Vikan - 13.11.1958, Side 19
VEIKINDI BARNA
Veikist barn þitt, þá skaltu
strax snúa þér til heimilislækn-
is þíns. Það eru þó nokkur
ráð, sem gætu komið þér að
haldi, ef nauðsyn krefði þess.
Mun hér drepið á ráð í tveim-
ur veikindatilfellum.
Elghósti: Hann er élitinn
mjög alvarlegur kvilli börnum
á fyrsta aldursári, þess vegna
skyldir þú verja barn þitt
eftir beztu getu. Ef þú gæt-
ir þess að einangra barnið frá
fólki því, sem kemur kvef-
að af kíghósta heim á heimili
þitt, þá getur það orðið til
þess, að barnið sleppi við
kíghóstann. Þú tekur ekki
eftir, hvort barn þitt er með
kíghósta fyrstu vikuna, sem
það er með hann, þar eð hann
minnir þá á venjulegt kvef.
En aðra vikuna, þegar þú
heldur að kvefið sé yfirstaðið,
þá má vera að þú takir eftir
því, að barn þitt sé tekið að
fá hóstahviður um nætur.
Eftir slíkar hóstahviður muntu
geta séð, að barnið tekur and-
köf. Þegar svo er komið, þá
skaltu ekki láta barnið vera
einsamalt, þar eð það mun
hræðast veikindi sin. Þegar
barnið er orðið heilt heilsu, þá
skaltu gefa því næga fæðu, þar
eð veikindin eru mjög grennandi.
Þótt þú vitir að barn þitt
sé með kíghósta og kunnir
ráð til hjúkrunar, þá skaltu
samt ná í lækni, þar sem hann
getur komið í veg fyrir, að
veikin verði undanfari lungna-
kvefs og lungnabólgu.
Mislingar: Þeir eru mjög
hættulegir börnum innan við
fimm ára aldurs, og þú átt að
reyna allt til þess að þau hafi
ekki samneyti við þá sem eru
með kvillann, sem barn þitt
fær fyrr eða síðar, og sé því
illu bezt aflokið.
Fyrstu þrjá til fjóra dag-
ana lýsa mislingarnir sér sem
slæmt kvef; augun eru rauð
og rök og þurr hósti. Þegar
mislingarnir byrja að koma
út (fyrst bak við eyrun), þá
mun barnið vera óhamingju-
samt og sofa órólega. Það mun
þurfa mikið vatn að drekka.
Kvarti það undan of mikilli
birtu, þá skaltu draga glugga-
tjöldin fyrir, án þess að gera
aldimmt. Það er mikið atriði
að barnið hafi gott andrúms-
loft í kringum sig, en sé í
nægum hita.
Sé barnið með hita á þriðja
degi eftir að mislingarnir koma
út, eða það fær mikinn sótt-
hita einhvern tíma legunnar,
þá skaltu strax láta lækni þinn
vita, þar sem þetta kann að
vera fyrirboði verri sjúkdóma.
ítalslcir tómatar.
tómatar, Jf síldar (þ. e. Utlar),
80—100 gr. af salamisósu, tvœr tesk.
af raspi, ein tesk. af olífuolía, salt
pipar, 30 gr. af rifnum osti.
Þú sneiöir af tómötunum í annan
endann og hreinsar þá út. Síðan lœt-
ur þú síldamar og salamÁsósuna inn
í hvern tómat og hrœrir vel rasp-
inum saman við. Að svo búnu læt-
ur þú sneiðarnar aftur á enda tóm-
atanna og kemur þeim fyrir á pönnu.
Þú lætur smjör á pönnuna og steik-
ir siðan tómatana í 15 mínútur yfir
góöum hita. — Þú berð rétt þennan
á borð með grœnum baunum.
- BARNAVDRUR -
nson
& §ok
nson
Það er metnaður hverrar móður að hugsa vel
um barn sitt, en á fyrstu æviárum þess er aðal
umhugsunin fólgin í hreinlætinu. 1 þessum til-
gangi eru Johnson’s barnavörurnar hið ágætasta
hjálparmeðal.
Umönnun barnsins, heitir bæklingur einn, sem
út hefur komið á íslenzku, en í honum er getið
um, hvernig nota á þessar ágætu vörur, og hvaða
eiginleikum þær hafa yfir að ráða. I bækl-
ingnum er ljóslega skýrt frá því, hvemig móð-
irin getur, með lítilli fyrirhöfn, haldið barni sínu
hreinu og um leið hraustu. Allan þennan haldgóða
fróðleik er að finna í aðeins sex stuttum en
greinargóðum köflum. 1 fyrsta kaflanum er getið
um baðtíma barnsins. Þar er listi yfir áhöld,
sem nauðsynleg eru við slík tækifæri, og hvem-
ig auðveldast er að nota þau. Tveir næstu kafl-
arnir f jalla um meðhöndlun bleyjunnar og hvem-
ig bezt sé að sauma hana. 1 fjórða kaflanum er
getið um húð barnsins og umönnun hennar. Er
þetta mjög athyglisvert greinarkorn, enda geysi-
lega þýðingarmikið að móðirin sé vel heima x
slíkum fræðum. Fimmti kaflinn fjallar um nýj-
ungar í hárþvotti barnsins, en þar er gott að
vera vel heima, þar eð hárþvottur grætir oft
ungbörnin.
1 síðasta kaflanum er skýrt frá Johnson’s
barnavörunum og eiginleikum þeirra. Þar er
minnst á barnasápuna, barnapúðrið, hömndsá-
burðinn, barnakrem og sitthvað fleira nauðsyn-
legt.
Umönnun barnsins er fróðlegt kver, og getur
orðið margri móður góður ráðgjafi. Það er einn-
ig gott að geta fengið svona nauðsynlegar upp-
lýsingar á íslenzku, þar eð þá tungu skilja ís-
lenzkar mæður bezt. Kverið er að fá í ölllum
lenzkar mæður bezt. Kverið er að fá í öllum
barnavaranna.
liartöflusalat með lauk,
Setjið þrjár msk. smjör í pott. Þegar það er
bráðið (má ekki brúnast) eru niðurskornar kart-
öflur og niðurskorinn laukur sett út í ásamt 2—3
msk. af sykri, pipar og salt, eftir smekk. Þá er
bætt út í 3—4 msk. ediki — Þetta er látið sjóða
i 5—10 mínútur við mjög vægan hita (það má alls
ekki brúnast).
Þetta salat er saðsamt og gott, þó ekkert sé
borðað með því annað en brauð. — En það er
enginn svangur ef spældu eggi er bætt ofaná. —
Og enn betra, í viðbót 1—2 msk. af sósu, sem á
vel við þennan rétt. Nafn hennar er „Mayonna-
ise-Russian Dressing", merkið er Monarch.
SKODA
Traustur — rúmgóður — sparneytinn —
orkumikill.
— FJÖRAR GERÐIR —
SÆKIÐ UM GJALDEYRIS- OG INNFL.LEYFI SIRAX!
TÉKKIXIESKA BIFREBÐAUMB68IÐ Rf.F.
Laugavegi 176, sími 1-7181.
VIKAN
19