Vikan


Vikan - 29.01.1959, Blaðsíða 11

Vikan - 29.01.1959, Blaðsíða 11
HÚÐIN endurnýjast stöðugt og sérhver fruma er búin til úr efnum,' sem þér sjáið henni fyr- ir. Árangur þessa hluta er þvi al- gjörlega kominn undir yður sjálfri. Ef þér þekkið öll störf húðarinnar og hindrið þau ekki, munið þér komast að raun um, að fegurðin kemur af sjálfu sér. Húð yðar er lifandi, við- kvæmt líffæri með ótal taugar og æðar jafnframt því, sem hún vernd- ar bein og vöðva. Ef þér hafið lesið fyrri þætti, er engin þörf á að ræða um mataræði. Ég vil einungis minna yður á að umönnun húðarinnar á að hefjast innan frá og ná síðan út, en ekki öfugt. Ein aðalstarfsemi húðarinnar er sú að losa líkamann við úrgangsefni. Yðar þáttur í þeirri starfsemi er að láta ekki úrgangsefni liggja kyrr á yfirborði húðarinnar. Ef hörund yðar er hrjúft, flekkótt eða blettótt, er orsökin nærri alltaf ónóg hreins- un. Tyrknesk böð hreinsa mjög vel einnig má nota litið, gróft handklæði, vinda það upp úr heitu vatni og sláið hörundið með því. Endui'takið þetta með heitu vatni og síðast með köldu vatni. Pílapenslar og óhreinindi ættu að hverfa eftir fyrstu tvær eða þrjár vikurnar. Ef þér sjáið einhverja á yfirborði húðarinnar eftir þetta, má kreista þá laust út, en kreistið ekki fast, ef einhver fyrirstaða er. Þó að þér hreinsið húðina vikulega, megið þér ekki gleyma að þrífa hana daglega. Bezt er að bera krem á andlitið og þvo það síðan með sápu og vatni. Líkaminn þaifnast daglegra þvotta, jafnvel þótt hann virðist ekki vera óhreinn. Bezt er auðvitað að fara í bað — en það er auðvitað ekki eina leiðin. Þér verðið að gæta þess að þvo húð- ina mjúklega og nota mjúkan bursta eða svamp. Reynið að þvo bak, hand- leggi og fótleggi daglega. Hendur, hælar og olnbogar þarfnast einnig athygli. Nærandi handáburður mýkir alla hrjúfa bletti. Þér getið lýst oln- bogana með þvi að núa þá með hálf- um sítrónum. Þegar sumar kemur, verður auð- veldara um umönnun húðarinnar. Þá kemur sólin til hjálpar og nærir húð- ina með geislum sínum. Annars konar hörundslyf, i flöskum og krukkum, hjálpar einnig, sérstaklega þurri og viðkvæmri húð. Notið uppá- halds fegurðarlyf yðar, en ekki of mikið í einu, svo að þér lokið ekki svitaholunum. Ef þér hafið það á yfir nótt, takið það af næsta dag með köldu vatni. Eitt það hvimleiðasta á fallegri húð er óvelkomið hár. Misskiljið mig Fegurö á sex vikum Bjart og mjúkt hörund Við l’Iegna og ermalausa kjóla verður hiiðin að vera lýtarlaus. ekki þér ci'uð fæddai' með hár um allan kroppinn nema á iljum og lófum en venjulega tekui- enginn eft- ii' því. En þegar það verður sýnilegt, er nauðsynlegt að gera einhverjar gagn- i'áðstafanir. Alir ættu að raka af sér hárin í handarkrikanum. En munið, að þegar þér hafið byrjað, verðið þér að halda áfram. Reynið að nota upplausn (peVoxið) til að lýsa hárin á handleggjum og fótleggjum, en reynið í síðustu lög að láta fjarlægja þau. Á fótleggi og iiandleggi má nota rakvél, og berið síðan á eitthvert mýkjandi krem. Ekkert af þessu er þó einhlítt. Rafmagnsmeðferð er áhrifamesta