Vikan


Vikan - 29.01.1959, Side 9

Vikan - 29.01.1959, Side 9
„Ja, samskipti ykkar hljóta að hafa verið mjög innileg, til þess að slíkt kæmi fyrir, svo að ég er að velta þvi fyrir mér hvort . . . En þú reiðist án efa.“ ,,Hvað finnst þér?“ Coco leit ekki undan, þótt Julie horfði kuldalega í augu hans. „Ég er að velta þvi fyrir mér, hversu náið samband hafi verið milli ykkar, og hvað hafi getað fengið ykkur til þess að sinnast. Að rífast við mann, sem er dauðsjúkur eins og þú segir . . . varstu ekki hrædd um afleiðingarnar ?“ Hún forðaðist að svara. Hún óskaði þess heitt að vera komin langt i burtu frá honum. Hún vildi helzt lifa þrjú siðustu árin upp aftur. Þrjú ár, sem smám saman höfðu eyðilagt hana, sér- hver klukkustund þyngdi á vinnu hennar, sér- hver mánuður var uppgjöf, og nú lifði hún lífi léttúðar og stolts, sem hún vildi ekki viðurkenna fyrir sjálfri sér að væri hégómlegt, og hið eina sem gaf lífi hennar gildi var líkamshreysti henn- ar, likt og líkamleg orka fyllir krakka bjartsýni. Allt lífið var tilviljun, bið. Fer þá þannig fyrir konu einungis vegna vissrar sérvizku eða óhlýðni, þótt hún hafi sagt skilið við mann og valið ann- an og síðan kynnzt hinum þriðja? Húsverkin þreyttu hana, strit, og stag, umsnúin pils — „Elskan, svei mér þá, ef pilsið er ekki fallegra ef þvi er snúið við! — uppfinningar, sem maður ímyndar sér að séu sigrar, en eru samt einskis virði, heldur hrein ímyndun. Er þetta tilviljun, eða er þetta meinfýsi örlaganna ? Hún hugsaði án þakklætis til ölmusugjafa Becker gamla. Hún minntist hátíða holdsins, sem stóðu svo stutt yfir og gleymdust síðan, og hún heyrði þreytta, hása karlmannsrödd berast til eyrna sinna. „Þetta er ekki hin eiginlega rödd þeirra," hugs- aði Julie, „heldur augnabliksrödd." Þrjú til fjögur ár, nýstárlegur matur á spilaborði — „Yndis- legar þessar radism' með sinnepi. Julie er svei mér frumleg!" — og veitingastaðir, þangað sem maður fór með fagurmálaðar varir, heillandi hörundslit og eilífðarbros á vörum, sem gaf til kynna, að hér væri sönn hefðarkona á ferð; kampavín og styrjuhrogn, eða ef til vill ostrur og paté de foie de porc. Fjörutíu — fjörutíu og tveggja — fjörutiu og fimm ára gömul. „Hver er þetta? Nú, þetta er hin fagra frú de Carneil- han. Ætlarðu að segja mér að þú kannist ekki við hana?“ Vindurinn, sem feykti upp borðdúknum, gaf til kynna, að það var að fara að rigna, og að botninn á grunnu tjörninni var ekki annað en aur. í gamni, i peninga. Tilviljunin hefur til allrar hamingju sett sautján ár á milli okkar; ég minn- ist bara á þessa óravídd." „Koníakið kemur glampa í augun á þér, Julie. Þau eru svo blá — svo uggvænlega blá,“ sagði Coco lágri röddu. „En þú yrðir ekki á mig. Viltu ekki að minnsta kosti tala við mig með aug- unum ?“ Með því að hálfloka augunum, dró hún úr þessum bláma, sem honum fannst svo óhugnan- legur. „Bölvaður. Hann er allt of glöggskyggn!" hugsaði hún. „Það gerir návist hans óþolandi.“ „Þetta er Carneilhan-bláminn," sagði hún. „Pabbi var vanur að hræða okkur með þessum bláma, þegar við^ vorum börn. Og svo komumst við bróðir minn að því, að við höfðum erft þetta. Léon heldur því fram, að þessi sérstaki blámi temji hesta.“ „Er það?" sagði Coco hæðnislega. „Og með hvaða lit temur hann svín?“ Julie lét sér hvergi bregða, því að örlög Coco voru ráðin. „Hann er ómögulegur," hugsaði hún. „Hann grunar allt, sem eitthvað er líkt mér. Ég vona, að brátt fyrirliti hann mig líka.“ „Þér þætti víst síður en svo fyrir því, að ég ætti enga fjölskyldu, er það ekki, Coco?“ „Ég óska engan feigan," sagði Coco. Hún leit á hann full skilnings, og gerði sér það vel ljóst, hversu tortrygginn karlmaður er, sem nýlega hefur farið eignarhöndum um konu. „Viltu fara með mig heim, elskan. Ég er að flýta mér dálitið í dag.