Vikan


Vikan - 29.01.1959, Blaðsíða 15

Vikan - 29.01.1959, Blaðsíða 15
i 'I slg falla aftur á dag með „andstæf5inglnn“ og varpa hon- um yfir sig. Og þegar „andstæðingurinn" skellur niður, er hann tekinn ákveðnum tökum og honum haldið niðri. Hann er ekki beint virðulegur blessaður, og fáir mundu kæra sig um svona meðferð & almannafæri. En „sigur- vegarinn" í þetta sinn ku eiga það vist að lenda í sðmu aðstöðu á eftir. Þeir skiptast á um að tapa i Judo. saman i kerfi og þjálfuðu þau visindalega. Þeim var bannað að bera vopn en þurftu á sjálfsvörn að halda. Frá Kína barst Jiu Jitzu til Japan. Arið 1882 var stofnsettur skóli í Jap- an sem heitir Kodokan og var skólastjórinn ungur maður sem var prófessor I bókmenntum, en hafði kynnt sér ýtarlega hin ýmsu glímukerfi. Nafn hans var Jiguro Kano. Hann ákvað að gera glímuna þannig að hún væri meira leikur og íþróttaþjálfun, en áður var eingöngu miðað við að æfa menn í bardagaaðferðum. Kano lagði áherzlu á að allir gætu æft þessa nýju glímu og hann gaf henni nafnið Judo, eða Hinn mildi vegur. 1 Judo er lögð á- hersla á drengilegan og góðan leik, öll brögð sem geta valdið sársauka eða reiði hjá mótherjanum er bönnuð. — Er Judo mjög vinsæl? — Glíman hefur náð mjög miklum vinsældum um allan heim, en einkum hefur hún náð útbreiðslu eftir 1950 er Japanir fóru að ferðast meira um lönd og kýnna hana og talið er að ekki líði á löngu þar til hún verði tekin upp sem sérstök grein á. Olympíuleikum. — Mér sýnist á þeim brögðum sem ég hefi séð hér hjá ykkur, að Judo minni um margt á íslenzka glímu. — Það er nokkuð til í því, en í Judo eru mörgum sinnum fleiri brögð og bragðaafbrigði. Judo er oft sýnd i fastmótuðum kerf- um og má segja að hún minni á leiklist, þar sem annar aðili leikur óvin en hinn varnaraðila. Þessi sýningarkerfi eru afar flók- in og erfitt að læra þau, og ekki á færi annarra en meistara að sýna þau. Aðal- atriði í Judo er jafnvægi og mýkt i hreyfingum og góður árangur næst ekki fyrr en eftir áralanga þjálfun. 1 Vœntanleg kvikmynd: VERTIGO Kvikmyndahús: Tjarnarbíó. Leikstjóri: Alfred Hit- chocock Aðalhlutverk: James Stew- art, Kim Novak, Barbara Bel Geddes, Tom Helmore og Henry Jones. Bögupráöurinn: John „Scottie" Ferguson (James Stewart), sem þjáist af Iofthræðslu, segir af sér störfum sem lögregluþjónn í San Francisco. Félagi hans í lögreglunni hafði hrapað til bana af húsþaki, þegai’ hann ætlaði að hjálpa Ferguson niður af þakinu. Midge (Barbara Bel Ged- des, sem er auglýsinga- teiknari og gömul vinkona hans, gerir hvað hún má til þess að hughreysta hann. Gamall skólafélagi Fergu- sons, Gavin Elster (Tom Helmore) biður hann að fylgjast með ferðrnn konu sinnar Madeleine (Kim Novak) en hann óttast að hún þjáist af sjálfsmorðs- 1 undrun horfir Ferguson á stúlkuna. Hann hafði séð hana deyja, en nú horfir hún á hann með lifandi augum, Kim Novak leikur tvö hlutverk í þessai-i mynd, hlutverk Madeleine og Judy Barton. tilhneigingu. Madeleine trú- ir því að húri sé haldin anda langömmu sinnar sem varð brjáluð og framdi sjálfs- morð. Ferguson eltir Madeleine til margra undarlegra staða; að gröf langömm- unnar; í listasafn þar sem er mynd af gömlu konunni; í gamalt hótel þar sem hún bjó eitt sinn. Fundum þeirra ber sam- an i fyrsta sinn þegar Ferguson bjargar Made- leine þegar hún hafði kast- að sér i sjóinn. Ekki er langur tími liöinn þegar Ferguson er orðinn ást- fanginn I Madeleine. Nokkrum dögum síðar ekur Ferguson með Made- leine til trúboðsstöðvar nokkurrar all langt frá San Francisco. Madeleine hefur sagt honum draum, þar sem trúboðsstöðin kemur við sögu og Ferguson fer með hana i þeirri von að géta ráðið gátuna um Made- leine. Þegar á staðinn kem- ur, hleypur Madeleine frá honum, inn í kirkjuna og upp eftir turnstiganum. Ferguson eltir hana, en vegna lofthræðslu sinnar getur hann ekki elt hana alla leið upp á turninn. Skyndilega heyrir hann hræðilegt óp og skelfingu lostinn sér hann Madeleine hrapa til jarðar. Eftir hina misheppnuðu tilraun sina til þess að bjarga Madeleine, bila taug- ar Fergusons og hann dvelst um hríð á hressing- arhæli. Þegar hann kemur út þaðan, hefur honum ekki tekist að gleyma atburð- inum í turninum en hann trúir því að Madeleine sé á lífi. örvæntingafullur ráf- ar ■ hann um götur San Francisco og heldur að hver stúlka sem hann sér sé Madeleine* Dag nokkurn hittir hann stúlku sem er tvífari Made- leine, nema hún var ljós- hærð, en þessi er dökkhærð og heitir Judy Barton (Kim Novak) Hún kveðst aldrei hafa séð eða heyrt Made- leine, né hitt hann áður. Mörg undarleg atvik koma fyrir áður en myndin nær hámarki, og endir mynd/ir- inna rer jafn furðulegur sem hann er spennandi, og verðu*- "kki rr>kinn hér. Kiin Novak og James Stowart. 1 myndinni leikur Stewart fyrverandi lögregluþjón, sem hefur orðið að Iáta af störfum sökum lofthræðslu sinnar. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.