aðferðin og varanlegasta. Venjulega þarf að beita henni nokkrum sinnum. En mikið er þó undir þeim komið, sem framkvæmir aðgerðina. Ef illa er á haldið, getur það valdið sársauka og örum. Þessi aðferð er hin eina áhrifaríka til að ná burt hári í and- liti. Nú er auðveldlega hægt að ná burt lýtum eins og vörtum og fæðingar- blettum sársaukalaust. Ef þér þvi hafið eitthvað þess háttar, ættuð þér að láta fjarlægja það á þessum 6 vikum. Nú er auðveldlega hægt að ná burt lýtum eins og vörtum og fæð- ingarblettum sársaukalaust. Ef þéi' þvi hafið eitthvað þess háttar, ættuð þér að láta fjarlægja það á þessum 6 vikum. Síðast en ekki sizt er svo vanda- málið algenga: Svitalykt. Við svitn- um öll mjög mikið á degi hverjum. Það er m.i a, ‘.þess vegna sem við ættum að fara i bað á hverjum degi og skifta oft um föt. En víðast hvar á svitinn auðvelt með að gufa upp. Undir hödnunum getur hann það ekki, svo að skynsamlegt er að nota lykt- eyðandi meðal daglega. Segið ekki: ,,Ég svitna aldrei." Eins og öll önnur dýr gerið þér það. Segið ekki heldur, að það sé ekki eðlilegt og heilsusamlegt að loka svitaholum húðarinnar. Fjölmargt af því, sem við gerum, er ekki eðlilegt, eitt af því er að borða með hníf og gaffli. Hvað viðkemur óheilbrigði, lokið þér aðeins litlum hluta húðar- innar, svo að það sem þér gerið er, að þér beinið úrgangsefnum að þeim hluta líkamans, þar sem þau eiga auðveldara að halda handarkrikanum hreinum, er hann er hárlaus, notið aðeins ekki svitakrem strax eftir rakstur. „Þátturinn „Fegurð á sex vik- um“ hefur þegar náð skjótum og miklum vinsældum og hafa fáir þættir blaðsins verið lesnir af eins miklum áhuga af hinu veika kyni. Við höfum fengið allmörg bréf frá lesendum og jafnvel eina upp- hringingu frá eiginmanni. sem færði okkur þakkir vegna eigin- konu sinnar. Hér fara á eftir stutt- ir kaflar úr tveimur bréfanna: —O— Vika mín: . . . ég hef lesið Fegurð á sex vik- um og reynt að fara eftir honum. Að vísu get ég ekki borið um mikla breytingu á mér til hins betra enda ekki liðnar neinar sex vikur, en ég finn strax mun á mér, hvað mér líður betur eftir að ég hef farið að taka þessi ráð til greina, sem gefin eru í þætt- inum. Ég vona að þú, Vika mín, haldir áfram að koma með svona hollar ráðleggingar og leiðbeining- ar til okkar kvenfólksins, það er ekki viða sem hægt er að fá vit- neskju um þau efni hér á landi. . . . svo þakka ég þér allt lesefnið í vetur... Kata. —O— Til þáttai'ins Fegurð á sex vikum. Við erum hér nokkrar í sauma- klúbb, sem allar lesum þáttinn um fegurð á sex vikum. Við ætlum að gera okkar bezta til að verða feg- urðardísir .. . Okkur þætti gaman að vita hvort þátturinn mundi svara bréfum um nokkur einstök atriði í sambandi við snyrtingu sem okkur langar að vita um. . . . vonumst fljótt eftir svari. „Græna lyftan." —O— iSÍFAií.' Stúlkunum í „Grœnu lyftunni“ er velkomið að senda þcettinum spurningar sínar og verður leyst úr þeim eftir föngum. Og þátturinn þakkar fyrir þann á- huga sem lesendur hafa sýnt hon- um. 11 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.