“ Félagi hennar gerði það frumhlaup að setja upp undrunarsvip og hún dró þá ályktun, að það stafaði af njósnmn hans um hana. Síðsumar- loftið umhverfis hana fór illa með hörund hennar, sem þyrsti eftir söltu vatni, en skorti vindblæinn, sem nú lék um aspirnar í Carneilhan og blés um þreskigarðinn. Lyktin frá melónunni, sem félagi hennar var að borða, eyðilagði skyndilega ilminn frá kaffi hennar. „Hann njósnar um mig. Hann tekur eftir þvi, hvernig ég ver deginum. Hann veit, að ég hef ekkert að gera, nema þvo og staga, og það finnst honum sannfærandi, og hann veit, að Espivant ' er mér forboðinn ávöxtur, eins og stendur. Hafði ég gert mér grein fyrir þessu sjálf?" Hún varð gáskafull, eins og hún vildi leyna einhverjum glæp, henti brauðmolum til spörfugl- anna og hrópaði upp, þegar hún sá stóran klasa af rauðum blómum. Á leiðinni til bílsins, tók framhaldssaga eftir Colette „Julie, þú ert ekki veik, er það?“ Hún hristi höfuðið og brosti af þolinmæði. „Nei,“ svaraði hún hið innra með sér. „Ég er aðeins að bíða eftir því augnabliki, þegar þú ert ekki lengur fyrir sjónum mínum. Vegna þess að þú ert vera, sem ég hef aldrei séð, vera, sem ég þoli ekki til lengdar: þú ert glöggskyggn mað- ur, Þú lætur mig tala um annan mann og ferð með hann eins og svarinn óvin. Maður gæti haldið, að Herbert héldi engu leyndu fyrir þér. Þú hatar hanh og skilur hann um leið. Þegar ég hugsa um Espivant, spyrðu mig hvort ég sé veik. Hversu góð ráð gætir þú ekki gefið mér, þótt þú sért aðeins tuttugu og átta ára. Hreinskilinn ráðgjafi, einn þessarra smáborgaraviðundra, sem tilvilj- unin kemur stundum fyrir við hlið drottninga. En bölvaðar drottningarnar sænga með viðundr- inu og breyta honum í stórbokkalegan hertoga, bitran elskhug;a og misskilinn stjórnmálamann. Ef ég hefði þig sem ráðgjafa, myndi ég aldrei gera neitt kjánalegt, eins og þú komst að orði.“ Hún tæmdi úr koníaksglasi sínu i einum teyg, enda þótt þetta væri mjög gamalt koníak, sem var vel þess virði, að farið væri viðurkvæmilega með það, mjúkt, og gott koniak. „Hana!“ sagði Julie og lagði frá sér glasið. ,Bravó!“ sagði Coco Vatard. „Ef hann vissi hvað ég meinti. Þetta er ekki lengur kjánalegt — þessi upphrópun þýddi, að ég mun aldrei framar koma neinum að gagni — ekki einu sinni sjálfri mér. Hann myndi forða mér frá algeru hrun. Menn geta alltaf leitt yfir sig hrun, jafnvel þegar þeir ekkert eiga, Coco er svo umvöndunarsamur. Coco myndi til dæmis aldrei reyna að skipta ávísun, sem skrifuð er hún upp fuglsf jöður með silfurskúf og stakk henni í hnappagat Coco. „Það á ekki að gefa fjaðrir, eða fugla. Það færir manni óhamingju." „Kastaðu henni þá.“ Hann lagði höndina á litlu fjöðrina, eins og til þess að vei'nda hana. „Nei,“ sagði hann. „Það sem er gefið, er gefið.“ En hún lagði handlegginn um axlir hans, lét höndina síga, leitaði að litlu fjöðrinni, tók hana og lét vindinn feykja henni í burtu. Hún leit undan þakklátu augnatilliti hans. „Ég veit, ég veit, þú ert fullur þakklætis. En þannig verður það ekki lengi. Þetta er hið síðasta, sem ég geri' fyrir þig,“ hugsaði hún. Hún raulaði lag- stúf. Hún hélt áfram að raula inni í bílnum, til þess að hann dirfðist ekki að tala. „Láttu mig af hérna, Coco, við lyfjabúðina. Ég þarf að ná í dálítið.“ Hún stökk fimlega út áður en bíllinn hafði staðnæmzt. Þetta kom Coco á óvart og framhjól bílsins rakst á gangstéttarbrúnina. „Þú ert farinn að keyra eins og viðvaningur, barnið mitt.“ „Ég veit það,“ viðurkermdi Coco. Hann steig út úr bilnum og snerti rispu, sem hann ltom auga á á bílnum. „Ég skal bíða, Julie. Vertu fljót. “ „Nei, nei,“ hrópaði hún. „Ég er i'étt komin heim.“ En í þessu skall rigningin á, og Julie hljóp inn og keypti fyrstu túbuna af tannkremi sem hún sá, fór aftur inn í bílinn og lét aka sér heim. Hún virtist heyra, hið innra með sér, varúðar- Framhald í næsta blaSi. Meistaraverk ritvélatækninnar. Sé r stök skriftarfegurð. IBM stimpilklukkur og klukkukerfi fyrir allar tegundir fyrirtækja. Veitum viðgerðaþjónustu. Varahlutir jafnan fyrirliggjandi. - MICHr, SKRIFSTOFUVÉLAR O^ict COUIPMENT *r$7U7t'> Laugavegi 11 Símar: 18380 og 24202 VIKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.