Vikan


Vikan - 13.11.1958, Qupperneq 7

Vikan - 13.11.1958, Qupperneq 7
Oleg Cassini, sem er frœgur tizfcuteiknari bæði í New York og Hallywood, hóf feril sinn i tízkuheiminum í heimaborg sinni, París, sem teiknari hjá Patou-fyrirtækinu. Hann dvaldi á unga aldri í Florence á Italíu, þar sem móðir hans rak mjög vel róm- aða tízkuverzlun, enda lærði hann undirstöðuatriði i tízkuteikn- ingu hjá henni. Árið 1933 átti Cassini íburðarmikla klæðaverzlun í Róm, en kom þremur árum siðar til New York og vann sem tízkuteiknari hjá fyrirtæki nokkru. Fáum mánuðum seinna var hann sjálfur búinn að setja upp verzlun þar í borg. 1 stríðsbyrjun fékk hann tilboð frá kvikmyndafyrirtæki um að gera klæði á leikfólkið, en skömmu seinna var hann einnig kom- inn á samskonar samning hjá öðru stóru kvikmyndaveri í Holly- wood. Oleg Cassinni hefur gert marga einfalda klæðnaði, enda er hann mjög hugmyndaríkur og frumlegur. Hann gerir klæði hag- kvæm og þægileg, svo konan geti unað sér lengi í þeim, en á þann hátt sparar hann henni fé um leið. Nýjustu hugmyndir hans í klæðagerð sýna mjög glögglega, hversu einfaldsleikinn getur verið glæsilegur. Meirihluti dag- kjóla hans eru gerðir samkvæmt empirelínunni, þar sem kjóllinn er hafður óaðskorinn frá öxlum niður á lendar. Cassini hefur gert marga afbragðs fallega viðhafnarkjóla, en þar notar hann eldri hugmyndir sér til hjálpar, og það með góðum árangri. Hin dularfullu satin- og jerseyefni, sem hann notar í kvöldkjóla fara afar vel við skartgripl og án þeirra líka. Annars mundi það taka ár og daga að lýsa öllum þeim gífur- lega fjölda klæða, sem Cassini hefur gert, enda er fjölbreytni hans gífurleg. Hann hefur satt að segja gert allt, sem hugsast getur í sam- bandi við kvennatízkuna. Cassini er á þeirri skoðun, að konan eigi að hafa í klæðaskáp sínum klæðnað sem hentar sérhverju tækifæri, og eigi líka að velja hann látlausan en aðlaðandi. Um einkalíf Cassini er fátt að segja, enda eiga frægir menn, eins og hann, sjaldan noklíuð einkalíf. Sagt er að hann sé ekki gefinn fyrir veizlur, en eins og allir tízkuverzlunarmenn, þá verður hann að þiggja nokkur heimboð annað veifið. Til dæmis kemur það fyrir, að hann verður að fara með klæði til beztu viðskiptakvenna sinna, en það fær hann líka vel borgað. I raun og veru er Cassini svo önnum kafinn, að hann hefur mjög takmarkaðan frítíma. Flestum frístundum sínum ver hann til lestrar á góðum bókum, eða til sól- og sundbaða. Öðru hvoru ff % ' 'í'* ■ * ■ -■ . ■ ■ . ■ Oleg Ca&mmi VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.