Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 38
eru félagsmenn í MMFR komu 9
samhljóða tilboð en tíunda tilboðið
kom frá Kristni Guðmundssyni,
málarameistara í Keflavík og var
það um 33% lægra en hin tilboðin. í
framhaldi af þessu óskaði Meistara-
samband byggingamanna f.h. MMFR
að Landssamband iðnaðarmanna
léti framkvæma rannsókn á því hvort
um undirboð væri að ræða af hálfu
Kristins Guðmundssonar. Stjórn
Landssambandsins skipaði þriggja
manna nefnd til að athuga málið og
áttu sæti í henni Hreinn Óskarsson
tilnefndur af Iðnaðarmannafélagi
Suðurnesja en hann er mælingafull-
trúi félagsins og hafði mælt verkið
fyrir Kristinn Guðmundsson, Ólafur
Jónsson tilnefndur af MMFR og
Sigurður Kristinsson tilnefndur af
stjórn Landssambands iðnaðar-
manna.
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu, að um undirboð væri að ræða,
bæði þar sem Kristinn reiknaði
vinnulið verksins lægra en umsaminn
mælingataxti á vinnusvæðinu segir
til um og með því að reikna ekki
ýmsa kostnaðarliði, sem meistarar á
félagssvæðinu verða að taka tillit til
vegna ákvæða í kjarasamningum við
sveina, svo sem flutninga að og frá
vinnustað og fæði.
Þegar þessar niðurstöður lágu
fyrir óskaði Meistarasamband bygg-
ingamanna eftir því að stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna beitti sér
fyrir því, að Kristni Guðmundssyni
yrði vikið úr Iðnaðarmannafélagi
Suðurnesja, þar sem hann hefði með
tilboði sínu brotið ákvæði 23. gr.
laga Landssambands iðnaðarmanna,
en þar segir, að meðlimum í sam-
bandsfélögum Landssambandsins sé
„óheimilt að ganga í bága við samn-
inga eða kauptaxta, sem gilda fyrir
sambandsfélag samiðnaðarmanna
hans á þeim stað sem kauptaxtinn
nær yfir.“
Stjórn Landssambands iðnaðar-
manna samþykkti hins vegar að not-
færa sér ekki þá heimild, sem er í
lögum Landssambandsins, að óska
eftir því við Iðnaðarmannafélag
Suðurnesja að Kristni Guðmunds-
syni yrði vikið úr félaginu en sam-
þykkti þess í stað vítur á Kristinn
Guðmundsson fyrir brot á lögum.
Landssambandsins.
Tryggingarfélag.
Á síðasta iðnþingi var samþykkt
að leita eftir samstarfi við Félag ís-
lenzkra iðnrekenda um stofnun
tryggingarfélags fyrir iðnaðarmenn
og iðnrekendur. Var ákveðið að leita
eftir hlutafjárloforðum fyrir allt að
kr. 4 millj. hjá meðlimum þessara
samtaka.
Sérstök nefnd vann að undirbún-
ingi málsins og áttu sæti í henni frá
Landssambandi iðnaðarmanna þeir
Grímur Bjarnason, Ingólfur Finn-
bogason og Bragi Hannesson og frá
Félagi ísl. iðnrekenda þeir Sveinn
Guðmundsson og Gunnar Friðriks-
son, en auk þess störfuðu fram-
kvæmdastjórar samtakanna með
nefndinni.
Var unnið að söfnun hlutafjár-
loforða í október og nóvembermán-
uði s.l. og gekk það afar vel og safn-
aði Landssambandið eitt loforðum
fyrir meira en 3 millj. kr. Jafnframt
- Trygginga-
íélag
142
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA