Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 58

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 58
5- gr- 1 Landssambandinu geta verið: 1. Blönduð iðnaðarmannafélög. Sérgreinadeildir slíkra félaga eiga sjálfkrafa aðild að Landssamband- inu gegnum iðnaðarmannafélögin. 2. Landsfélög einstakra iðngreina. 3. Landssambönd iðngreina. 4. Einstök iðnfyrirtæki, eða fyrirtækjasambönd, sem Iðnþing samþykkir að veita upptöku í Landssam- bandið. Á meðan ekki hafa verið stofnuð landsfélög eða landssambönd í einstökum iðngreinum skal staðbundn- um sérfélögum í viðkomandi iðngrein heimil aðild að Landssambandinu en jafnskjótt og stofnað hefur verið landsfélag eða landssamband í iðngreininni nýtur það forgangsréttar að aðild að Landssambandinu og fellur þá niður réttur hins staðbundna félags. Landssamband iðnaðarmanna skal vinna að skipu- lagningu, stofnun og starfrækslu landsfélaga og lands- sambanda í þeim iðngreinum, þar sem grundvöllur er fyrir starfsemi slíkra félaga en þau hafa enn ekki verið stofnuð. Leitast skal við að: a) meðlimir landsfélaga einstakra iðngreina séu jafn- framt meðlimir í blönduðu iðnaðarmannafélagi, ef það er til þar sem þeir eru búsettir. b) staðbundin sérfélög í landssamböndum einstakra iðngreina séu jafnframt deildir í blönduðu iðnaðar- mannafélagi á sama félagssvæði, ef slíkt félag er til. c) meðlimir í blönduðum iðnaðarmannafélögum séu jafnframt meðlimir í landsfélögum eða landssambönd- um einstakra iðngreina. 6. gr. Umsókn um upptöku í Landssambandið skal vera skrifleg og sendist stjórn Landssambandsins. Sam- þykkir stjórnin upptökuna eða synjar henni, en allar slíkar ákvarðanir hennar skulu lagðar fyrir næsta Iðn- þing til staðfestingar. Umsóknum um upptöku í Lands- sambandið skal fylgja skýrsla um stofnun og starfsemi félagsins eða sambandsins og iög þess og félagaskrá og ef um einstök fyrirtæki er að ræða um stofnun og starf- semi þeirra. 7- gr- Landssambandið heldur þing ár hvert, er heiti Iðn- þing Islendinga, og komi það saman 4. hvert ár utan Reykjavíkur, en hin 3 árin í Reykjavík eða nágrenni eftir samkomulagi hlutaðeigandi félaga. Þingstaður utan Reykjavikur skal ákveðin á næsta þingi á undan. Landssambandsstjórn boðar til þinghalds með 3ja mánaða fyrirvara. 8. gr. Sjálfkjörnir á Iðnþing eru: 1. a. Formenn iðnaðarmannafélaga. b. Formenn landsfélaga iðngreina. 162 c. Formenn landssambanda iðngreinafélaga. d. Formenn iðnráðs. 2. Sérhvert félag, iðnaðarmannafélag eða landsfélag og samband félaga kýs einn fulltrúa á iðnþing fyrir hvert byrjað hundrað meðlima. 3. Einstök iðnfyrirtæki kjósa einn fulltrúa á iðnþing. Fyrirtæki, sem hefur færri starfsmenn en 10 á ekki rétt á að senda fulltrúa á Iðnþing. Séu starfsmenn fyrirtæk- is fleiri en 100 á það rétt á að kjósa einn fulltrúa til viðbótar fyrir hvert byrjað hundrað starfsmanna. 4. Auk þess hafa þingsetu, tillögurétt og málfrelsi: Framkvæmdastjóri L. i., ritstjóri Tímarits iðnaðar- manna, formaður Iðnfræðsluráðs, einn af bankastjór- um Iðnaðarbankans, kosinn af bankaráði, formaður Sambands iðnskóla á íslandi, en þeir hafa ekki kjör- gengi né kosningarétt, nema þeir séu jafnframt kjörnir fulltrúar einhvers sambandsfélags. Sama gildir um stjórnarmenn Landssambandsins, séu þeir ekki lengur kjörnir fulltrúar. Geti kjörinn fulltrúi eða varamaður hans ekki mætt á Iðnþingi, má sá aðili, er kaus hann, fela iðnaðar- manni á þingstað að mæta í hans stað enda sé hann félagi í sambandsfélagi og hafi lagt fram kjörbréf fyrir þingsetningu. 9- gr- Kjörgengir á Iðnþing eru þeir, sem hafa: a) Iðnpróf eða iðnréttindi í einhverri grein. b) Verkfræðipróf eða húsameistarapróf. c) Próf í einhverri iðnfræðilegri (tekniskri) grein, er Landssambandsstjórn tekur gilda. Kjörgengir eru þó ekki þeir, sem hafa verzlun með erlendan varning í samkeppni við íslenzkan iðnað að aðalatvinnu. 10. gr. Iðnþingið úrskurðar kjörbréf kosinna fulltrúa og rétt þeirra til þingsetu, svo og hvort þeir séu kosnir af hlutgengum aðila. n. gr. Hver sambandsaðili skal hafa tilkynnt stjórn Lands- sambandsins, hver eða hverjir séu kosnir fulltrúar á Iðnþing af þess hálfu í síðasta lagi 14 dögum fyrir þing. 12. gr. Iðnþing hefur æðsta vald í öllum málum Landssam- bandsins. Á því skulu tekin fyrir öll þau mál, sem þurfa þykir og Landssambandið varða eða félög þess. Mál, er einstakir félagar eða félög óska að verði tekin fyrir á þinginu, skulu komin til Landssambandsstjórn- ar ekki síðar en 14 dögum fyrir þing. Iðnþing er lög- mætt, ef löglega hefur verið boðað. Þingfundir eru lögmætir, þegar 2/5 þeirra fulltrúa, sem á þinginu eru, eru mættir. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.