Vikan - 06.11.1958, Side 19
I SHORNio
Mafaræði Islendinga
fyrr og nú
Það er mikill munur á
mataræði Islendinga fyrr og
nú. Hér var matur fábrotn-
ari í gamla daga, enda litill
innflutningur og engar nið-
ursuðuvörur.
Það kunna að vera skiptar
skoðanir um það, hvort
matur sé almennt hollari nú
en áður, enda er margt um
þetta að segja.
Eitt er víst, að matur er
oftar steiktur nú til dags
og það talsvert brasaður.
Feitin, sem við notum til
að steikja upp úr, er ekki
eins holl eða næringarrík
og skyldi. Smjörlikið hefur
ætíð verið hálfgerður ó-
þverri en jurtafeitin hefur
ekki hlotið nóga útbreiðslu,
en hún er mun betri að gæð-
um en smjörlíkið. Nú kann
einhver að hugsa til þess,
að jurtafeitin er dýrari en
smjörlíkið, þá er gott að
temja sér að steikja sjaldn-
ar, og sjóða matinn oftar.
Annað nútímavandamál í
sambandi við matargerð er
kryddið, en það er stöðugt
að ná meiri útbreiðslu hér
á landi. Krydd verður að
nota í hófi, enda ætti það
að bæta efnahaginn, þar eð
slíkur varningur kostar
okurfé.
Það er vafalaust hollara að
borða soðinn mat heldur en
steiktan. Eitt er samt öm-
urlegt til að vita, en það er,
hversu algengt er, að
kartöflur séu flysjaðar áður
en þær eru settar í pottinn.
Við slíkar aðfarir hverfur
öll næring úr kartöflunum,
en þær eru ein kjarnbezta
fæða, sem völ er á. 1 gamla
daga kom svona næringar-
rán aldrei fyrir enda borð-
aði fólk kartöflur með hýði
og öllu saman.
Við njótum samt ýmis-
legs, sem fólk fór á mis við
áður fyrr, og ber þar helzt
að nefna heilbrigðiseftirlit
og hin mörgu tæki, sem
forða mat frá skemmdum.
Sjálfsagt þykir nú, að
hvert heimili eigi ísskáp, og
ekkert nema gott um það að
segja. Sumt fólk kann þó
ekki að hirða ísskápa og
Nokkur
Ætlir þú að hreinsa
postulínsvarning, þá notar
þú ræstiduft blandað með
sagi. Þú lætur blönduna í
ílát það, sem þú ætlar að
hreinsa og nuggar vel með
tusku. Sagið gerir það að
verkum, að ræstiduftið
nuddast ofan í allar ójöfn-
ur ílátsins.
Viljir þú hreinsa hár-
bursta án þess að hár eða
tindar fari af, þá notar þú
volgt sápuvatn, sem í hefur
verið bætt örlitlu af ammo-
niaki. Þegar þú hefur þveg-
ið hann og skolað dyggi-
lega, þá lætm’ þú hann
þorna í opnum glugga.
Viljir þú hreinsa leður-
tösku, þá getur þú blandaö
innihald þeirra. — Hverri
fæðutegund fyrir sig ber að
pakka vandlega inn, svo að
bragð og lykt renni ekki allt
í einn graut, siðan verður
að gæta þess vel að þrífa
skápinn á ca. 10 daga
fresti.
Að lokum má gjarnan
minna á það, að mikið at-
riði fyrir góða meltingu er
að borða reglulega.
húsráði
söltu ammoniaki saman við
vatn, og þvegið leðrið upp
úr blöndunni.
Ætlir þú að hreinsa pott
eða pönnu. þá getur þú lát-
ið eina teskeið af bökunar-
sóta í ílátið en síðan eitt
glas af heitu vatni. Þegar
blandan hefur kólnað, þá
strýkur þú ílátið með tusku. ,
Viljir þú má burtu skó-
svertu, þá gerir þú það með
heitu sápuvatni eða terpén-
tínu. Einnig má nota vín-
anda eða edik.
Viljir þú losna við prent-
svertu úr klæði, þá dýfir þú
því fyrst í terpentínú, en
nuggar síðan blettinn með
svampi, sem þú hefur > áður
dýft í vínanda. 1
Viljir þú losna við gras-
toppa, sem stinga sér upp
á milli hellna í gangstíg
þínum, þá gerir þú þér
blöndu í garðkönnuna þína.
Þú blandar sterklega kals-
íumklóríði saman við vatn-
ið. Með því að úða þessu
á grastoppana tvisvar sirin-
um, þá getur þú stöðvað
gróður þeirra sumarlangt.
M—1 Commins Diesel með hinu einfalda olíuverki
Cummins Diesel í vörubíla
1. Léttar í hlutfalli við afl.
2. Öruggar og þægar í gang.
3. Einfalt PT olíukerfi.
4. Góð varahlutaþjónusta.
5. Þaulvanur viðgerðarmaður
ávalt til aðstoðar við
viðhald og viðgerðir.
Cummins Dieselvélar eru í 55% af öllum
stærri Dieselbílum í Bandaírkjunum.
ORKA H.F.
í Hverfisgötu 106 A
VIKAN
19