán með milligöngu Iðnlánasjóðs hjá
þeim fyrirtækjum sem búa við óeðlilega fjármagnsupp-
byggingu.
5. Ríkissjóður leggi fram árlega jafn mikið fé til
sjóðsins eins og iðnaðurinn sjálfur með iðnlánasjóðs-
gjaldinu, og meti þar með að fullu jafnrétti iðnaðar-
ins við aðra höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar.
Afurðalón fyrir iðnaðinn
29. Iðnþing Islendinga telur að finna þurfi leiðir til
þess að iðnaðurinn verði ekki afskiftur við ráðstöfun
þess fjármagns, sem veitt hefur verið til framleiðslu-
atvinnuveganna með endurkaupum Seðlabankans á af-
urðavíxlum.
V erðlagsákvæði
29. Iðnþing Islendinga skorar á stjórnvöld landsins,
að þau hlutist til um að verðlagsyfirvöldin leggi raun-
hæft mat á verðútreikninga við ákvörðun verðlags-
ákvæða.
Samkeppnislán
29. Iðnþing Islendinga leggur áherzlu á, að ávallt
sé fyrir hendi nægilegt fjármagn til ráðstöfunar til að
131