Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 53

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Side 53
þessa skorts á jafnrétti, eftir því hvort menn eru í að- stöðu kaupandans eða seljandans, verða aldrei mæld, en hitt er víst, að þau eru mikil og slæm, og þau koma niður á okkur öllum, þegar allt kemur til alls. Raun- hæfar úrbætur í þessum efnum eru mjög aðkallandi. Neytendasamtökin hafa það markmið eitt að leitast við að efla rétt neytenda í átt til jafnvægis. Og hér er ekki einungis um réttlætismál að ræða og réttarfarslegt, heldur beint og óbeint efnahagsmál, sem alla snertir. Ég sagði áðan, að í lögum Neytendasamtakanna segði, að markmið samtakanna væri: að gæta hags- muna neytenda í þjóðfélaginu. En þar segir ennfrem- ur: Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná meðal annars með því: a) Að vaka yfir því, að sjónarmið neytenda séu virt, þegar ákvarðanir eru teknar eða reglur settar, er varða hagsmuni neytenda. b) Að reka útgáfu- og fræðslustarfsemi til aukningar á verð- og vöruþekkingu neytenda og til skilningsauka á málum, er varða hags- muni þeirra. c) Að veita félagsmönnum sínum leiðbein- ingar og fyrirgreiðslu, ef þeir verða fyrir tjóni vegna kaupa á vörum og þjónustu. Samkvæmt þessu hafa Neytendasamtökin starfað í nær 15 ár. Neytendahreyfingin er ung, hér sem annars staðar. En skilningur almennings og stjórnarvalda á gildi og nauðsyn þess, að hagsmunir þjóðfélagsþegn- anna sem neytenda séu sem bezt tryggðir, hefur farið mjög vaxandi hin síðari ár. Tilgangur allrar fram- leiðslu og lokatakmark er neyzla. Með einföldum orð- um má segja sem svo, að uppbygging okkar efnahags- kerfis hljóti fyrst og fremst að eiga við það að miðast, að við skjótum ekki framhjá því marki. Ég mun nú hér á eftir sérstaklega gera að umtalsefni samskipti seljenda og kaupenda vöru og þjónustu og þann þátt í starfi Neytendasamtakanna, sem felst í því að veita neytendum leiðbeiningar og fyrirgreiðslu, ef þeir telja sig verða fyrir tjóni vegna kaupa á vörum og þjónustu. Þegar sama ár og samtökin voru stofnuð opnuðu þau skrifstofu með daglegum viðtalstímum til þess að verða neytendum að liði í þessum efnum. En satt bezt að segja, bjuggumst við ekki við því, að á- standið í þessum málum væri eins slæmt og raun hefur borið vitni. En því hafa Neytendasamtökin reynt eft- ir megni að aðstoða einstaklinga í slíkum málum, að hin óbeinu áhrif, sem meðferð margra þeirra mála hafa, geta orðið mikil og hafa sannanlega orðið það á margan hátt. Tilvera samtakanna ein og aðgangur að þessari þjónustu hefur einnig sín áhrif. Og þess ber sérstaklega að geta, þar sem það er grundvallaratriði, og sú ákvörðun var tekin þegar í upphafi, að samtökin hafa aldrei tekið neitt sérstakt gjald af þeim, sem hafa leitað aðstoðar skrifstofu samtakanna til að ná rétti sínum eða viljað fræðast um það, hver réttur þeirra væri. Unnið er að lausn hundraða mála á ári hverju, fyrirspurnir hvers konar eru óteljandi, oftast margir tugir dag hvern. Það er sök sér, þótt neytendur almennt viti ekki, að til séu lög í landinu, sem heita lög um lausafjárkaup og fjalla um rétt og skyldur kaupenda og seljenda, en hitt er öllu alvarlegra, að þeir sem fengið hafa verzlunar- réttindi, virðast yfirleitt ekki vita fremur en neytend- ur um tilvist, hvað þá efni, þessarra laga, sem þó hafa gilt í hálfan fimmta áratug - eða frá 19. júní 1922. Hundruð seljenda hafa fyrst fengið upplýsingar um tilveru þessarra laga - og þar með um skyldur sínar og rétt lögum samkvæmt - frá Neytendasamtökunum. Og það hefur ósjaldan breytt afstöðu þeirra til muna. Þeir vissu ekki betur, en að þeir væru í fullum rétti, þegar þeir beittu órétti, en þessi fræðsla hefur áhrif á framtíðarviðskipti eða viðskiptaháttu. Og til að nefna raunhæf dæmi, þá er það ekki aðeins, að neytendur þykist oft hafa himinn höndum tekið að fá skírteini upp á eins árs ábyrgð vegna framleiðslugalla á ein- hverjum hlut, sem þeir hafa keypt, heldur telja selj- endur sig oft með því sýna bæði rausn og sanngirni, sem þeim beri engin skylda til og gætu alveg eins látið vera. En hvort tveggja er misskilningur, því að þessa árs ábyrgð á seldum hlut hafa seljendur borið síðast- liðin 45 ár og bera enn - nema annað sé sérstaklega og greinilega tekið fram í samningi - munnlegum eða skriflegum. Það skal skýrt tekið fram hér, að reynsla Neyt- endasamtakanna af samskiptum þeirra við seljendur - hingað til fyrst og fremst kaupmenn -, er yfirleitt hin bezta, þótt undantekningar séu að sjálfsögðu ýms- ar. Ef seljandinn hafnar allri málamiðlun, en með henni er fundin lausn flestra mála, þá kemur í ljós það réttleysi neytandans í reynd, sem ég nefndi svo áðan. Þá er aðeins ein leið til, það er að leita til dómstól- anna, þá seinförnu, dýru og tvísýnu leið, en sá vegar- spotti réttlætisins má heita nær ófær allt árið um kring fyrir flestar tegundir neytendamála. Réttur neytandans samkvæmt kaupalögunum er mik- ill - í orði. En fyrir milligöngu Neytendasamtakanna og vegna almenns vilja seljenda til sanngirni er hann einnig oft snarlega á borði, þannig að lögin hafa verið lögð til grundvallar við lausn mála né heldur máls- kostnaður, þótt engir dómstólar kæmu nærri. Annað mjög veigamikið atriði varðandi samskipti Neytenda- samtakanna og seljenda er það, hve mörgum þeirra hefur fljótt orðið ljóst, hvaða hag þeir sem seljendur geti haft af milligöngu Neytendasamtakanna. Þau leit- ast við að ná rétti neytandans, en heldur ekkert um- fram það. Hafi neytandinn engan rétt eða takmark- aðan, þá fær hann hiklaust að vita það. Það er eðlilegt, að kaupandi rengi seljanda um það mál, en ekki Neyt- endasamtökin. Og það gera þeir ekki heldur, þótt óneitanlega séu til nokkrar undantekningar í því efni sem öðrum. En á ýmsum sviðum getur orðið erfitt að finna við- unandi og örugglega sanngjarna lausn, og það á ekki TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 157

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.